22.01.1974
Sameinað þing: 44. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1715 í B-deild Alþingistíðinda. (1609)
161. mál, endurskoðun olíusölunnar
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Ég ætla ekki að blanda mér í deilur Alþfl: manna og Alþb.-manna um hugrenningar Sovétmanna, en dreg hins vegar ekki í efa, að hæstv. viðskrh. fari nokkru nær um þann hugsunarhátt, sem þeir hafa, valdamenn þar, heldur en margur annar í þessum þingsölum.
Það, sem hins vegar veldur því, að ég kvaddi mér hljóðs, voru þau ummæli form. Alþbl. og eins af þm. Norðurlands, sem hann viðhafði hér áðan, að aðeins væri í landinu tankrými fyrir olíu til tveggja mánaða. Er að sjálfsögðu mjög kvíðvænlegt fyrir okkur Norðlendinga að hugsa til þessa og gefur tilefni til þess að velta því fyrir sér, á hversu miklum brauðfótum við stöndum á Norðurlandi í orkumálefnum, eins og hæstv. orkumrh. hefur haldið á orkumálum, en hann er nú í æ ríkara mæli að koma á allri framleiðslu rafmagns á Norðurlandi með olíu. Ég spyr þess vegna hæstv, orkumrh.: Hefur hann gert einhverjar ráðstafanir til þess að tryggja raforku Norðlendinga að þessu leyti að tryggja Norðlendingum næga olíu til a. m. k. lengri tíma en tveggja mánaða í sambandi við raforkuframleiðsluna? Orkumrh. er á móti því, að við notum vatnsaflið til að framleiða rafmagn. Hann er á móti því, að við notum gufuaflið til þess að framleiða rafmagn. Og ég hef ekki orðið var við það enn þá, að neitt rafmagn hafi komið á línuna milli Akureyrar og Sauðárkróks. Ég skil vel áhyggjur forustumanns Alþb., Ragnars Arnalds, að hann skuli hafa nokkrar áhyggjur af þeim piltum hans í ráðherrastól, að þeir standi sig ekki nógu vel. Ég spyr: Hefur orkumrh. gert nokkuð í þessu máli?