30.10.1973
Sameinað þing: 9. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 221 í B-deild Alþingistíðinda. (160)
342. mál, umsjónar- og eftirlitsstörf í heimavistarskólum
Menntmrh. (Magnús T. Ólafsson) :
Herra forseti. Svar mitt við fsp. hv. 5. þm. Vesturl. er á . þessa leið :
Menntmrn. er ekki aðili að samningum um gæsluþóknun í heimavistarskólum. Þegar samningum þessum hafði verið sagt upp og ekkert miðaði í átt til nýrra samninga, boðaði ráðuneytisstjóri menntmrn., Birgir Thorlacius, aðila til fundar í rn. 3. nóv. 1971, og sátu þann fund fulltrúi frá fjmrn., frá Sambandi ísl. sveitarfélaga, frá Sambandi ísl. barnakennara og Landssambandi framhaldsskólakennara. Um þrjá samninga var að ræða vegna gæslukostnaðarins: fyrir héraðsskóla, fyrir skyldunámsskóla og fyrir húsmæðraskóla, og var sá síðastnefndi hinn eini af þessum samningum, sem ekki hafði verið sagt upp. Niðurstaða fundarins varð sú, að ráðuneytisstjórinn lagði áherslu á, að samningar um gæslulaunin hæfust þegar í stað og í fullri alvöru. Voru fulltrúar beggja aðila, fjmrn. og kennarasamtakanna, áhugasamir um það. Kom fram á fundinum, að eðlilegt væri, að Samband ísl. sveitarfélaga og menntmrn. fylgdust með þessum samningum, en hvorugur þessara aðila er samningsaðili, þótt niðurstaða slíkra samninga varði báða mjög miklu.
Skömmu eftir þennan fund hófust samningar um gæslustörfin, og var samkomulag undirritað 16. mars 1972. Um samninginn 1972 var fullt samkomulag milli aðila og jafnframt um, að hann skyldi endurskoðaður.
Í framhaldi af þessu samkomulagi, sem gert var 16. mars 1972, eins og áður segir, var komið á fót samstarfsnefnd um málið með fulltrúum frá fjmrn., Landssambandi framhaldsskólakennara, Sambandi ísl. barnakennara, Sambandi ísl. sveitarfélaga og menntmrn. Fyrir 8. mars 1973 tjáði fjmrn., launadeild þess, menntmrn., fjármála- og áætlanadeild þess, að samkomulag væri um að láta reglurnar frá 16, mars 1972 um greiðslur fyrir gæslu gilda fyrir skólaárið 1972–1973. Fjármáladeild menntmrn. hafði símasamband við samningsaðila: fjmrn., Þorstein Geirsson, Samband ísl. barnakennara, Svavar Helgason, Landssamband framhaldsskólakennara, Ólaf S. Ólafsson, og skýrði þeim frá, að menntmrn. mundi senda bréf til allra heimavistarskóla á skyldunámsstigi og tilkynna þeim um framlengingu á gildi greiðslureglnanna frá 1972, að því er varðaði veturinn 1972–1973, og jafnframt var borin undir þá túlkun á nokkrum atriðum greiðslureglnanna, og gerði enginn aðilanna aths. Síðan sendi rn. bréf um þetta efni, dags. 8. mars 1973.
Það, sem felst í samkomulaginu frá 1972, sem endurnýjað var fyrir veturinn 1972–1973, er í aðalatriðum þetta: Þetta eru reglur um greiðslur fyrir umsjónar- og eftirlitsstörf í heimavistarskólum á skyldunámsstigi, settar af fjmrn, fyrir hönd ríkissjóðs með samþykki Sambands ísl. barnakennara og Landssambands framhaldsskólakennara, að höfðu samráði við menntmrn. og Samband ísl. sveitarfélaga, eins og segir í 1. gr. nefndra reglna. Reglurnar sjálfar eru í 6 tölusettum liðum. 1. liður fjallar um, með hvaða hætti þær eru settar, sbr. það, sem ég sagði hér að framan. 2. og 3. liður tiltaka, hver skuli vera hámarksgreiðsla úr ríkissjóði. 4. liður tilgreinir, með hvaða hætti umsjónartímar skulu ákveðnir. 5. liður kveður á um þau launakjör, sem hlutaðeigandi kennarar skulu njóta við gæslustörfin. 6. liður fjallar um, hver skuli inna greiðslur af hendi til umsjónarfólks og eftir hvaða reglum ríkissjóður endurgreiðir þær.
Fulltrúar kennarasamtakanna voru samþykkir kjaraatriðum 5. liðar. Fulltrúi Landssambands framhaldsskólakennara vildi ekki hafa afskipti af öðrum þáttum. Fulltrúi Sambands ísl. barnakennara, sem var valinn úr hópi skólastjóra heimavistarskólanna, lagði fram brtt. við 2. tölul. Fól hún í sér hækkun á hámarksgreiðslum úr ríkissjóði, einkum að því er varðar skóla af stærðinni 10-40 nemendur í heimavist, en lækkun á hámarki til skóla með 70 nemendur og yfir. Fjmrn. hafnaði þessari till.
Samstarfsnefndin í þessu máli mun halda áfram störfum að endurskoðun reglnanna um greiðslur fyrir umsjónar- og eftirlitsstörf í heimavistarskólum á skyldunámsstigi.