23.01.1974
Neðri deild: 53. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1739 í B-deild Alþingistíðinda. (1634)

134. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Gunnar Thoroddsen:

Herra forseti. Fyrir jól var þetta frv. um breyt. á l. um tekjuskatt og eignarskatt til umr. hér í hv. d. Hv. 1. þm. Reykn. fylgdi því úr hlaði með ítarlegri ræðu og gerði grein fyrir öllum meginatriðum þess. Hæstv. fjmrh. tók síðan til máls og hélt allítarlega ræðu um málið, og er það hvort tveggja, sem gefur mér tilefni til að taka hér til máls nú, að hæstv. ráðh. vék nokkrum orðum til mín og hélt fram í sambandi við þetta mál ýmsum þeim atriðum, sem óhjákvæmilegt er að ræða og leiðrétta.

Meginefni þessa frv. er, eins og hv. 1. þm. Reykn., fyrri flm., rakti, að hækka verulega persónufrádrátt með það meginsjónarmið í huga, að almennar launatekjur verði skattfrjálsar, í öðru lagi að lækka skattstigana, þannig að í stað 25% komi 15%, í stað 35% komi 25% og í stað hámarksins 44% komi 38%, auk þess að breikka stórlega þrepin milli þessara skattprósenta.

Þegar menn virða fyrir sér þetta frv., kemur glöggt fram, að hér er að meginstefnu til byggt á því sama, sem ríkisstj. Ólafs Thors, sem mynduð var í nóv. 1959, beitti sér fyrir þegar í ársbyrjun 1960. Sú breyting, sem þá var gerð á skattalögum og útsvarslögum, var stórfelld. Í rauninni var það stærsta umbót, sem gerð hefur verið í skattamálum á Íslandi. Það var hvort tveggja, að tekjuskattur til ríkisins var stórlækkaður, svo að almennar launatekjur urðu skattfrjálsar, og að sveitarfélögunum var gert kleift að lækka stórum tekjuútsvarið, en sá tekjumissir bættur upp með hluta þeirra af söluskatti. Varðandi tekjuskattsgreiðendur kom þetta svo glögglega fram á þessu fyrsta ári 1960, sem eftirfarandi tölur gefa til kynna. árinu 1959 voru tekjuskattsgreiðendur í landinu 61900 eða rúmlega 79% af öllum framteljendum. En á fyrsta ári eftir þessa breytingu fækkaði skattgreiðendum úr þessum tæpum 62 þús. niður í 15 þús. eða um 19% af framteljendum. Þessar tölur tala vissulega sínu máli.

Um leið og þessi breyting 1964 var stórfelldasta umbót, sem gerð hefur verið í skattamálum hér á landi, þá held ég, að engum blöðum sé um það að fletta, að skattalög núv. hæstv. ríkisstj. eru mestu mistök, sem átt hafa sér stað í skattamálum á Íslandi. Hæstv. fjmrh. hóf mál sitt með því að segja út af þessu frv.: „Fjöllin tóku jóðsótt og fæddist lítil mús.“ Maður skyldi því ætla af upphafi ræðu hans, að honum þætti allt of skammt gengið í niðurfærslutill. okkar sjálfstæðismanna. En það var annað upp á teningnum, þegar lengra var fram haldið. Þó að þetta væri aðeins lítil mús í hans augum í byrjun, hafði hann ekki lengi talað, þegar þetta skattafrv. okkar sjálfstæðismanna var orðið að stórfelldri byltingu í skattamálum á Íslandi, svo stórfelldri byltingu, að ef það næði fram að ganga, yrði ekki aðeins að stöðva allar verklegar framkvæmdir, það mundi ekki nægja, heldur yrði að ganga í tryggingakerfið og skera það niður um helming, eins og hann komst að orði.

Ég skal víkja síðar nokkru nánar að þessum fullyrðingum hæstv. ráðh. um þá gífurlegu byltingu, sem þessi litla mús í hans augum mundi valda.

Hæstv. ráðh. vék svo að nokkrum atriðum, sem hann vildi gagnrýna, gagnrýna harðlega, og varð það fyrst fyrir, að hann taldi, að ákvæði í 4. tölul. 2. gr. væri með endemum, þar sem segir, að heimilt skuli fjmrh. að veita þeim, er við fiskvinnslu starfa, sérstakan frádrátt samkv. nánari ákvæðum í reglugerð. Um þetta segir hæstv. ráðh., að hér sé um hættulega undanþágu að ræða, þetta sé óframkvæmanlegt, að fjmrh. eigi að fara að ganga í frystihúsin og segja við menn: Þú vinnur í fiski, góði, þú átt að fá frádrátt, — og síðan fari hann út á götuna og segi við manninn í gatnagerðinni: Þú ert í götunni, góði, og þú færð ekki neinn frádrátt. — Mig skal ekki undra, þótt hæstv. ráðh. þyki erfitt að bæta þessum snúningum á sig ofan á allt annað annríki.

Hér er um reginmisskilning að ræða, vegna þess að samkv. frv. á að setja reglugerð um þetta ákvæði, nánari framkvæmd þess, eins og ákveðið er í reglugerð um fjölda annarra frádráttarliða. Nú er það þannig, að í lögum eru margs konar frádrættir heimilir. Það hefur lengi verið í skattalögum t. d. sérstakur sjómannafrádráttur, frádráttur vegna hlífðarfata, fæðis, það hefur verið námsfrádráttur og frádráttur af alls konar félagslegum ástæðum, og hefur ekki, að ég ætla, komið svo mjög að sök, að slík ákvæði væru í lögum. En þetta sérstaka ákvæði fordæmir hæstv. ráðh. svo, að hann lýsir yfir sérstakri undrun á því, að slíkir menn sem hv. 5. þm. Reykv. — ég þakka fyrir traustið — skuli bera fram slíka fásinnu.

Nú er það þannig, að verkalýðssamtökin hafa nú tekið skattamálin alveg sérstaklega til meðferðar í kröfum sínum. Það er athyglisvert, að meginkröfur verkalýðssamtakanna í þeim samningum, sem nú standa yfir, eru tvær: Annars vegar kröfur um meiri kauphækkun en áður hefur þekkst, og ber það ekki sérstakan vott um, að launamenn telji, að kjör þeirra hafi batnað eins stórkostlega og hæstv. ríkisstj. heldur fram. Í annan stað eru kröfur verkalýðssamtakanna um stórfelldar breytingar á skattal., sem vinstri stj. hefur lögleitt, en öllum landsmönnum hefur orðið ljóst, að geta ekki staðist lengur.

Í ályktun um skattamál frá kjaramálaráðstefnu Alþýðusambands Íslands 12. okt. 1973 segir svo, með leyfi hæstv. forseta: „Verkalýðsfélögin ítreka þá kröfu, að nauðsynlegt sé, að persónufrádráttur til skatts fyrir einstakling verði ekki lægri en 300 þús. kr.“ Síðan segir, að auk þess fái verkafólk, er vinnur við fiskvinnslu, sérstakan skattfrádrátt, og er tiltekið, að hann þurfi að nema frá 9% upp í 18%.

Það, sem gert er í frv. okkar sjálfstæðismanna, er því, að við höfum tekið upp þessa einróma kröfu verkalýðssamtakanna á Íslandi um, að verkafólk, sem vinnur við fiskvinnslu, fái sérstakan skattfrádrátt. Það er fróðlegt fyrir þá, sem að þessari kröfu hafa staðið, að heyra undirtektir hæstv. ríkisstj. undir það mál.

Það er vitanlegt, að það skapar vissa erfiðleika að hafa undanþágur í skattalögum. En hjá því verður ekki komist, ef menn vilja taka tillit til félagslegra ástæðna, til þeirra ástæðna, að menn eru misjafnlega settir. Sumir þurfa á sérstökum skattfríðindum að halda vegna veikinda, vegna aldurs og vegna slysa, vegna náms eða af öðrum ástæðum. Þróunin í skattamálum hefur verið sú hjá okkur Íslendingum, að við höfum viðurkennt þessi félagslegu, þessi líknartillit meira og meira í okkar skattalögum. Og hvort sem okkur þykir ljúft eða leitt, verður að horfast í augu við það, að hér er í flestum tilvikum um sanngirnismál að ræða og að í reglugerð verður að setja nánari ákvæði um framkvæmd þessa vegna þess, hve oft er ógerlegt að rekja þetta nógu nákvæmlega í lögum.

Ég vil nefna í þessu sambandi eina undanþágu, sem lögfest var fyrir nærri aldarfjórðungi. Þá hafði það gerst, að þegar menn höfðu unnið sjálfir baki brotnu við að byggja íbúðir yfir sig, lagt nótt við dag, unnið allar helgar og aðrar frístundir með fjölskyldu sinni að því að koma upp yfir sig íbúð, — þegar þessu var lokið, gerðist það nokkrum sinnum, að ég ætla, að menn urðu að hrökklast frá íbúð sinni, neyddust til að selja hana eða hún var tekin lögtaki, vegna þess að aukavinna þeirra og skylduliðs þeirra við byggingu íbúðarinnar var af skattyfirvöldum samkv. skattalögum metin til tekna, þeim tekjum bætt ofan á aðrar tekjur viðkomandi og lagður tekjuskattur á það og tekjuútsvar. Til þess að ráða bót á þessu hörmulega ranglæti fluttum við sjálfstæðismenn nokkrir frv. til laga um, að aukavinna manna við byggingu eigin íbúðar skyldi skattfrjáls. Vitanlega heyrðust þau andmæli, að þetta væri óframkvæmanlegt, að taka þannig eina tegund aukavinnu út úr og gera hana skattfrjálsa. Samt sem áður var þetta samþykkt á Alþingi, vegna þess að þm. féllust á, að hér væri um sanngirnis- og nauðsynjamál að ræða. Þetta hefur verið framkvæmt í nær 25 ár, gert stórkostlegt gagn, ýtt mjög undir það, að menn gætu komið upp yfir sig íbúðum, bætt stórlega úr húsnæðisvandræðum á þessum tíma, og nú held ég, að engum detti í hug, að færa þetta aftur í sama horf og áður var. Ég nefni þetta sem dæmi um eina undanþágu, sem var spáð illa fyrir og menn gagnrýndu í upphafi, en hefur reynst vel. þannig að enginn vill nú þar frá breyta.

Þetta var ein fyrsta aths., eitt fyrsta hneykslunarefnið hjá hæstv. ráðh. út af þessu frv., að sú undanþága, sem ætti að ákveða í reglugerð um fiskvinnslu, væri óframkvæmanleg með öllu. En annað hneykslunarefnið er í 4. gr. þessa frv., þar sem segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Frá tekjum þeirra, sem eru á framfæri í foreldrahúsum eða við nám, skal draga það, sem útheimtist þeim til framfæris eða menningar, eftir nánari ákvörðun skattyfirvalda.“

Um þetta fór hæstv. ráðh. sterkum orðum. Hvernig væri fyrir skattstjórana að fara að framkvæma þetta atriði? Drottinn minn dýri, sagði hæstv. ráðh., ef ætti að fara að skilgreina þetta, það stæði í þeim mörgum, skattstjórunum. Nú er aðeins sá galli á fyrir hæstv. ráðh., að þetta ákvæði, sem honum finnst slík hneykslunarhella, er frá orði til orðs samhljóða gildandi lögum, nr. 7 frá 1972, sem hæstv. fjmrh. flutti sjálfur frv. að hér á þingi. Ég held, að frekari orð séu óþörf um þennan lið gagnrýninnar.

Hæstv. ráðh. ræddi um undanþágurnar enn frekar og hélt því fram nú eins og raunar áður, að hér ætti að innleiða brúttóskattálagningu, þ. e. a. s. skattálagningu á brúttótekjur, eins og komið var af hálfu núv. ríkisstj. í kring varðandi útsvörin. Í þeirri grg., sem útbýtt hefur verið til þm. frá n. um skattamál, sem hæstv. ráðh. hefur skipað, er þessu sjónarmiði haldið fram. Nú vil ég taka fram, að sú grg. er að mörgu leyti mjög merkilegt plagg, sem inniheldur margar ágætar upplýsingar. Varðandi hins vegar þá stefnu, að tekjuskattslögum skuli breyta þannig, að leggja skuli á brúttótekjur til að koma í veg fyrir skattsvik eða draga úr þeim, eins og hæstv. ráðh. segir, það tel ég ákaflega vafasama stefnu. Það er að vísu rétt, að heimild til vaxtafrádráttar mun vera misnotuð í ýmsum tilvikum. En þó að hún sé misnotuð í ýmsum tilvikum, kemur hún að mjög góðu gagni fyrir ýmsa þá, sem erfiðast eiga og helst eru hjálpar þurfi í þessum efnum. Ég nefni það sérstaklega sem dæmi, að ákaflega margt ungt fólk hefur á síðustu árum verið að koma upp yfir sig íbúðum, skuldar að sjálfsögðu mikið í þeim, og er vissulega mikilvægt fyrir þetta fólk, sem er að koma undir sig fótum og byggja sitt heimili, að geta dregið vextina af húsbyggingarskuldunum frá tekjum sínum, áður en skattlagt er. Ég sé ekkert við þetta að athuga. Þvert á móti tel ég það miður, ef farið yrði að afnema þessa heimild. Það er þegar búið að afnema hana að því er snertir útsvarsálagninguna, og tel ég það miður farið. Hins vegar er sjálfsagt að reyna að finna leiðir til að koma í veg fyrir þá misnotkun, sem kann að eiga sér stað varðandi vaxtafrádrátt hjá ýmsum aðilum. En það leiðir ekki til þess, að afnema þurfi þessa heimild með öllu.

En það eru fleiri frádráttarliðir heldur en vextir. Eins og ég gat um áðan, eru leyfðir í skattalögum ýmsir frádráttarliðir af líknarástæðum, mannúðarástæðum og félagslegum ástæðum. Ég tel rangt að afnema þessi tillit með því að innleiða hér skattálagningu miðað við brúttótekjur, og tel það spor aftur á bak. Og ég tel það sérstaklega undrunarefni, að sú ríkisstj., sem fjálglegast talar um félagshyggju og félagssjónarmið, eins og þeir taka sér sérstaklega oft í munn, hæstv. fjmrh. og hæstv. iðnrh., að sú ríkisstj. skuli hafa á stefnuskrá sinni að afnema öll tillit og sjónarmið af félagslegum ástæðum með því að boða þessa nýju stefnu í skattamálum.

Að því er snertir skattsvikin, erum við auðvitað öll sammála um, að gera skuli þær ráðstafanir, sem nauðsynlegar eru og framkvæmanlegar til þess að fá sem réttust framtöl. En það er vissulega ekki í þá átt, sem sumar ráðstafanir núv. hæstv. ríkisstj. hafa miðað. T. d. var breyting gerð varðandi frádrátt kostnaðar vegna viðgerðar og viðhalds húsa. Áður lögðu menn fram reikninga fyrir því, sem viðgerðirnar höfðu kostað á hverju ári: Þurfti að vera sundurliðað og nákvæmlega tiltekið, hvað hver maður hafði fengið greitt. Þannig hefur þetta verið til skamms tíma og bæði sanngjarnt, að menn fengju þann raunverulega, nauðsynlega viðhaldskostnað dreginn frá, og auk þess var þetta mikilvægt aðhald í sambandi við skattframtölin. Hæstv. ríkisstj. hefur afnumið þetta og ákveðið, að dregin skuli frá viss prósenta af verðmæti húsanna, hvort sem lítið er gert til viðgerðar eða mikið. Þetta hefur m. a. þá þýðingu, að aðhald í framtölum, sem var vissulega mjög mikilvægt, hefur fallið niður og þar með aukist stórlega hættan á undandrætti tekna á framtölum.

Ég hef ekki orðið var við ýkjamargt annað en þetta frá ríkisstj. hendi í sambandi við skattaframtölin, og verkar það í öfuga átt, fremur til að auka undandrátt og skattsvik heldur en hitt.

Gert er ráð fyrir, að þær till., sem felast í þessu frv., muni minnka tekjur ríkissjóðs af tekjuskatti um 4 milljarða eða því sem næst. Hæstv. fjmrh. hefur sterk orð um það skrum, yfirboð og ábyrgðarleysi, sem þetta beri vott um. Og hæstv. ráðh. orðaði það þannig, að hann efaðist um, að sjálfstæðismenn mundu geta hugsað sér að lifa það af, ef þetta ætti að verða að veruleika. Nú þarf hann ekki að hafa áhyggjur af því. Ég er sannfærður um, að Sjálfstfl. og sjálfstæðismenn mundu lifa af og lifa góðu lífi eftir að hafa komið slíkri umbót í framkvæmd sem þeirri m. a. að verða við óskum verkalýðssamtakanna og launþegasamtakanna í landinu. En ég er ekki eins viss um, að hæstv. ríkisstj. lifi það af að hafna einróma kröfum launþegasamtakanna. Ég er ekki eins viss um, að hún lifi það af, þótt að vísu verði að viðurkenna, að reynslan hafi sýnt, að það er ótrúlega mikil teygja í þessari ríkisstj.

Hæstv. ráðh. telur það ábyrgðarleysi að bera fram slíkt frv. sem þetta. Ég vil í því sambandi fyrst taka fram, að þetta frv. er að meginstefnu það sama og viðreisnarstjórnin sjálf framkvæmdi. Viðreisnarstjórnin framkvæmdi þetta á sínum tíma, 1960, og er því harla undarlegt, að hæstv. ráðh. skuli nú kalla það algert ábyrgðarleysi og óraunhæft, að slíkar till. skuli bornar fram nú, sem framkvæmdar hafa verið í meginatriðum áður. En við skulum nú athuga nánar, hvernig eigi að mæta þessari lækkun á tekjuskatti.

Ég vil í fyrsta lagi taka fram, að víst er, að lagfæring eins og hér er farið fram á á tekjuskattinum, mundi þýða meiri afköst hjá fjölda manna og þar með auknar þjóðartekjur og þjóðarframleiðslu. Það er öllum vitanlegt, að þeir geysiháu skattar, sem nú eru, verða til þess, að margir ágætir menn draga af sér, þeir kæra sig ekki um, þegar þeir eru komnir upp í hámark skattanna, að þræla sér út til þess að láta meginhlutann af þeim viðbótartekjum, sem þeir afla, ganga til hins opinbera. Það er enginn vafi á því, að leiðrétting á sköttunum mundi auka afköstin, auka framtak manna og þar með auka þjóðarframleiðsluna.

Í öðru lagi mundi lagfæring á skattalögunum leiða til betri framtala. Reynslan er sú, að þegar skattar eru komnir úr hófi, eins og nú er, leiðir það alltaf til aukinna skattsvika. Það er reynslan hér eins og annars staðar. Skynsamleg skattalög mundu leiða til betri framtala, eins og reynslan ótvírætt sýndi á árunum 1960 og næstu árum á eftir, þar sem engir menn, sem til þekktu, voru í vafa um, að framtöl urðu miklu réttari en áður hafði verið.

Í þriðja lagi leiðir líka af lækkun skattanna, að innheimta verður hlutfallslega betri en áður. Í grg. frv. er enn fremur minnst á nokkur atriði, sem koma til greina til að bæta upp tekjumissi, og er þar fyrst nefnd breytt efnahagsstefna. Ég held, að enginn geti verið í vafa um, að sú efnahagsstefna, sem hæstv. ríkisstj. hefur beitt, ef stefnu skyldi kalla, hefur átt gífurlegan þátt í verðbólgunni og þar með hinum stórauknu útgjöldum ríkissjóðs. Ef ábyrg efnahagsstefna væri upp tekin og reynt að hafa meiri hemil á vexti verðbólgunnar en verið hefur, þá leiðir af sjálfu sér, að ríkisútgjöldin þurfa ekki að vera í krónutölu eins há. Þetta er öllum mönnum ljóst.

Enn fremur nefnum við í grg. sparnað á ríkisútgjöldum og hagræðingu í ríkisrekstrinum. Þetta finnst hæstv. fjmrh. furðuleg speki. Nú er það þannig, að þegar hæstv. ráðh, spyr, hvað við viljum skera niður eða spara, þá er í rauninni málinu alveg snúið við. Það er skylda hans að gera alþjóð og þingheimi grein fyrir því, hvers vegna hann hefur hækkað útgjöld ríkisins í fjármálaráðherratíð sinni úr rúmum 11 milljörðum í 30 milljarða. Í rauninni ætti enginn fjmrh. að bera fram slíkt fjárlagafrv. eins og hann hefur gert án þess að gera glögga grein fyrir ástæðum hækkananna. Ef á að tala um ábyrgðarleysi, þá er það ríkisstjórnarmegin, en ekki hjá stjórnarandstæðingum.

Þegar hæstv. ráðh. tekur því svo fjarri, að nokkurs staðar sé hægt að spara eða draga úr, þá er mönnum kannske í minni, að þessi sami hæstv. ráðh. hefur í heilan áratug undanfarið sem fulltrúi flokks sins í fjvn. og frsm. heimtað niðurfærslu og sparnað á hverju einasta þingi. Á því ári, sem hann tók við völdum, voru fjárl. komin upp í rúma 11 milljarða. Á þessum árum, meðan fjárl. voru í þeirri upphæð og þaðan af lægri, heimtaði hann niðurskurð og sparnað og þóttist ekki vera í vandræðum með slíkt. En þegar hann sjálfur er búinn að hækka fjárl. úr 11 milljörðum upp í 30 milljarða, er hvergi hægt að koma auga á nokkurn lið, sem hægt sé að skera niður eða spara. Einhvern veginn finnst manni, að þetta standist heldur illa.

Þegar talað er um niðurskurð á fjári., höfum við sjálfstæðismenn bent á það hvað eftir annað, bæði á þessu þingi og eins á síðasta þingi, að hyggilegasta leiðin í því skyni sé sú að ákveða hámark eða þak á útgjöldin. Ef við tökum t. d. fjárl. eins og þau nú eru, 30 milljarðar, þá hefði þurft að fá samkomulag um það eða a. m. k. traustan meirihlutavilja Alþ. og með ríkisstj. fyrir því að ákveða hámark, t. d. að ríkisútgjöldin á árinu 1974 ættu að vera ekki allt að 30 milljörðum, heldur t. d. 26 milljarðar. Þegar menn hefðu komið sér saman um það, tel ég, að vel sé framkvæmanlegt að skipta útgjöldunum innan þessa ramma, lengra mætti ekki ganga, og fjármrn. og fjvn., mundu vel geta lokið því verkefni, ef vilji væri fyrir hendi. Þessi leið, að ákveða fyrir fram ákveðið þak eða hámark, hefur verið reynd annars staðar og gefist vel. og ég held, að það sé tími til þess kominn, að Íslendingar reyni hana líka.

Þegar hæstv. ráðh. talar um, að það sé skylda okkar að benda á tekjur í staðinn, þá er það algerlega rangt. Þegar litið er á hina gífurlegu þenslu ríkisútgjaldanna, er ekki sjálfgefið, að þó að eigi að lækka beina skatta, þá þurfum við að hækka aðra skatta jafnmikið. Til eru ýmsar leiðir, sem ég hef bent á. Hins vegar er sagt í grg. þessa frv., að ef þessi atriði, sem nefnd hafa verið, nægi ekki, verði að taka til athugunar breyttar fjáröflunarleiðir, og er þar að sjálfsögðu fyrst og fremst átt við óbeina skatta. En áður en til slíks er gripið, er skylda ríkisstj. og Alþ. að freista til hins ítrasta, hvort ekki megi færa niður fjárlögin. Í rauninni er bein skylda ríkisvaldsins að gera það vegna þess hversu ríkisútgjöldin eru komin úr öllu hófi. Ég hef minnst á það áður, að á áratugnum 1960–1970 voru útgjöld fjárlaga yfirleitt ekki meiri en milli 16 og 19% af þjóðarframleiðslunni. Á síðustu árum hefur þjóðarframleiðslan aukist gífurlega mikið í krónutölu, fyrst og fremst vegna góðæris í landinu, en ekki síst vegna gífurlegrar verðhækkunar á aðalafurðum okkar erlendis. Í rauninni hefði verið eðlilegt, að hlutfallstala ríkisútgjalda af þjóðarframleiðslu hefði lækkað úr 16–19%, þegar þjóðarframleiðslan hækkaði svona gífurlega. En önnur varð raunin á. Hæstv. núv. ríkisstj. var ekki fyrr komin í valdasess en hún byrjaði að hækka þessa hundraðstölu, þannig að á þessu ári, sem nú er að hefjast, má bera ráð fyrir, að ríkisútgjöldin verði ekki 16 eða 19% eða þaðan af minna af þjóðarframleiðslunni, heldur um 30% af þjóðarframleiðslunni. Auðvitað segir þetta til sín á mörgum sviðum. Þetta lamar atvinnulíf og framtak manna, það íþyngir með sköttum, og fjárl. eru að sjálfsögðu mikill verðbólguvaldur, þegar svo er haldið á málum.

Hæstv. ráðh. minntist á það í ræðu sinni um þetta mál fyrir jól, að óbeinir skattar gangi inn í vísitöluna, en beinir skattar ekki. Ég vil taka það sérstaklega fram sem mína skoðun, að ég er að þessu leyti sammála hæstv. ráðh., að þetta misræmi getur ekki staðist. Skoðun mín er sú, að annaðhvort eigi bæði beinir og óbeinir skattar að verka á vísitöluna eða hvorugir. Þegar hin mikla breyting var gerð á skattakerfinu 1960, kom þetta mál sérstaklega til umræðu, og ég held, að menn hafi þá verið nokkuð sammála um, að aðra hvora leiðina yrði að fara, en hitt, að láta t. d. óbeina skatta verka á vísitöluna, en beina skatta ekki, væri óverjandi gagnvart efnahagslífinu í heild og ranglátt. Þá var sú leið upp tekin eftir ítarlegar athuganir, að hvorir tveggja skyldu verka á vísitöluna, beinir skattar og óbeinir. Sú breyting, sem þá var gerð, verkaði þannig, að hin stórfellda lækkun á tekjuskatti og tekjuútsvari lækkaði vísitöluna, en sá 3% söluskattur, sem þá var lögleiddur, hækkaði hana. Að þessu leyti er ég hæstv. ráðh. sammála um, að æskilegt er að gera breytingu á núgildandi skipulagi, þar sem aðeins óbeinu skattarnir koma inn í vísitöluna, en þeir beinu ekki, að önnur hvor leiðin verði farin, bæði beinir og óbeinir skattar í vísitölunni eða hæði beinir og óbeinir skattar utan hennar.

Ég skal ekki fara öllu fleiri orðum um þetta mál að sinni. Ég vil aðeins út af orðum hæstv. ráðh. taka fram, að okkur sjálfstæðismönnum er full alvara með þetta frv. Við teljum það framkvæmanlegt, höfum bent á þær leiðir, sem við höfum í huga. Sérstaklega vil ég undirstrika, að í meginatriðum er þetta það sama sem Sjálfstfl. og Alþfl. framkvæmdu 1960 með gerbreytingu á skattal. Í rauninni ættu menn ekki að deila um það, að núgildandi skattalög eru óviðunandi. Þau eru óviðunandi, þau eru í rauninni hreint hneyksli, og er furðulegt, að hæstv. ríkisstj. skuli hafa leyft sér að hlutast til um, að afgreidd væru fjárlög hér á Alþ. fyrir jól, sem byggð eru á óbreyttum tekjuskattslögum, þegar vitað er, að ekki aðeins stjórnarandstæðingar, heldur vafalaust þorri manna í stjórnarflokkunum krefjast gagngerðra breytinga hér á og samtök launþega hafa gert um það ítrekaðar samþykktir og kröfur, að hér verði að gera á stórfelldar breytingar, mjög í áttina við það, sem frv. okkar sjálfstæðismanna felur í sér. Hæstv. ráðh. vita vel að í verkalýðssamtökunum hafa verkalýðsleiðtogar, sem standa stjórninni mjög nærri og jafnvel eiga sæti á Alþ. í stjórnarflokkunum, beitt sér fyrir þessu, tekið eindregið undir það, að svo verði að vera. Ég trúi því ekki, að verkalýðsleiðtogar, sem staðið hafa að slíkum samþykktum á kjaramálaráðstefnu Alþýðusambandsins og sett fram þær kröfur, snúist á móti þessu sama máli, þessum sömu lagfæringum, þegar þær eru lagðar fyrir Alþingi.

Ég segi: Það er furðulegt, að ríkisstj. skuli hafa látið afgreiða fjárl. þannig, að byggt er á óbreyttum skattal. En ég vil undirstrika, að það er gersamlega óhugsandi, að unnt verði að byrja á skattaálagningu á þessu ári að óbreyttum lögum. Ég tel útilokað, að farið verði að leggja á skatta eftir núgildandi skattalögum, og ég er sannfærður um, að þjóðin vill það ekki og þjóðin þolir það ekki.