28.01.1974
Neðri deild: 55. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1825 í B-deild Alþingistíðinda. (1685)

190. mál, útflutningsgjald af loðnuafurðum

Ingólfur Jónsson:

Herra forseti. Ástæðan til þess, að ég kveð mér hljóðs í þessu máli, er sú, að mig langar til þess að fá ýmsar upplýsingar hjá hæstv. sjútvrh. um sölu á loðnu og loðnuafurðum og útlitið í þeim málum.

Ég sé ekki ástæðu til að mæla gegn þessu frv. Það má vel vera, að það sé eðlileg leið til tekjuöflunar að skattleggja loðnuafurðir til að greiða niður olíu. Ef loðnan veiðist eins og vonir standa til og útlit er fyrir nú í byrjun vertíðar, verður það mikill afli og miklar tekjur, sem útgerðin fær, ef það verð, sem menn höfðu hugmyndir um fyrir nokkrum dögum eða nokkrum víkum, reynist vera rétt. En ástæðan til þess, að ég vil spyrja hæstv. ráðh., er sú, að nú hafa menn sagt sín á milli, sem eiga að vera kunnugir þessum málum, að mikil óvissa ríki um söluverð á loðnu og loðnuafurðum. Sá hv. þm., sem talaði hér áðan, fulltrúi í viðskrn., sagði: „Það er allt í óvissu um verð á loðnunni.“ Það er einmitt þetta, sem veldur ýmsum áhyggjum nú. Loðnan hefur verið verðlögð innanlands til útgerðarmanna og til sjómanna. En það er upplýst, að það sé mikið óselt af þeirri loðnu, sem búist er við, að veidd verði.

Frystihúsin hafa ekki enn samþykkt að taka loðnu til frystingar, vegna þess að verð á frystri loðnu í Japan hefur enn ekki verið ákveðið. Japanir kaupa a.m.k. 30 þús. tonn af frystri loðnu, en verðið er ekki enn komið, söluverðið. En innkaupsverðið, hráefnisverðið, er ákveðið. Þess vegna er eðlilegt, að frystihúsin spyrji á hvaða verði sé hægt að selja loðnuna, eftir að þau hafa borgað tilskilið verð og eftir að sá kostnaður hefur bæst við, sem af frystingunni leiðir? Ég veit, að hæstv, sjútvrh. vill kynna .sér þessi mál vel, og ég gæti trúað því, að umr. um þetta mál lyki ekki í dag og hæstv. ráðh. fengi þess vegna tíma til þess að kynna sér útlitið í þessum málum betur en hann hefur enn gert. Það, sem hæstv. ráðh. sagði hér áðan, var harla óljóst. Það var nánast það, að hann vonaðist til þess, að úr rættist. Allir hv. þm. bera von í brjósti. En þm. er mikið í mun að vita, hvernig málin standa og hvernig horfurnar eru.

Pólverjar keyptu mikið af loðnumjöli af Íslendingum á s.l. ári. Mig minnir, að það hafi verið 25 þús. tonn. Það var stór hluti af loðnumjölinu í fyrra. Pólverjar komu hingað til lands og vildu gera kaup á loðnumjöli aftur. En þeir fóru héðan án þess að kaupa. Eitthvað bar á milli. Vitað er, að Pólverjar vildu borga hátt verð fyrir loðnu, mjög hátt verð og miklu hærra verð en í fyrra, og sagt hefur verið, að það verð, sem Pólverjar buðu, hafi raunverulega fullnægt því að vera í samræmi við ákvörðunarverð á hráefninu hér heima. Pólverjar fóru, en það hefur verið sagt, að þeir séu að semja við Norðmenn eða jafnvel búnir að semja við Norðmenn um kaup á því mjölmagni, sem þeir ætluðu að kaupa hér. Það hefur verið sagt, að þeir hafi samið við Norðmenn um það verð, sem þeir buðust til að greiða fyrir íslenska mjölið. Ég veit, að hæstv. ráðh. vill kynna sér þetta, og ég veit, að hann vill svara þessum fsp. og veita þingheimi nauðsynlegar upplýsingar í þessu efni.

Það er allt í óvissu um sölu á miklum hluta loðnuafurðanna, sagði hv. þm., sem talaði hér áðan. Hann hlýtur að vera kunnugur þessum málum, þar sem hann er starfandi í viðskrn. En við skulum vona, að úr rætist. Við vonum, að það veiðist mikil loðna, og áætlun hefur verið gerð um mikla loðnuveiði. Það hefur hæstv. ríkisstj. gert eða látið sína kunnáttumenn gera. Það var gert á árinu 1973. Þá var áætlað, að loðnuveiðin gæti orðið allt að því helmingi meiri en hún var 1972. Þó hafði loðnuveiði 1972 verið sú mesta, sem hafði orðið hér á landi nokkru sinni. Mér er ekki alveg kunnugt um, hve mikið magn hæstv. ríkisstj. hefur áætlað, að veiddist í ár, en það er allmiklu meira en í fyrra. Við skulum vona, að sú fróma áætlun standist. En um leið og við óskum þess, er nauðsynlegt, að við fáum það verð fyrir þessar afurðir, sem útgerðin og frystihúsin þurfa að borga fyrir hana. Fjarri fer því, að ég ætli að koma með aðfinnslur fyrir það, að ekki varð af samningum við Pólverja. En enginn vafi er á því, að það mun margur sjá eftir því að hafa ekki gert þá samninga, ef verðið skyldi falla, ef ansjósan færi nú að veiðast við strendur Perú og mikið mjöl yrði á markaðnum annars staðar frá. Þá hefði það örugglega afleiðingar hér og áhrif á verðið. En við vonum, að úr rætist.

Það er eðlilegt, að hæstv. ráðh. afli sér allra þeirra upplýsinga, sem fáanlegar eru því að það er mikið í húfi um það, hvort íslendingar fá að þessu sinni það verð fyrir loðnuafurðirnar, sem hráefnisverðið miðast við. Má segja, að ef það tækist ekki, gæti það valdið mikilli röskun í okkar efnahagsmálum, í okkar útgerðarmálum. Það er búið að reikna með þessu háa verði og þessum miklu afla, og ef verðið dettur niður, verður röskunin og áfallið meira en nokkur hefur látið sig dreyma um. Ég er alls ekki að spá því, að svo verði, og kannske er sú svartsýni, sem hefur komið fram hjá einstökum mönnum í þessum málum, þegar um þau hefur verið rætt, alveg óþörf. Það væri mjög gott, ef hæstv. ráðh. gæti að fengnum bestu upplýsingum létt áhyggjum af ýmsum, sem hafa þær þungur nú vegna óvissunnar um sölu loðnuafurða.

Olíuvandinn er svo mál út af fyrir sig, og enginn vafi er á því, að hæstv. sjútvrh. var í vanda staddur í sambandi við olíuhækkunina. Það hefði haft áhrif á verðlagið á loðnunni til sjómanna og útgerðarmanna, ef olían hefði hækkað til fiskiskipa. Fari svo, eins og menn vona, að mikið veiðist og gott verð fáist, þá má segja, að það sé réttmætt að skattleggja loðnuna til þess að greiða niður olíuna. Og þá getur loðnan vissulega staðið undir þessum skatti. Við skulum vona, að það verði. En eins og hv. þm. Stefán Gunnlaugsson sagði hér áðan: Hvað tekur svo við 1. júní? Loðnusjóðurinn endist ekki og á ekki að endast nema til maíloka? Hæstv. ráðh, sagði: „Það er samkomulag um, að það verði óbreyttur afkomugrundvöllur sjávarútvegsins eftir 31. maí.“ En því hefur ekki verið heitið að hafa óbreytt olíuverð. En ef olíuverðið verður látið hækka, en afkomugrundvöllur útvegsins á eigi að síður að verða óbreyttur, þ.e.a.s. ekki óhagstæðari, þá verður að gera einhverjar ráðstafanir jafngóðar fyrir útgerðina, sem nemur niðurgreiðslum á olíunni, Hæstv, ráðh. hefur e.t.v. sínar hugmyndir um, hvernig með það mál skuli fara, en það er hætt við, að útgerðin geri kröfur um, að olíuverðið verði greitt niður áfram, úr því að einu sinni var byrjað á því.

Það hefur verið minnst á, að hækkun olíuverðsins hafi viðtækari áhrif en þetta. T.d. hefur verið minnst á húskyndingarkostnaðinn. Það verður áreiðanlega erfitt ýmsum láglaunamönnum, bæði í sveitum og í þéttbýli, að borga 10–12 þús. kr. á mánuði í kyndingarkostnað vegna olíuhækkunarinnar. Og það verður áreiðanlega til umhugsunar fyrir hæstv. ríkisstj. og Alþ. að athuga, hvort nokkur möguleiki er á því að lækka þennan kostnað. En út í það skal ég ekki fara nánar að þessu sinni. Ég ætlaði ekki í tilefni af þessum brbl. að halda hér langa ræðu, heldur tók ég til máls, eins og ég áðan sagði til þess að fá upplýsingar hjá hæstv. ráðh., sem ég geri ekki neinar kröfur til að verði gefnar í dag. Ég teldi æskilegra, að því yrði frestað til næsta fundar, þegar þetta mál verður á dagskrá, því að þá hefur hæstv. ráðh. tækifæri til að afla sér viðtækra upplýsinga í þessu máli, og hann hefur betri aðstöðu til þess en einstakir þm.