22.01.1974
Sameinað þing: 44. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1709 í B-deild Alþingistíðinda. (1600)
Umræður utan dagskrár
Geir Hallgrímsson:
Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr. Ég vil aðeins taka það fram, eins og allir hv. þm. raunar vita, að þegar núv. ríkisstj. var mynduð, var í málefnasamningi hennar ákvæði um varnar- og öryggismál landsins, sem ráðh. túlkuðu á mjög mismunandi vegu.
Þær umr., sem hér hafa farið fram í dag, sýna okkur fram á það, að ráðh, hafa enn ekki komið sér saman um, hvernig túlka skuli þetta ákvæði í málefnasamningnum. Stjórnarsinnar eru líka á öndverðum meiði að þessu leyti. Ég skal ekkert segja um það, hvort núv. ríkisstj. eða stjórnarsinnar koma sér saman um eina og sömu túlkun eða stefnu og framkvæmd í þessum málum eða ekki. Enn sem komið er hefur það ekki komið í ljós, og ríkisstj. er í dag stefnulaus í öryggis- og varnarmálum landsins. Það er sú staðreynd, sem við blasir.
Ég vil af gefnu tilefni orða síðasta ræðumanns taka það fram, að samtök borgara hafa efnt til undirskriftasöfnunar um það, að landið verði áfram varið. Þetta eru samtök, sem snúa sér til borgaranna almennt í landinu, og við skulum láta árangur þeirrar undirskriftasöfnunar tala sínu máli. Undirtektir enn sem komið er benda til þess, að almennur vilji sé meðal landsmanna, að öryggis landsins sé gætt.
Ég vil mælast til þess, að hæstv. utanrrh. og ríkisstj. í heild ráði ekki þessum málum til lykta nema að höfðu samráði við utanrmn., en í utanrmn. hafa þær samningaviðræður við Bandaríkjamenn, sem hófust um miðjan nóv., ekki verið ræddar, en ég tel sjálfsagt, að þær séu ræddar þar og stefnumörkun fari fram þar ekki síður en innan ríkisstj.