22.01.1974
Sameinað þing: 44. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1711 í B-deild Alþingistíðinda. (1603)
161. mál, endurskoðun olíusölunnar
Fyrirspyrjandi (Eggert G. Þorsteinsson) :
Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja fsp. til hæstv. viðskrh., sem prentuð er á þskj. 230, 161. mál. Það er liðinn alllangur tími, síðan þessari fsp. var útbýtt, og liggja til þess nokkuð eðlilegar ástæður, svo sem jólaannir á þinginu í des. og síðan jólaleyfi þm. Á þessum tíma hafa óneitanlega gerst óhugnanlegir atburðir varðandi framleiðslu og sölu á olíu, svo sem öllum er kunnugt, ýmist í formi frétta eða meiri og minni persónulegrar og þungbærrar reynslu.
Öllum hv. alþm. er kunnugt um, að samkv. fréttatilkynningu viðskrn., dags. 29. okt. s. l. haust var skipuð n. 6 manna til þess, eins og í erindisbréfi n, segir, að taka skuli skipulag olíusölunnar til endurskoðunar með það fyrir augum sérstaklega, að sjávarútveginum verði tryggt hagstætt olíuverð.“ Þessi tilvitnun er tekin orðrétt upp úr tilkynningu rn. um fyrrgreinda nefndarskipun.
Á síðasta Alþ, var till. til þál. um sama efni, fluttri af öllum þm. Alþfl., vísað til ríkisstj., og er óþarfi að rifja hana upp hér, en það mun vera meginástæðan til þess, að umrædd nefndarskipun átti sér stað. Þess vegna er nú spurt, hvað liði þessari endurskoðun, sem að vísu var ekki tekin upp fyrr en á s. l. hausti, eins og fyrr var sagt, endurskoðun á skipulagi olíusölu og dreifingar í landinu.
Til viðbótar ágöllum á ríkjandi ástandi við sölu og dreifingu olíu í landinu bætir olíukreppan enn á áhyggjur manna, sér í lagi vegna fiskveiðiflotans og fiskvinnslunnar í landi. Hafa menn hugleitt, hvað gerist í landinu, ef nánast sá eini aðili, sem við verslum við með þessi brennsluefni, nauðsynlegu brennsluefni í dag, dregur að sér höndina, skrúfar fyrir eða dregur með einhverjum hætti úr olíusölunni til landsins? Það er á hendi aðeins eins lands. Þess vegna er spurt: Hvenær er þess að vænta, að hugsanleg endurskipulagning á olíudreifingunni geti komið til framkvæmda?