19.12.1973
Sameinað þing: 39. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1624 í B-deild Alþingistíðinda. (1485)

1. mál, fjárlög 1974

Eggert G. Þorsteinsson:

Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja örlitla brtt. á þskj. 295, merkta I. Tildrög þessarar till. eru þau, að fyrir forgöngu Íþróttasambands Íslands var stofnað til samtaka um íþróttakennslu lamaðra og fatlaðra, en slík starfsemi ryður sér nú mjög til rúms erlendis með mjög góðum árangri, bæði sem liður í aukinni endurhæfingu þessa fólks og ekki síður til dægrastyttingar þess, sem því miður er ekki of fjölbreytt vegna fjölfötlunar þess og lömunar. Aðstandendur þessara samtaka voru starfandi styrktarfélög þessa fólks ásamt starfandi félögum og samtökum fólksins sjálfs, sem í hlut á. Þegar starfið var hafið kom í ljós, að enginn sérhæfður þjálfari og sérmenntaður var til í landinu. Fyrsta skrefið í þessum málum hlaut því að verða það að sérhæfa kennara í þessum efnum. Með hliðsjón af framangreindu var — með leyfi hæstv. forseta — eftirfarandi bréf sent til hæstv. menntmrh. 23. okt. s. l., en þar segir í framhaldi af viðtali við fulltrúa samtakanna:

„Undirbúningsnefnd, er undirrituð eiga sæti i, vinnur að því með ýmsum hætti, að þessi starfsemi komist á fót. Má þar einkum nefna ýmiss konar kynningarstarfsemi gagnvart væntanlegum iðkendum, útvegun húsnæðis, þýðingu leikreglna og útvegun áhalda og tækja. Mest aðkallandi viðfangsefni um þessar mundir er að fá til starfs sérhæfðan starfskraft, er gæti í senn verið leiðbeinandi við þessar íþróttaæfingar og jafnframt kennt öðrum að leiðbeina. Íþróttaiðkanir meðal fatlaðra eru þess eðlis, að fleira aðstoðarfólk verður að vera til staðar en við venjulegar íþróttaæfingar. Það er áform undirbúningsnefndarinnar að senda íþóttakennara eða sjúkraþjálfara til að afla sér þekkingar og kunnáttu í þessum efnum meðal þjóða, sem komnar eru vel á veg og geta því byggt á fenginni reynslu. Koma þá vel til greina bæði Norðurlöndin og Bretland, svo og Þýskaland og Bandaríkin. Gera má ráð fyrir, að til þessa náms þyrfti að fá aðila, sem eru í föstu starfi, og að 3–4 mánuðum yrði að verja í þessu skyni. Með það í huga má gera ráð fyrir, að kostnaður yrði sem næst þessi:

1. Ferðakostnaður 35 þús. 2. Dvalarkostnaður í allt að 4 mánuði, þ. e. húsnæði, fæði og vasapeningar, 150 þús. og laun 240 þús. eða samtals 425 þús. kr.

Svo sem fram kom í viðtali því, sem getið er um í upphafi þessa erindis, hefur undirbúningsnefndin ekki það fjármagn til umráða, sem þarf til að standa straum af þessum kostnaði. Vér leyfum oss því að fara þess á leit við yður, herra menntmrh., að undirbúningsnefndinni verði veittur fjárhagslegur stuðningur í því skyni að senda aðila utan til náms samkv. framangreindri kostnaðaráætlun. Um leið og vér þökkum áhuga og velvilja, er vér höfum mætt af yðar hálfu, leyfum vér oss að vænta þess, að þér getið orðið við þessum tilmælum.“

Rn. brást vel við og ritaði fjvn. eftirfarandi bréf, með leyfi hæstv. forseta, 9. nóv. s. l.:

„Rn. hefur borist bréf Íþróttasambands Íslands, dags. 23. f, m., þar sem farið er fram á fjárhagslegan stuðning við undirbúning íþróttakennslu fyrir fatlaða, en talið er nauðsynlegt að senda íþróttakennara eða sjúkraþjálfara utan til að afla sér þekkingar í þessu sambandi. Er kostnaðurinn áætlaður 425 þús. kr. í bréfi undirbúningsnefndar íþrótta fyrir fatlaða. Hér er um málefni að ræða, sem æskilegt er að veita stuðning, og er erindinu hér með beint til hv. fjvn.

Eigi að síður, þrátt fyrir þessar góðu undirtektir, fékkst erindinu ekki framgengt. Mér er vel ljóst af reynslu fyrri ára, að við samningu fjárl. er nauðsynlegt að gæta alls sparnaðar og hagsýni. Ég tel, að hér sé hins vegar um svo mikið réttlætismál að ræða, þegar hliðsjón er af því höfð, til hvaða aðila peningarnir eiga að renna og að upphæðin verður að teljast mjög hófleg, ég treysti því, að hv. alþm. skilji nauðsyn þessa máls og við endanlega afgreiðslu frv. til fjárl. verði þessi till. mín samþykkt.