20.12.1973
Efri deild: 47. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1684 í B-deild Alþingistíðinda. (1561)
Þingfrestun
Forseti (Ásgeir Bjarnason):
Þessi fundur mun verða síðasti fundur Ed. fyrir jól. Ég þakka hv. þdm. fyrir ágætt samstarf og umburðarlyndi í minn garð. Varaforsetum og skrifurum þakka ég ágæta aðstoð. Ég þakka einnig skrifstofustjóra og öðru starfsliði Alþingis vel unnin störf.
Ég óska hv. þdm, gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs. Utanbæjarþm, óska ég góðrar heimferðar og heimkomu og að við megum hittast hér heil, þegar fundir hefjast að nýju á næsta ári.