20.12.1973
Sameinað þing: 41. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1683 í B-deild Alþingistíðinda. (1557)
171. mál, frestun á fundum Alþingis
Forsrh. (Ólafur Jóhannesson) :
Herra forseti. Í till. þessari er farið fram á, að Alþingi veiti samþykki sitt til þess að fundum þingsins verði frestað frá morgundeginum eða síðar, ef henta þykir, enda verði það kvatt saman á ný eigi síðar en 21. jan. 1974. Þess gerist ekki þörf, að þessari till. sé fylgt úr hlaði með mörgum orðum. Hún er samsvarandi öðrum hliðstæðum frestunartill., sem hafa legið fyrir hverju þingi að kalla má fyrir jólin. Það er miðað þarna við 21. jan., sem samkomudag vegna þess að 20. jan. fellur á sunnudag.
Það hefur ekki verið venja að vísa till. sem þessari til n., og ég vil leyfa mér að mælast til þess, að þessi till. verði samþ., og vona, að hv. þm. geti á það fallist.