20.12.1973
Efri deild: 47. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1684 í B-deild Alþingistíðinda. (1562)

Þingfrestun

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Fyrir hönd þdm. vil ég leyfa mér að þakka forseta vinsamleg orð og góðar óskir í okkar garð. En fyrst og fremst vil ég fyrir okkar allra hönd flytja forseta bestu óskir um gleðileg jól og gæfuríkt komandi ár honum og fjölskyldu hans til handa, um leið og ég fyrir hönd þdm. þakka forseta ánægjulega samvinnu, réttláta fundarstjórn og umburðarlyndi við okkur þdm.

Ég ítreka bestu óskir um gleðileg jól og gott og gæfuríkt nýtt ár forseta og fjölskyldu hans til handa og vænti þess, að við megum sjá hann heilan og hressan á nýja árinu, þegar við hittumst hér aftur.

Ég vil leyfa mér að biðja þdm. að staðfesta þessi orð og þessar óskir með því að rísa á fætur. — [Þdm. risu úr sætum.]