29.10.1973
Efri deild: 6. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 219 í B-deild Alþingistíðinda. (151)
49. mál, kjarasamningar opinberra starfsmanna
Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Á þskj. 51 er frv. til l. um breyt. á l. um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Ástæðan til þess, að þetta frv. er fram komið, er sú, að í 16. gr. l. nr. 46 frá 1973 er gert ráð fyrir því, að kjarasamningar opinberra starfsmanna gangi til Kjaradóms, ef ekki verður samið fyrir 1. nóv. Nú hefur verið unnið nokkuð að því að reyna að leita eftir samkomulagi í þessum kjarasamningum, en það hefur hins vegar ekki tekist, en aðilar eru sammála um að óska eftir því, að frestur þessi verði lengdur. Bandalag starfsmanna ríkis og bæja óskaði eftir því, að hann yrði lengdur til 20. des. Bandalag háskólamanna vildi hins vegar fara fram í miðjan nóv., og það kom fram í umr. mínum við formenn stjórnarandstöðuflokka fyrir helgina, þegar ég skýrði þeim frá því, að þetta væri í vændum, að þeir töldu eðlilegra, að ef samið yrði, þá lægi það fyrir, áður en fjárlög yrðu afgreidd. Niðurstaðan hefur því orðið sú að leggja til, að fresturinn yrði til 15. des., enda má gera ráð fyrir, að ekki verði búið að afgreiða fjárlög þá.
Slík frv. sem þetta hafa áður komið hér fram á hv. Alþ., t. d. árið 1970, þá var sá háttur á hafður, að það mál fór ekki til n., og fór ég fram á það í hv. Nd., að svo yrði einnig nú og málið næði fram að ganga í dag. Það var samkomulag allra þar, að svo skyldi vera, og ég vona, að það verði eins í þessari hv. d. Ég leyfi mér því, herra forseti, að leggja til, að frv. verði vísað til 2. umr.