19.12.1973
Sameinað þing: 39. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1636 í B-deild Alþingistíðinda. (1494)

1. mál, fjárlög 1974

Jón Árnason:

Herra forseti. Það vantar menn í salinn, sérstaklega þann, sem ég hefði viljað tala til. (Gripið fram í.) — Ég hafði ekki ætlað mér að taka til máls við þessa umr. Frsm, okkar sjálfstæðismanna í fjvn., hv. 2. þm. Vestf., hefur gert góða grein fyrir afstöðu okkar í sambandi við fjárlagafrv., eins og það liggur nú fyrir til afgreiðslu. En það, að ég kvaddi mér hljóðs, var út af nokkrum orðum, sem djúpvitur maður hér á Alþ. og reikningsglöggur, hv. 3. þm. Norðurl. v. Björn Pálsson, lét hér falla í sambandi við þá framsögu, sem hann hafði fyrir styrkveitingum til flóabátanna. Dró hann þar nokkuð inn í mál, sem má segja, að hafi ekki verið beint á dagskrá, þó að það snerti nokkuð samgöngumálin, væntanleg skipakaup Akurnesinga og annarra Borgfirðinga til þess að halda áfram þeim samgöngum, sem verið hafa á milli Akraness og Reykjavíkur, má segja allt sem af er þessari öld. Hefur farið sívaxandi með hverju árinu, sem hefur liðið, sú þjónusta, sem þessi bátur hefur veitt, og það eru sterkustu rökin fyrir þýðingu þessa farkosts fyrir það byggðarlag, sem hér á í hlut, Borgarfjarðarhérað og Akurnesinga. En auk þess er vitanlega þessi þáttur í okkar samgöngukerfi einnig mikilsverður fyrir höfuðborgarsvæðið, því að það segir sig sjálft, að það er líka stórt atriði fyrir höfuðborgarsvæðið að hafa góðar samgöngur út í hinar dreifðu byggðir.

Hv. þm. ræddi mikið um það ferjuskip, sem er verið að ræða um að kaupa og hæstv. fjmrh. hefur flutt till. um að veita ríkisábyrgð fyrir hluta af væntanlegu kaupverði, á svipaðan hátt og gert hefur verið til fyrirgreiðslu fyrir aðra landsmenn, þegar um það hefur verið að ræða, og var með ýmsar lýsingar á þessu skipi. Mér datt í hug, þegar hann var að tala um sjálfan sig og forstöðumann Skipaútgerðar ríkisins, lýsing þessa hv. þm. fyrir tveimur dögum, þegar hann var að tala um lambið og ána. Ég gat samt ekki fyllilega gert mér grein fyrir því, hvor þeirra hafði farið ofan í holuna, hv. þm. eða forstjóri Skipaútgerðarinnar, en væntanlega hefur nú þm. hangið uppi á hakkanum, en ekki fallið í holuna.

Hann hélt því fram, — það hafði einhver sagt honum það, — að þetta skip mætti ekki fara nema 5 mílur á sjó, og ég veit ekki, hvernig á að heimfæra það, þar sem mér er kunnugt um, að þetta skip, sem gengur um 15 mílur, hafi haldið uppi samgöngum á leið, sem það er 2 klukkutíma að fara, og segir sig sjálft, að það fer landleiðina hitt, sem kemur til viðbótar, svo að dæmið gangi upp. Mátti heyra, að hann teldi Akurnesinga og þá, sem væru að standa fyrir þessum skipakaupum, tóma afglapa og enginn hefði vit á þessum málum, nema þá kannske hv. þm. Hann sagðist hafa talað við einhvern Agnar Erlendsson. „Hann sagði mér, að það kostaði 120 þús. kr. að reka bátinn á dag,“ sagði hann. Síðan komst hann að þeirri niðurstöðu, að þetta mundi leiða af sér, að það mundi kosta um 120 millj. eða meira að reka skipið á ári. Við vitum, að það er verðbólga og þensla á öllum sviðum, en ætla að fara með árið upp í 1000 daga, það þarf nokkuð miklu að breyta, til þess að svo verði. Það þurfa að vera 1000 dagar í árinu, til þess að dæmið gangi upp, eins og hv. þm, vildi halda hér fram, að það kostaði 120 þús. að reka skipið á dag. Þetta hafði hann frá þessum vísa manni. En þetta er eins og annað samræmi, sem kom fram í málflutningi hans varðandi þetta mál.

Satt að segja var það, að þetta mál skyldi bera hér á góma, kærkomið tilefni fyrir mig til að tala um það og gefa þær upplýsingar, sem ég get, vegna þess að ég er ekki í Nd. og málið fór umræðulaust í gegn í Ed. N. þar fékk upplýsingar, sem hún taldi sig þurfa varðandi rekstur þessa skips. En það kann vel að vera, að þeir í Nd. hafi ekki verið búnir að fá þær, en fái þær hins vegar, þegar þar að kemur. Annars vil ég segja það í sambandi við þetta, eins og reyndar kom fram hjá hv. frsm. samgmn., — það kom skýrt fram hjá honum, að það er síst að átelja þá hækkun, sem orðið hefur í þessum þætti samgangnanna hér á landi, þegar það liggur á borðinu, að reksturinn á Skipaútgerð ríkisins hefur á þessu sama tímabili fjórfaldast sem þessar fjárveitingar hafa aðeins tvöfaldast. Það segir sig sjálft, að það er ekkert samræmi í slíkum málflutningi. Hefði hv. þm. átt að beina spjótum sínum að forstöðumanni Skipaútgerðar ríkisins og vita, hvort hann gæti ekki komið á einhverju meira hagræði í sambandi við rekstur Skipaútgerðar ríkisins heldur en raun ber vitni, svo að ekki þurfi æ ofan í æ að veita hærri og hærri fjárupphæðir til að halda skipaútgerðinni gangandi.

Ef við leggjum til grundvallar þessar 120 þús., sem eru ekkert fjarri lagi og hv. þm., Björn Pálsson, skýrði frá, að mundi kosta að reka skipið, þá kemur það hér um bil heim við þá áætlun, sem ríkisstj. var send og Alþ. hefur fengið varðandi spá nr. 2, sem gerð hefur verið um rekstur á þessu skipi, því að þar er gert ráð fyrir, að það muni kosta um 42 millj. á ári, 41 millj. 718 þús. kr. Þar er gert ráð fyrir eðlilegri aukningu í sambandi við reksturinn, eins og hægt er að rekja í um mörg ár hjá þessu skipi. Ef við tökum þá aukningu líka, sem er nýjust, á yfirstandandi ári, þá á þetta að láta nærri með þá spá, sem þarna er lögð til grundvallar.

Það hefur verið talað um, að það væri vanáætlað, og það kann vel að vera, að það séu vanáætlaðir einhverjir liðir í sambandi við rekstraráætlunina. Ég hygg þó, að það sé ekki það, sem skipti máli í sambandi við endanlega útkomu, því að ég hygg, að það sé hvort tveggja, að það sé nokkuð vanáætlað í sambandi við tekjuliðina og einnig kannske í sumum tilfellum varðandi rekstrarliðina. Það var sérstaklega talað um olíuna. Eftir síðasta reikningi Akraborgar, vitanlega er hún með minni vél og er nú orðið um klukkutíma og tíu mínútur á milli, vegna þess að hún er með slitnar vélar, og eyðir meiru en hún eyddi áður, — eftir seinasta ársreikningi, sem liggur fyrir, fór það skip með 1764 þús. kr. í ollu á ári, en samkv. þessari áætlun er gert ráð fyrir því, að skipið eyði 1 millj. kr. meira í olíu. Sjálfsagt er þetta vanáætlað með tilliti til þess, hvað olíuverðið verður í framtíðinni. En þar gegnir alveg sama máli um önnur farartæki. Það gegnir alveg sama máli um bílana, bæði hvað bensín og ollu snertir. Þessir kostnaðarliðir hljóta að vaxa hjá okkur gífurlega, eftir að nýtt verð kemur til sögunnar í sambandi bæði við bensín og olíur.

Það var talað um vátryggingarverð, að það væri líka of lágt áætlað. Það getur munað þar 200–300 þús. kr. eða eitthvað svoleiðis. Ég skal ekkert fortaka um það. En engan veginn er þar um stóra liði að ræða, og a. m. k. í byrjuninni, á meðan skipið hefur ekki orðið fyrir tjónum, má gera ráð fyrir, að verði hægt að komast að hagstæðum kjörum með vátryggingar, vegna þess líka að hægt er að gera ráð fyrir því, að það verði þarna um lægri upphæð að ræða en gengur og gerist varðandi vátryggingarnar, vegna þess að þetta skip hefur alltaf haft svokallaða topptryggingar, borið sjálft viss lágmarkstjón, og það vita allir, sem nokkuð þekkja inn á tryggingar, að með því móti er hægt að komast að betri og ódýrari kjörum. En vitanlega lendir þá á útgerðinni að standa undir kostnaði við öll lægri tjón, sem að höndum ber og verða á skipinu sjálfu. Hins vegar er tryggingin þannig, að hún bætir fullkomlega fyrir eigendur gagnvart þriðja aðila.

Ég vil segja, að sú áætlun, sem liggur fyrir, sé ekki á nokkurn hátt óvarleg, ef tekið er tillit til bæði tekna- og gjaldaliðanna. En ég vil halda því fram, að ekki síst með tilliti til þess, hverjar horfur eru í sambandi við olíumálin, hvað má búast við, að olíuverð hækki mikið, þá tel ég einmitt, að það sé meiri grundvöllur og meiri réttlæting fyrir því að kaupa þetta skip og reka það heldur en ef svo væri ekki. Ég álít, að það renni einmitt stoðum undir það. Skip, sem getur flutt um 300 bíla, — en það er þó ekki nema hluti af þeim bílum, sem fara fyrir Hvalfjörð á hverjum degi, — getur sparað ekki lítið fyrir þjóðarheildina með því að taka bílana um borð og flytja þá á milli Reykjavikur og Akraness, bæði stærri og smærri bíla. Þar er um að ræða vélaorku, sem er með dýra brennslu, bensínið er vitanlega miklu dýrara en olían. Og það eru ekki 1000 hestöfl, heldur eru það mörg þúsund hestöfl, þar er um að ræða, sem mætti spara á þessari leið, og það er þó alltaf nokkuð yfir 200 km, sem um er að ræða þarna á ferðinni fram og til baka, sem mætti spara með því að taka bílana í þessa bílaferju. Enda þótt Akraborgin geti ekki tekið nema 7 bíla í ferð eða um það bil, hefur hún nú upp á síðkastið oft verið yfirhlaðin af bílum og ekki getað tekið það, sem fram hefur verið boðið í þeim efnum, og því miður er því ekki að leyna, að þeir, sem hafa farið með bíla sína um borð í ferjuskipið, hafa oft orðið fyrir því, að það hefur sjórok gengið yfir bílana, og það er engan veginn gott.

Hv. þm. var að tala um, að sá skipstjóri, sem hann hefði talað við, hefði sagt, að það þyrfti að loka skipinu og setja í það hurðir eða hlera. Þetta er það, sem við vissum, og það hefur engu verið leynt. Það var ákveðið strax einmitt með þetta fyrir augum, að fyrirbyggja það, að sjórok eða sjór kæmist inn í milli þilfarið, þar sem bílarnir verða geymdir. Það er talið nauðsynlegt, og það verður sett á skipið, áður en það kemur til Íslands. En eftir að búið er að gera það, er þarna um að ræða fyrsta flokks bílageymslu.

Ég viðurkenni, að ef þeir, sem þarna eiga hlut að máli, ættu um tvo kosti að velja: annars vegar að byggja sér nýtt skip, sem passaði fyrir þá á besta máta, ellegar þá að kaupa þetta skip, og hefðu nægilegt fjármagn í háðum tilfellum, þá bygg ég, að það mundi frekar verið farið út í að byggja nýtt skip. En það mundi kosta mörgum sinnum meira en þessi bílferja kostar.

Nú skal maður ekkert segja um það, hvað framtíðin ber í skauti sér, eftir að kominn er verulega góður vegur og búið að stytta veginn fyrir Hvalfjörð. En það tekur áreiðanlega mörg ár, og það er, eins og kom fram í umr, áðan, takmarkaður tími, sem verður að afskrifa hvert skip á. Akraborgin var ný, þegar við keyptum hana á sínum tíma. Hún var talin henta þá, en hún er algerlega úrelt skip í þessar siglingar í dag, það ber öllum saman um. Auk þess er hún orðin svo gömul, að ef við eigum að halda áfram með það skip, þá verður að leggja í mjög verulegan kostnað til þess að geta fengið þá klössun á skipið, sem á þarf að halda, til þess að það fái sjóhæfniskírteini til þess að halda þessum siglingum áfram.

Ég vil aðeins að lokum gera grein fyrir því, að þegar ég talaði um það og gerði grein fyrir því hér áðan, að samkv, þessari áætlun, sem gerð hefur verið, mundi kosta um 42 millj. kr. að reka skipið yfir árið, þá er gert ráð fyrir í þeim reikningi, að skipið hafi til afskriftar 7.2% af 130 millj. kr. Það er gert ráð fyrir, að skipið kosti um 118 eða 120 millj. kr., en síðan kostar nokkuð að koma skipinu heim til Íslands, svo að það er ekki óeðlilegt að miða afskriftartöluna við 130 millj. kr., og í þessari áætlun eru, eins og ég segi, 7.2% í afskriftir. Auk þess er gert ráð fyrir því, að borga þurfi 7.25% í vexti af stofnfénu eða af 100 millj, kr., sem er gert ráð fyrir að þurfa að skulda í skipinu, eftir að búið er að ráðstafa Akraborg og láta söluverðið á henni ganga upp í það, sem þarf að greiða út í skipinu strax í upphafi, svo að þetta er allt inni í dæminu, og að hér geti verið um glæfralegt fyrirtæki að ræða, það get ég ekki skilið. Það verður allt að breytast og í öfuga átt við það, sem þróunin hefur verið í þessum efnum, til þess að það sé hægt að halda því fram, að það sé verið að fara út í einhvern glæfralegan rekstur.

Nei, ég verð að segja það, að ég er ánægður út af fyrir sig, þó að ég teldi, að það passaði engan veginn að fara að koma með þetta mál inn í umr. um fjárl., vegna þess að þm. í Nd. gefst tækifæri til að ræða málið, þegar það kemur á dagskrá aftur frá þeirri n., sem fjallar um málið og ég geri ráð fyrir að kynni sér allar aðstæður, áður en hún afgreiðir það aftur til Nd., og þá liggi fyrir þær nauðsynlegu upplýsingar, sem alltaf þurfa að liggja fyrir í sambandi við mál, eða ríkisábyrgð.

Ég skal svo ekki tefja tímann lengur, en vænti þess, að þær upplýsingar hafi komið að gagni, sem ég hef gefið hér í sambandi við þessi fyrirhuguðu skipakaup Akurnesinga og annarra Borgfirðinga til þess að halda áfram uppi þeim samgöngum, sem þeir hafa notið það sem af er þessari öld. Skipin hafa alltaf verið að stækka. Það var byrjað á opnum árabátum í fyrstu og látið nægja þá. Þróunin hefur orðið sú, að þessir bátar hafa alltaf verið að stækka og stækka. Sumir segja í dag, að við séum að kaupa allt of stór skip. Það eru menn, sem fylgjast ekki með tímanum.