21.12.1973
Sameinað þing: 43. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1689 í B-deild Alþingistíðinda. (1580)

Framhaldsfundir eftir þingfrestun

Forsrh. (Ólafur Jóhannesson):

Hinn 14. jan. 1974 var gefið út svo hljóðandi forsetabréf:

„Forseti Íslands gerir kunnugt.

Ég hef ákveðið samkv. till. forsrh., að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda mánudaginn 21. jan. 1974, kl. 14.00.

Gjört í Reykjavík, 14. jan. 1974.

Kristján Eldjárn.

Ólafur Jóhannesson.

Forsetabréf um, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“

Samkv. þessu bréfi, sem lesið var, hefjast nú framhaldsfundir Alþingis. Ég leyfi mér að óska hæstv. forseta og hv. alþm. og starfsfólki Alþingis gleðilegs árs og þakka þeim fyrir liðna árið, um leið og ég býð þá velkomna til þingstarfa á ný og læt í ljós þá ósk og von, að störf okkar megi verða landi og lýð til blessunar.