28.01.1974
Efri deild: 51. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1778 í B-deild Alþingistíðinda. (1660)
Umræður utan dagskrár
Geir Hallgrímsson:
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. utanrrh. svör hans, svo langt sem þau náðu. Ég verð þó að gera örstutta aths. við svör hans.
Ég tel ekki óeðlilegt, að samráð sé haft við Norðmenn t. d. eða fastaráð Atlantshafsbandalagsins, að því er snertir birtingu þeirra álitsgerða eða skjala, sem frá þeim hafa komið. En ég tel nauðsynlegt, bæði varðandi þessi skjöl og önnur þau gögn, sem fyrir liggja í sambandi við öryggis- og varnarmál landsins, að þau séu sem flest birt og gerð almenningi kunn, þannig að skoðanamyndun almennings byggist á traustum grundvelli.
Mér eru það vonbrigði, að hæstv. utanrrh. vill ekki birta eigin till. í heild, því að mér er nær að halda, að sá útdráttur, sem hann gaf í umræddum sjónvarpsþætti, hafi verið allófullkominn og þar séu engan veginn öll kurl til grafar komin, að því er snertir till. hæstv. ráðh. Þær verða auðvitað umræðuefni manna á meðal á grundvelli þess, sem hann sagði, og getur það þá ekki verið nema með ófullkomnum hætti. Því er nauðsynlegt, að þær séu birtar í heild, úr því að þær eru gerðar að umtalsefni.
Ég vil svo segja það, að hæstv. utanrrh. og ríkisstj. hafa nokkuð látið það fram koma og raunar allmjög, að ný vinnubrögð hafi verið tekin upp í tíð núv. ríkisstj., að því er snertir samráð við utanrmn. um utanríkismál. Ég er að vísu ekki kunnugur, hvernig slíku samráði var áður háttað, en það er ekki við mikið að jafnast, þegar litið er á þá starfshætti, sem núv. ríkisstj. hefur viðhaft í sambandi við utanríkismál, t. d. landhelgismál, og nú öryggis- og varnarmál. Það hefur ekki verið svo, að ráðgast hafi verið um þessi mál almennt, áður en ákvarðanir hafa verið teknar, heldur alls ekki fyrr en búið var að taka ákvörðun innan ríkisstj. á þessu sviði.
Ég óskaði eftir fundi í utanrmn. til að ræða öryggis- og varnarmál landsins, þegar ég kvaddi mér nú hljóðs, og beindi þeirri ósk og þeirri kröfu sérstaklega til utanrrh. Hann hefur tekið út af fyrir sig vel í þá ósk og þá kröfu, og treysti ég honum til að fylgja því eftir við form. utanrmn., að þessi mál verði tekin þar á dagskrá. Okkur hafa þar verið afhent gögn, frásögn af viðræðunum við Bandaríkjamenn í nóv. s. l., skömmu eftir að þeim lauk. Var ætlunin, að því er ég hélt, að halda þar síðan fund. Það hefur dregist úr hömlu. Ég hef ástæðu til að ætla, að sá dráttur stafi af því, að ríkisstjórnarflokkarnir séu í hrossakaupum sín á milli um lausn þessara mála, þar sem ekki er fyrst og fremst tekið tillit til öryggis landsins, eins og vera ber, heldur til skammtíma flokkspólitískra hagsmunamála, eins og á þau er litið af hálfu hæstv. ráðherra. Ég tel þetta miður farið og ítreka því og endurtek ósk mína og kröfu um, að fundur verði haldinn í utanrmn.