28.01.1974
Neðri deild: 55. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1814 í B-deild Alþingistíðinda. (1678)

Umræður utan dagskrár

Ragnhildur Helgadóttir:

Herra forseti. Tvær síðustu setningarnar í ræðu hv. síðasta ræðumanns hefðu sannarlega getað átt við um það erindi, sem hann átti hér upp í ræðustólinn hið fyrra sinn. Hv. þm. á varla orð til að lýsa hneykslun sinni og varla nógu sterk orð til að vanda um við fjölmiðla ríkisins um það, hvernig halda beri á túlkun hinna misjöfnu sjónarmiða í varnarmálum. Tilefni þessarar hneykslunar hv. þm. var sjónvarpsþátturinn s.l. föstudagskvöld, og aðalhneykslunarefnið var, að það skyldi vera formaður Sjálfstfl., sem hafði síðasta orðið í þeim þætti. Það hafa ekki verið fá tækifærin, sem fulltrúar ríkisstj., ráðh., utanrrh., hafa haft til þess að koma fram í sjónvarpi með sín sjónarmið. Þeir hafa mjög mikinn aðgang að fréttatímum fjölmiðlanna og nota hann óspart, svo að ég get ekki séð, að það sé sérstakt hneykslunarefni, þó að í einum sjónvarpsþætti, þar sem fram koma ýmis sjónarmið, sé einhver annar en hæstv. ráðh., sem á síðasta orðið. Það er engin algild regla í lýðræðisríki, að það séu alltaf ráðh., sem fái mest að tala og síðast að tala.

Annað aðaláhyggjuefni hv. 5. þm. Vesturl. var það, að honum virtist sem nokkrir þátttakenda í þessum sjónvarpsþætti teldu sig koma fram fyrir hönd samtakanna Varins lands. Þessi samtök, ef samtök skyldi kalla, eru 14 einstaklingar, sem hafa tekið sig til og gengist fyrir undirskriftasöfnun til þess að gefa almenningi kost á að túlka sjónarmið, sem e.t.v. hafa of sjaldan komið fram. Þessi hópur er í augum hv. þm. orðinn svo ógnvekjandi, að hann telur nú fulltrúa allra stjórnarandstöðuflokkanna koma fram fyrir hönd þessara manna. Þeir mega sannarlega vel við una það álit, sem hv. þm. hefur á þeim.

Ef farið er nánar út í það, hvort sjónvarpið misnotar aðstöðu sína til að gera ýmsum sjónarmiðum mishátt undir höfði, er fyrst á það að lita, að það er mikill vandi að vera fréttamaður, og ég skal ekki um það dæma, hvað rétt reynist í fréttamati hverju sinni. En svo mikið er víst, að okkur, sem aðhyllumst sjónarmið, við skulum kalla það sjónarmið samtakanna Varins lands, hefur fundist, að fylgismenn sjónarmiða herstöðvaandstæðinga hafi ekki þurft að kvarta yfir tillitsleysi sjónvarpsins gagnvart þeim. Það þarf ekki að minnast margra atburða, til þess að það verði ljóst, að oft hafa herstöðvaandstæðingar efnt til aðgerða af ýmsu tagi hér í borginni, sett á svið furðulegustu sjónarspil, kvatt þar til ljósmyndara frá sjónvarpi, og ekki hefur staðið á þeim að sýna bæði myndir og flytja frásagnir af því, ef einhverjir óróaseggir hafa annaðhvort kastað eggjum eða einhverju öðru matvælakyns að ráðamönnum, hvort heldur voru erlendir eða innlendir. Minna má á, þegar Rogers utanrrh. Bandaríkjanna kom hér á dögunum, og minna má á, þegar Nixon og Pompidou hittust hérna, og ýmis önnur atvík hafa orðið til þess, að sjónvarpið hefur séð ástæðu til þess að fara á stúfana og sýna tiltektir herstöðvaandstæðinga.

Ég get ekki séð, þegar þetta er haft í huga, að það sé tiltökumál, þó að í einum samtalsþætti um varnarmál sé formanni Sjálfstfl. leyft að hafa síðasta orðið. Eða hvert er traust þessa hv. þm. á skoðanastyrk þess fólks, sem honum fylgir að málum, ef hann heldur, að þetta atriði eitt vegi svo þungt gagnvart þeim skoðunum, sem hann túlkar? Telur hann þetta svo hættulegt, að tilefni gefist til þess að átelja sjónvarpið sérstaklega fyrir að hafa ekki sýnt honum og hans fylgismönnum að þessu sinni þá þægð, sem hefur oft birst þar.

Mig langar að víkja að tveimur öðrum atriðum, fyrst ég er komin hér í ræðustól. (Forseti: Ég vænti þess, að hv. ræðumaður geti lokið ræðu sinni á mjög skömmum tíma.) Ég bið hæstv. forseta velvirðingar á þessu, en ástæðan til þess, að ég varð örlitið langorðari en ég ætlaði, var sú, að ég taldi mig vera á mælendaskrá, áður en hv. 5. þm. Vesturl. kom hér í ræðustól. Og það má segja, að forseti spari mér aðra ferð í ræðustól í rauninni með því að láta hv. 5. þm. Vesturl. vera hér á undan mér. Þess vegna hef ég þegar svarað ræðu hans, en langaði aðeins til að nefna tvö atriði, ég skal vera mjög fljót.

Annað var það, að ég vildi vekja athygli á því, að hæstv. forsrh. hefur sýnt þeim, sem hér kvöddu hér hljóðs utan dagskrár í upphafi fundar, þá vinsemd að taka með nokkrum hætti undir það, sem þeim lá á hjarta. Hæstv. forsrh. lýsti yfir í ræðu sinni nú rétt áðan, að það væri í hæsta máta óviðeigandi, að orðsending eins ríkis til annars verði að opinberu máli, meðan á samningum stendur. Þar með hefur hann hirt utanrrh., flokksbróður sinn og samstarfsmann. Og það var það, sem hneykslun olli hjá mörgum stjórnarandstæðingum og vafalaust fleirum, að hæstv. utanrrh. skyldi með þeim hætti, sem hann gerði s.l. föstudag, fara með trúnaðarmál, án þess þó að skýra nánar frá því, hvað í því fælist. (Forsrh.: Það var norska stjórnin, sem ég átti við.) Já, ef það á við um norsku stjórnina, þá get ég ekki séð annað en íslenska ríkisstj. verði að hlíta sömu siðferðisreglum.

Í fyrri ræðu hæstv. forsrh. minntist hann á hugtak, sem ég held, að sé nýtt í umr. um varnarmál hér á hv. Alþ., og þar kemur enn ein túlkun á ákvæði stjórnarsáttmálans um varnarmál. Eru þær þó margar orðnar til og fyrir löngu. Þessi túlkun var, að nú hét það í munni hæstv. forsrh., að stefnt skyldi að því að framkvæma það ákvæði stjórnarsáttmálans, að héðan skyldi „fast varnarlið hverfa“ í áföngum á kjörtímabilinu. Að vísu er mér kannske farið að förlast minni í sambandi við stjórnarsáttmálann, en ég man ekki til þess, að þar standi „fast herlið“ eða „fast varnarlið“. Ég held, að þar standi bara „herlið“. Spurningin er: Skiptir það máli í huga einhvers stjórnarflokkanna, hvort herliðið er — ég veit ekki, hvort ég á að segja: fast eða laust, eða hvort flugsveitin er föst eða hreyfanleg, eins og hæstv. utanrrh. orðaði það? Hæstv. forsrh. tvítók þetta hugtak í ræðu sinni, ég vek athygli á því: fast herlið. Og ég spyr: Er það til þess að setja sýróp á kökuna fyrir Alþb., þegar bent er á með nokkrum hætti í þessum orðum, að hér verði herlið áfram með einhverjum hætti, í einhverjum búningi, en alla vega ekki fast.

Herra forseti. Ég mun ekki eyða, frekari tíma þd. í það að hlusta á mitt mál. Ég vil aðeins ljúka þessum orðum á því að vekja athygli hv. 5. þm. Vesturl. og annarra þm. á því, að það var kannske ekki alveg óeðlilegt, að honum varð hér mismæli þegar hann ætlaði að nefna samtökin Varið land, en sagði óvart: friðlýst land. Það er kannske vegna þess, sem rétt er, að til þess að hér geti verið friðlýst land, þarf hér að vera varið land.