23.01.1974
Efri deild: 49. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1739 í B-deild Alþingistíðinda. (1632)
174. mál, viðskiptamenntun á framhaldsskólastigi
Menntmrh. (Magnús T. Ólafsson) :
Herra forseti. Ekki treysti ég mér til að greina hv. 2. þm. Norðurl. e. frá því, hvað vakað hefur fyrir n., sem frv. samdi, með orðalaginu „innan tíðar“, sem viðhaft mun í grg. um stofnun viðskiptaskóla á Akureyri. Hins vegar get ég skýrt hv. þm. frá, hverjar mínar hugmyndir eru um það mál.
Forsenda þess, að unnt sé að hefjast handa að vinna að stofnun slíks skóla, er að sjálfsögðu jákvæð afgreiðsla Alþ. á því frv., sem hér er lagt fyrir, og ég fulltreysti, að hún eigi sér stað á þessu þingi. Að frv. samþykktu tel ég, að matið á hraða við stofnun viðskiptaskóla á Akureyri verði að fara eftir því, hve þörfin á skólastofnunum á Norðurlandi sé talin brýn. Álit mitt er, að þörfin sé það brýn, að sjálfsagt sé, að í fjárl. næsta árs, fjárl. þess árs, sem við tekur að þessu frv. samþykktu, verði fjárveiting til að koma viðskiptaskóla á stofn á Akureyri.