23.01.1974
Neðri deild: 53. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1747 í B-deild Alþingistíðinda. (1635)

134. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson) :

Herra forseti. Ég skal ekki fara að þreyta hv. alþm. á löngum umr. um skattamál að þessu sinni, því að svo oft hafa þau verið á dagskrá, og hér er nú frh. umr., sem upphaf var að fyrir áramótin. En ástæðan til þess, að ég kvaddi mér hljóðs, voru nokkur atriði, sem ég taldi mér nauðsyn að leiðrétta, sem komu fram í ræðu hv. 5. þm. Reykv.

Í fyrsta lagi taldi hann, að þetta frv. þeirra hv. sjálfstæðismanna væri hliðstætt því, sem hefði gerst 1960, þegar þeir gerðu breytingu á skattal., svo sem rétt var hjá honum, lækkun frá þeim skattal., sem þá voru í gildi. Hins vegar varð þróunin sú, að á þessu varð mikil breyting á þeim 12 árum, sem þeir áttu fram undan að sitja í ríkisstj., og skal ég ekki fara út í það. En ástæðan til þess, að ég vil vekja athygli á þessu, er, að sú breyting, sem gerð var með skattal. og tekjustofnal. 1972, var m. a. fólgin í því að leggja niður persónuskattana og sjúkrasamlagsgjöldin, sem einstaklingarnir greiddu. Eins og ég sýndi fram á við 1. umr. fjárl. á s.l. hausti, mundu þessar fjárhæðir hafa numið samkv. fjárlagafrv., eins og það lá þá fyrir, tæpum 2300 millj. kr. Eftir þær hækkanir, sem fjárlagafrv. tók hér á hv. Alþ. í meðferð þingsins, væri um hærri upphæð að ræða, en ég hef ekki útreikning á því nú. Þessu til viðbótar benti ég á það, að sveitarfélögin hefðu orðið að greiða samkv. því kerfi, sem þá gilti, um 1150 millj, kr., svo að alls var þessi fjárhæð 3435 millj. kr. Með núverandi tryggingakerfi verður að taka þetta með í dæmið, þegar gerður er upp tekjuskatturinn nú og tekjuskatturinn samkv. l. 1960, vegna þess að þá var þetta alveg fyrir utan þau lög, en er nú innifalið í tekjuskattsl. Þegar þetta er frá tekið, þá sýndi ég fram á, að hækkunin frá 1971 til 1974, miðað við fjárlagafrv., væri 1233 millj. kr., sú hækkun, sem væri á tekjuskatti einstaklinga, miðað við, að gamla kerfið hefði haldið sér. Þetta er nauðsynlegt, að fylgi, þegar gerður er upp þessi samanburður. Á því vil ég vekja athygli.

Í öðru lagi vil ég taka það fram, eins og ég gerði í fjárlagaræðu minni í haust í sambandi við brúttóskattinn, að ég tel hann þýða það, að frádráttur, eins og vaxtafrádráttur, sjómannafrádráttur og slíkt, gæti ekki átt sér stað, heldur hitt, að sá frádráttur færi fram eftir skattlagninguna, að skattarnir yrðu lækkaðir, en það væri ekki gert áður en álagningin færi fram. Eins tel ég að vaxtafrádrátturinn verði að vera, það sé óhugsandi að fella hann niður, það hef ég oft og mörgum sinnum tekið fram, því að ég tel t. d., að unga fólkið I landinu mundi ekki þola þá byltingu, og ég mundi ekki samþykkja það. Hins vegar tel ég, að það verði að vera einhver takmörkun á vaxtafrádrætti, það sé ekki hægt að hafa hann eins takmarkalausan og hann er nú. Þetta taldi ég hægt að gera, þó að um brúttóálagningu væri að ræða. En ég taldi, að höfuðkostir hennar væru fólgnir í því, að frekar yrði hjá skattsvikum komist heldur en nú væri, því að lögverndun þeirra væri geysilega mikil.

Út af því, sem hv. 5. þm. Reykv. sagði um þá ákvörðun, sem var ákvörðun fjmrh. og ráðuneytisstjóra á sínum tíma í samráði við ríkisskattstjóra, að taka upp prósentu af fasteignamati vegna viðhalds, þá er það mál fyrst og fremst komið frá skattstjórunum. Það var til umr. á fundi skattstjóranna í haust, og það stendur mjög í þeim að breyta því í fyrra kerfi aftur, svo sem ég hafði óskað eftir, að gert yrði, og lét ræða sérstaklega á þessum fundi til þess að heyra álit þeirra, vegna þeirrar rekistefnu, sem alltaf varð út af því, hvort um væri að ræða viðhald eða endurbætur. Þetta mál er nú til sérstakrar athugunar í fjmrn. og hefur nýlega verið rætt m. a. við ríkisskattstjóra. Ég segi fyrir mig, að mér er ljóst, að á þessu hafa komið fram veilur, og ég tel, að það sé því þörf á breytingu. Það mun verða athugað og reynt þá að gera breytingu á því á fyrri hluta þessa árs, sem tæki ekki gildi fyrr en við skattaframtal á næsta ári, svo að ekki sé hægt að segja, að sé komið aftan að gjaldþegnunum þar um. Þetta vildi ég upplýsa.

Um innheimtu á sköttum er það að segja, að úr henni hefur ekki dregið, því að hún mun hafa verið einna best árið 1972, komst upp í 75%, og er það hæsta prósenta heildarskattainnheimtu, sem þá lá fyrir. Hvort hún reynist eins góð á árinu 1973, get ég ekki sagt um enn þá, um það liggja ekki fyrir tölur. En innheimtuprósentan hefur farið vaxandi á síðari árum.

Ég tel eðlilegt, þegar borin er saman þjóðarframleiðslan og skattarnir, að þá sé allt skattakerfið tekið þar til athugunar vegna þeirrar breytingar, sem varð um tilfærslu á útgjöldum ríkis og sveitarfélaga, bæði í sambandi við tryggingarnar, eins og ég hef áður tekið fram, og eins við lögreglumennina, það sé óeðlilegt að taka aðeins ríkisþáttinn í því, það verði að vera heildarskattheimtan hjá því opinbera, þ. e. ríki og sveitarfélögum, til þess að þetta sé sambærilegt.

Ég tek svo undir það með hv. 5. þm. Reykv., að við erum sammála um, að það ber brýna nauðsyn til, að það gildi eitt og sama um beina skatta og óbeina. Ég tel eðlilegast, að hvorir tveggja séu utan vísitölu. Ef annar þátturinn er utan vísitölu, en hinn í vísitölunni, hljóta bæði einn og annar, sem gegna embætti fjmrh., að horfa á þann þáttinn, eins og hann liggur fyrir, og ég held, að við verðum sammála um það. Sú breyting var gerð aftur í tíð viðreisnarstjórnarinnar, að þetta var aðskilið. En eitt af því, sem hefur verið rætt nú við launþegasamtökin í sambandi við hugsanlega lækkun heildarskatta, er einmitt þáttur vísitölunnar hvað viðvíkur óbeinum sköttum.

Ég vil svo að endingu taka fram, að það hafa farið fram umr. og fara fram umr. á milli ríkisstj. annars vegar og launþegasamtakanna hins vegar um þær óskir, sem þau báru fram. Hver niðurstaðan kann að verða, get ég ekki sagt um nú, en þessar umr. eru í gangi og er verið að undirbúa þau verk, sem talið er nauðsynlegt að vinna til þess að átta sig betur á málinu í heild. — Þessu vildi ég nú koma að hér.