19.12.1973
Sameinað þing: 39. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1648 í B-deild Alþingistíðinda. (1498)

1. mál, fjárlög 1974

Gunnar Thoroddsen:

Herra forseti. Það er rétt, að ég hefji mál mitt með því að minnast á sögualdarbæinn, og vil ég í því sambandi við frásögn hæstv. forsrh. taka það fram, að þegar hin opinbera tilkynning kom frá hæstv. ríkisstj. um sögualdarbæinn, hafði þingflokkur sjálfstæðismanna ekki tekið afstöðu til málsins. Eins og ég hafði skýrt hæstv. ráðh. frá á þeim fundi eða fundum, sem hann greindi frá, var málið enn á umræðustigi í þingflokknum. Ég hafði einnig skýrt frá því, að um leið og till. væru uppi um sögualdarbæ í Þjórsárdal, þá hefði því verið hreyft í þingflokknum, hvort ekki væri ástæða til að reisa bæinn á þeim stað, þar sem hinn fyrsti landnámsmaður nam land, þ. e. a. s. í Reykjavík.

Það er óþarft að rekja hér ítarlega fjárl. og þær aths., sem við sjálfstæðismenn höfum við frv. að gera, og þau andmæli, sem við höfum uppi gegn því. Þau mál hafa verið rakin svo rækilega af þeim þm. flokksins, sem hafa tekið til máls í þessum umr. Ég vil þó taka það fyrst fram, að útgjöld ríkisins eru samkv. þessu frv. nú nær 30 milljarðar kr., hafa nær þrefaldast á þrem árum. Við sjálfstæðismenn teljum þetta svo langt úr hófi, að það fái ekki staðist, og liggja til þess margar ástæður, sem hér er engin þörf að rekja. Ein ástæðan er sú, að það verður að vera visst, eðlilegt hlutfall milli þjóðarframleiðslu annars vegar og þess, sem ríkissjóður tekur til sinna þarfa. Á áratugnum 1960–1970 var þetta hlutfall yfirleitt milli 16 og 19% af þjóðarframleiðslunni, sem ríkissjóður tók til sinna þarfa samkv. fjárl. En nú á árinu 1974 eru horfur á, að þetta hlutfall fari upp í um það bil 30% af þjóðarframleiðslunni. Þetta er úr öllu hófi og setur mark sitt alls staðar, bæði á afkomu einstaklinga og atvinnuveganna.

Þegar þetta er haft í huga, skyldu menn þó ætla, að sæmilegur jöfnuður væri í þessu frv. og helst þannig, eins og jafnan þarf að vera á slíkum þenslutímum, að ríkissjóður ætli sér einhvern greiðsluafgang. Það er lögmál efnahagslífsins, sem allir ættu að fylgja. Nú er það að vísu svo, að reikningslega mun verða greiðsluafgangur á þessu frv., ef þær till. verða allar samþykktar, sem meiri hl. fjvn. leggur til, greiðsluafgangur, sem nemur eitthvað í kringum 100 millj. kr., en er þó ekki nema rúmlega 30/00 þeirra tekna, sem ríkissjóður ætlar að afla sér. Hér hefði þurft að vera ríflegur greiðsluafgangur, en jafnvel þessi reikningslegi afgangur er ekki meiri en þetta. Hins vegar er auðsætt, að hér er aðeins um áætlaðan, reikningslegan afgang að ræða, hann er ekki raunverulegur. Hann er ekki raunverulegur, vegna þess, að það hefur verið sýnt greinilega fram á, að ýmis fyrirsjáanleg útgjöld, sem ríkissjóður kemst ekki hjá að greiða, eru ekki talin í frv. eða ekki talin nægilega há. Í annan stað er reynt með vissum tilfærslum og tilfæringum af hálfu stjórnarsinna að hagræða hlutum þannig, að það er talnaleikur einn. Ég vil nefna hér eitt dæmi.

Á þskj. 295, VI flytur meiri hl. fjvn. till. um að lækka niðurgreiðslur um 400 millj. kr. Og nú kunna menn að spyrja: Er þetta ætlunin? Verður þetta framkvæmt? Ég held, að þetta sé talnaleikur einn saman og ekki ætlunin að framkvæma það. Þá byggi ég á reynslunni frá þessari hinni sömu stjórn. Þegar fjárlög fyrir 1972 voru samþykkt, var ákveðið að lækka niðurgreiðslur eins og nú, það átti að lækka þær um 180 millj. kr. Hver varð reynslan? Það er best að vitna í rit, sem heitir Þjóðarbúskapurinn nr. 3, útgefið af Framkvæmdastofnun ríkisins, hagrannsóknadeild. Þar er annáll efnahagsmála árið 1972 og fyrri árshelmings 1973. Þetta er ákaflega fróðlegur annáll og í rauninni skemmtilegur, eins og flestir annálar ern. Þegar gengið hafði verið frá því í fjárl. fyrir 1972 að lækka niðurgreiðslur um 180 millj. kr., voru ráðh. varla vaknaðir af nýársblundinum, fyrr en þeir ákváðu að auka niðurgreiðslurnar um 25 millj. kr. Nú skyldi maður ætla, að þegar á leið árið hefði verið reynt að vinna þetta upp. En það var nú eitthvað annað. Í júlímánuði þótti svo mikið við liggja að auka niðurgreiðslur, að gefin voru út sérstök brbl. 11. júlí um aukningu niðurgreiðslna og hækkun fjölskyldubóta, samtals 240 millj., eða 485 millj. á ársgrundvelli. Síðan var haldið áfram. Í sept. voru niðurgreiðslur auknar um 75 millj., og í des. voru niðurgreiðslur auknar enn um 95 millj. kr. á ársgrundvelli. Hvers vegna? Eftir því sem annáll Framkvæmdastofnunarinnar segir, voru niðurgreiðslur auknar til þess að koma í veg fyrir hækkun kaupgreiðsluvísitölu. Þetta gerðist á árinu 1972. Fjórum sinnum voru niðurgreiðslur hækkaðar og auknar, gagnstætt því, sem lofað var og ákveðið í þeim fjárl., sem afgreidd voru í des. 1971.

Þegar kom fram á árið 1973, gerðist það undarlega, að þá var farið að hækka og lækka niðurgreiðslur á víxl. Í jan. voru niðurgreiðslur auknar um 90 millj. á ársgrundvelli, einum mánuði síðar, í marsmánuði, voru þær lækkaðar um 180 millj. á ársgrundvelli, og tveim mánuðum síðar, í maí eða júní, voru þær enn auknar um rúmlega 200 millj. á heilu ári.

Ég rek þessa atburði samkv. efnahagsmálaannál Framkvæmdastofnunar ríkisins, sem sýnir svart á hvítu, hvernig er treystandi því, sem stjórnarflokkarnir eru að ákveða þannig í fjárl., — sýnir það og sannar, að hér er talnaleikur, hér er verið að búa til greiðsluafgang með till., sem vafalaust verður ekki staðið við.

Þetta frv. er reist á óhæfilegri og óhóflegri skattheimtu. Skattbyrðin er orðin óviðunandi, og mér dettur það í hug vegna ræðu hæstv. forsrh. um þjóðhátíðina á næsta ári og hvernig ætti að minnast 1100 ára afmælis Íslandsbyggðar, að nokkuð skýtur það nú skökku við, þegar við höfum í huga, að forfeður okkar, landnámsmennirnir, flýðu úr Noregi vegna skattáþjánar þar og komu hingað til lands, að þá skuli hæstv. ríkisstj. ætla að halda upp á 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar með því að hafa hér mestu skattáþján, sem þekkst hefur í sögu þessa lands. Þannig eru nú aðalhátíðarhöldin af hálfu þessarar hæstv. ríkisstj.

Ég skal, eins og ég gat um, ekki lengja þessar umr. vegna þess, hve margt af því, sem ég hefði viljað hreyfa í sambandi við frv., hefur þegar komið fram í ræðum þm. En ég vil fyrir hönd þingflokks sjálfstæðismanna lýsa yfir eftirfarandi :

Útgjöld ríkissjóðs samkv. fjárlagafrv. nema nú um 30 milljörðum kr. og hafa nær þrefaldast á þrem árum. Vantar þó enn inn í frv. ýmis útgjöld, sem ekki verður komist hjá að greiða. Frv. er reist á óhóflegri skattheimtu. Skattabyrðin, sem hefur hin síðustu ár verið síhækkandi hundraðshluti af þjóðarframleiðslunni, er ofviða einstaklingum og atvinnurekstri og verkar sem farg á athafnalíf þjóðarinnar. Þótt þorri landsmanna telji gildandi tekjuskattslög algerlega óviðunandi og fyrir Alþ. liggi till. um veigamiklar skattalækkanir og allir flokkar hafi nú viðurkennt hina brýnu nauðsyn á að draga úr beinum sköttum, þá gerir fjárlagafrv. ráð fyrir óbreyttum tekjuskattslögum. Engin viðleitni er sýnileg af hálfu ríkisstj. til þess að draga úr hinum geigvænlega vexti verðbólgunnar, heldur mun þetta fjárlagafrv. magna hana stórum, enda byggist frv. á þeirri forsendu, að haldið verði áfram næsta ár á sömu óheillabraut í efnahagsmálum. Þrátt fyrir alvarlegan vinnuaflsskort hjá aðalatvinnuvegum þjóðarinnar keppir ríkið við þá um vinnuaflið og spennir upp tilkostnað. Ríflegur greiðsluafgangur þyrfti að vera hjá ríkissjóði, eins og nú standa sakir, en í stað þess verður frv. afgreitt með raunverulegum greiðsluhalla. Með hliðsjón af því, sem hér hefur verið rakið, varar þingflokkur sjálfstæðismanna alvarlega við þeirri háskalegu fjármálaþróun, sem fram kemur í fjárlagafrv., og mun því greiða atkv. gegn því við lokaafgreiðslu þess.