30.10.1973
Sameinað þing: 9. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 222 í B-deild Alþingistíðinda. (161)

342. mál, umsjónar- og eftirlitsstörf í heimavistarskólum

Fyrirspyrjandi (Jónas Árnason):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. svör hans. Ég held, að það fari ekki á milli mála, að þarna hafi átt sér stað mjög óvenjuleg vinnubrögð að því er varðar afgreiðslu kjaramála. Hinn raunverulegi fulltrúi, sem viðkomandi kennarar og skólastjórar tilnefna, er ekki hafður með í ráðum, þegar reglurnar eru settar. Það er ekki um að ræða af hans hálfu nema þátttöku í þeim tveim fundum, sem ég nefndi, að hann hefði sefið í sept. í fyrra. Það, sem hér gerist, er, að það er hringt í síma, að því virðist, á milli rn., og niðurstaðan verður sú að framlengja þetta, og síðan er hringt til Sambands ísl. barnakennara, sem þarna eiga fyrst og fremst hlut að máli, og þetta er borið undir mann, sem svarar í síma, og sá maður virðist ekki gera aths. Það liggur fyrir eftir sem áður, að raunverulega hefur ekki verið um að ræða formlega þátttöku í þessu samkomulagi eða undirbúningi þessa samkomulags af hálfu þeirra kennara, sem þarna eiga helst hagsmuna að gæta.

Hitt stendur líka óhaggað, að þessir kennarar og skólastjórar fá ekkert að vita um, eftir hvaða reglum þeir hafa verið að vinna um veturinn, fyrr en undir vor, þegar er að ljúka þeirra starfstíma í marsmánuði. Þess vegna leyfi ég mér að spyrja núna, hvort þeim beri að líta svo á, að þessar sömu reglur skuli enn í gildi í vetur. Nú er að hefjast nýtt skólaár. Þeir eru þegar farnir að vinna eftir þeim reglum, sem kunna að gilda, en þeim er hins vegar ekki ljóst, hvaða reglur gilda. Og ef þessar reglur eiga að gilda áfram, sem framlengdar voru í marsmánuði s. l., þá held ég, að ég geti tekið það fram fyrir hönd þeirra hér, að þeir eru síður en svo ánægðir með þær reglur.