19.12.1973
Neðri deild: 48. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1658 í B-deild Alþingistíðinda. (1502)

152. mál, tollskrá o.fl.

Forsrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Ég held, að það sé sjálfsagt að reyna að leysa að einhverju leyti úr þessari spurningu, svo að hv. þm. geti sofið betur í nótt en ella yrði. Hann hefur lýst því sjálfur, og það liggur fyrir, að það er fullkomið þingfylgi fyrir því efni í frv., sem hann taldi meginefni. Spurningin er aðeins um breytingu, sem gerð var við frv. í Ed. Þó að sú breyting verði felld hér í Nd. á morgun eða hvenær sem það kynni að verða, þá er það út af fyrir sig ekki nein ástæða til þess, að stjórnin segi af sér vegna þess. En ég held, að örlög þessa máls séu enn ekki ráðin. Ég fyrir mitt leyti get tekið undir það, að þetta mál megi betur skoða.