19.12.1973
Neðri deild: 50. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1674 í B-deild Alþingistíðinda. (1538)
102. mál, veiðar með botnvörðu, flotvörpu og dragnót í fiskveiðilandhelgi
Stefán Gunnlaugsson:
Herra forseti. Hv. síðasti ræðumaður hélt því fram, að hér væri fyrirliggjandi till. um að opna Faxaflóa fyrir dragnótaveiðum. Ég hygg, að hér sé um algeran misskilning að ræða hjá hv. ræðumanni. Ég geri ráð fyrir því, að hann eigi við till., sem er á þskj. 311. Ég er flm. að þessari brtt. ásamt þremur öðrum hv. alþm. og vil stuttlega gera grein fyrir viðhorfi mínu til þess atriðis, sem brtt. fjallar um, en hún fjallar um heimild til handa ráðh. til að veita veiðiheimildir í fiskveiðilandhelgi að fenginni umsögn Hafrannsóknastofnunarinnar
Eins og hér hefur verið rakið að nokkru, var gert ráð fyrir því í frv., sem var lagt fram um ný fiskveiðilög fyrir þessa hv. d., að heimild til veitingar dragnótaveiðileyfa skyldi ekki notuð til 1. júlí 1976 að því er varðar veiðar á Faxaflóa innan tiltekins svæðis. Sjútvn. þessarar hv. d. taldi óeðlilegt að binda hendur ráðh. hvað þetta sérstaka svæði snerti og lagði til, að þessi takmörkun á heimild ráðh. til veitingar dragnótaveiðileyfa yrði felld úr gildi. Yfirgnæfandi meiri hl. hv. þdm. féllst á þetta sjónarmið, og urðu úrslit í atkvgr. um þetta mál hér í hv. d. í samræmi við það. Hv. Ed. hefur hins vegar haft annað viðhorf til þessa máls og hefur samþykkt, að umrædd takmörkun á heimild ráðh. til veitingar dragnótaveiðileyfa verði eins og frv. upphaflega gerði ráð fyrir.
Ég vil taka það mjög skýrt fram, að afstöðu mína varðandi þetta mál má ekki túlka á þann veg, að ég telji, að opna eigi nú Faxaflóa fyrir dragnótaveiðum, svo er alls ekki. Um það mál eru ákaflega skiptar skoðanir meðal leikmanna og margar kenningar uppi, eins og kunnugt er, í þeim efnum. En ég er þeirrar skoðunar, að við hljótum að taka mikið tillit til álits fiskifræðinga og annarra sérfræðinga varðandi þetta atriði. Ég geng út frá því, að ráðh. muni nota vald sitt til veitingar veiðiheimilda í fiskveiðilandhelgi á þann veg, að hann muni að verulegu leyti fara að till. fiskifræðinganna og annarra þeirra, sem þarna eiga hlut að máli, eins og sjálfsagt og eðlilegt er að gera, því til þess eru fiskifræðingar í þjónustu ríkisins, að hægt sé að byggja að verulegu leyti a. m. k. á till. þeirra um friðunarráðstafanir og hagnýtingu fiskveiðilandhelginnar. Ég er sem sagt þeirrar skoðunar, að eðlilegt sé, að ákvarðanir um það efni, sem hér um ræðir, séu teknar af viðkomandi ráðh. og sérfræðingum hans hverju sinni. Það er af þessum ástæðum, sem ég er flm. ásamt þremur hv. þm. að brtt. á þskj. 311.
Varðandi aðrar brtt., sem fram hafa komið, vil ég segja það, að því miður get ég ekki verið fylgjandi brtt. á þskj. 306, brtt. hv. þm. Friðjóns Þórðarsonar og Benedikts Gröndal. Hins vegar get ég fyrir mitt leyti stutt till. á þskj. 297 frá hv. þm. Sverri Hermannssyni, þar sem meginefni hennar sýnist mér vera það, að ráðh. sé heimilt að veita tilgreindar veiðiheimildir í fiskveiðilandhelginni að fenginni umsögu Fiskifélags Íslands einnig, en frv. gerir ráð fyrir, að leitað verði einungis til Hafrannsóknastofnunarinnar eftir umsögn.