28.01.1974
Efri deild: 51. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1797 í B-deild Alþingistíðinda. (1665)

176. mál, jarðgufuvirkjun við Kröflu eða Námafjall

Steingrímur Hermannsson:

Herra forseti. Með þeim orðum, sem ég sagði hér áðan um orkumálin almennt, gerði ég mér vonir um, að hér gætu orðið málefnalegar umr. um þetta mál, sem er svo mjög á dagskrá nú. Ég gleymdi því, að hv. síðasti ræðumaður er nýbúinn að taka sæti í þessari hv. d. Ef ég hefði munað það, þá hefði ég skilið, að slíkt var borin von. Hann hefur sýnt það því miður í þeim umr., sem hann hefur tekið þátt í, að áhugi virðist þar vera meiri fyrir öðru en málefnalegum umr., eins og t. d. hvar kaffistofa stjórnarráðsins er staðsett o. s. frv.

En hann byggði sumt af því, sem hann sagði, á því sem ég sagði hér áðan, og skal ég aðeins með nokkrum orðum leiðrétta sumt það, sem kom fram hjá honum, tvö, þrjú atriði eða svo.

Ég vona, að hv. þm. hafi tekið eftir því, að ég lagði áherslu á í mínum málflutningi, hve aðdragandi að þessum málum er langur. Það tekur bæði mörg ár að rannsaka og síðan að kanna og svo til útboðs og bygginga á orkuveri.

Staðreyndin er vitanlega sú, að hæstv. ríkisstj., sú sem nú situr, tók við þessum málum í algeru öngþveiti, slíku öngþveiti, að það væri líklega efni í reyfara betri en flesta aðra, sem skrifaðir hafa verið. Það var ein virkjun, sem má segja, að hafi verið tilbúin til framkvæmda, og það var Sigölduvirkjun, annað var ekki til. Ég hygg, að Sigölduvirkjun hafi fremur verið tilbúin til framkvæmda vegna árvekni Landsvirkjunarmanna heldur en þeirrar ríkisstj. eða þeirra hæstv. ráðh., sem þá sátu. Og áreiðanlegt er, að orkumál Norðurlands eru þó alveg sérstakur kapítuli í þessu öllu saman, það öngþveiti, sem þar var orðið, m. a. og ekki síst fyrir aðgerðaleysi eða fyrir fálm þeirra manna, sem fóru með þessi mál í hæstv. fyrrv. ríkisstj. Þetta eru staðreyndir í málinu.

Nú hefur verið gripið til og gert það, sem unnt var strax. Sigölduvirkjun var hleypt af stokkunum, unnið er að mikilvægri virkjun á Vestfjörðum, sem einnig hófst í tíð þessarar ríkisstj., Mjólkárvirkjun, sem bætir þar við 5,7 MW og — ég vil geta þess hér — hefði verið eðlilegur og jafnvel nægilegur áfangi fyrstu 2–3 árin a. m. k. í venjulegri notkun, ef upphitunarþörfin hefði ekki orðið svo geigvænleg eins og hún sýnir sig nú að vera vegna þess ástands, sem hefur skapast. Á Austurlandi er einnig virkjað, svo að ég nefni þær virkjanir, sem hafist hafa nú á allra síðustu árum.

Hv. þm. virtist vilja kenna hæstv. ráðh. um erfiðleikana í olíumálum. Þó að þeir sjálfstæðismenn vilji kenna þessari ríkisstj. og ráðh. hennar um flestallt, hef ég ekki heyrt þetta fyrr. Þetta ástand skapaðist, eins og hann hlýtur að gera sér grein fyrir, ef hann gefur sér tíma til að hugsa málin, nú undir áramótin, þ. e. a. s. eftir styrjöldina í Austurlöndum nær. Var alls ekki séð fyrir, að svo fljótt yrði nauðsynlegt að fullnægja þessari orkuþörf.

Ég held, að ég þurfi ekki að rökræða þetta hér. Ég held, að hver einasti maður hljóti að sjá það. En það, sem ég vildi gjarnan fá hér fram með þeirri spurningu, sem ég beindi til hæstv. ráðh. í þessu sambandi, eru upplýsingar um það, sem ég veit, að verið er að skoða og fólk vill heyra. Mér fannst sjálfsagt, að fyrsta tækifærið væri notað til þess að fá þær upplýsingar fram.

Eins og ég sagði áðan, ætla ég ekki að eltast við þann málflutning, sem hv. síðasti ræðumaður hafði hér í frammi. Ég læt nægja að segja þetta, þó að um það mætti vitanlega flytja langt mál. Ég vona, að hæstv. ráðh, sjái sér fært að svara, þótt tíminn sé nú farinn til lítils, ýmsum þeim mikilvægu spurningum, sem ég lagði fram áðan.