24.01.1974
Sameinað þing: 46. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1761 í B-deild Alþingistíðinda. (1648)

41. mál, fjárreiður stjórnmálaflokka

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Það er ekkert nýtt hér á Alþ., að hv. þm. heyri ádeilur hv. 3. landsk. þm. á kerfið, eins og hann kallar það, og hið sameiginlega tryggingarfélag stjórnmálaflokkanna, eins og hann orðar það. En það er nýtt að heyra þennan hv. þm. kvarta undan því að komast ekki inn í kerfið. Það er nýtt að heyra þennan hv. þm. kvarta undan því að fá ekki að vera inni í kerfinu, sem hann er að fordæma.

Ég lofaði því og skal efna það að vera stuttorður hér, en ég get ekki stillt mig um að segja nokkur orð, vegna þess að þessi hv. þm. gerði mjög að umræðuefni, eins og hann orðaði það, stuld aðstandenda Þjóðmála með birtingu auglýsinga. Hann nefnir sérstaklega tvö fyrirtæki, annars vegar fjmrn. og beindi sínum orðum til hæstv. fjmrh. og í öðru lagi Reykjavíkurborg. Ég hafði því miður ekki tíma til að fara í gegnum mörg tbl. af Nýju landi, málgagni þessa hv. þm., en það vildi svo vel til, að það þurfti ekki nema tvö nýjustu hlöðin til þess að sjá eitthvað álíka og hann sjálfur var að fordæma hvað harðast áðan og kvarta um.

Í tölublaði Nýs lands, sem út kom 17. jan., ber að líta eftirfarandi tilkynningu til söluskattsgreiðenda frá fjmrn., með leyfi hæstv. forseta: „Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að gjalddagi söluskatts fyrir desembermánuð er 15. jan.“ — í blaði, sem kom út 17. jan. Það vill oft verða svo, að þegar menn eru komnir út á kaldan klaka, þá grípa þeir dauðahaldi í hvaða streng, sem fyrir er, og það hefur farið svo fyrir þessum hv. þm. Hann er vissulega einn á eyðimerkurgöngunni í íslenskum stjórnmálum. Það kom berlega fram í ræðu hans hér áðan.

Ég leitaði í blaði, sem kom út í dag, 24. jan. Ég er búinn að vitna til fjmrn., og ég ætla í hinu tilfellinu að vitna til þess, sem hv. þm. kom sjálfur með, þ. e. Reykjavíkurborgar. Hún á greinilega að borga þessa auglýsingu í Nýju landi. Það er um úthlutun lóða undir íbúðarhús í Reykjavík, og umsóknum átti skilyrðislaust að vera búið að skila 23. jan., þ. e. a. s. degi áður en Nýtt land kom út og birtir auglýsinguna.

Það er sama ofan í hvaða mál maður fer, sem þessi hv. þm. kemur með, það er allt á þessa sveifina, allt saman. Það er ekki eitt einasta mál, sem maður veltir fyrir sér eða nennir í raun og veru, ef má nota svo ljót orð, að fara ofan í, sem út úr munni þessa bv. þm. kemur, sem ekki er í raun og veru í sannleika sagt hægt að reka öfugt ofan í hann aftur við fyrsta tækifæri.

Ég læt þetta nægja að sinni.