29.01.1974
Sameinað þing: 47. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1828 í B-deild Alþingistíðinda. (1688)

184. mál, mjólkursölumál

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Á þskj. 331 er fsp. frá hv. þm. Ellert B. Schram, 9. landsk., um starf mjólkursölunefndar. Hinn 21. mars 1973 skipaði landbrn. n. til að athuga þessi mál, og segir svo í erindisbréfi n., með leyfi hæstv. forseta: „Verkefni n. er að kynna sér fyrirkomulag á sölu og dreifingu mjólkur, rjóma, skyns og skyldra mjólkurvara á þéttbýlissvæðum víðs vegar um landið og gera till. um breytingar, ef þurfa þykir.“

Í n. voru valdir eftirtaldir menn: Sveinn Tryggvason framkvæmdastjóri, sem er form. n., skipaður af landbrh. án tilnefningar, dr. Bjarni Helgason jarðvegsfræðingur, sem var skipaður skv. tilnefningu Neytendasamtakanna, Brynjólfur Sandholt héraðsdýralæknir skv. tilnefningu heilbrrn., Hreinn Sumarliðason kaupmaður skv. tilnefningu Kaupmannasamtakanna, Ólafur Andrésson bóndi í Sogni skv. tilnefningu Stéttarsambands bænda, Stefán Björnsson forstjóri Mjólkursamsölunnar skv. tilnefningu Mjólkursamsölunnar og Þorsteinn Sveinsson kaupfélagsstjóri á Egilsstöðum skv. tilnefningu SÍS. Ritari n. var ráðinn með samþykki landbrh. Guðmundur Sigþórsson búnaðarhagfræðingur.

N. hélt sinn fyrsta fund skömmu eftir að hún tók til starfa og byrjaði á því að safna upplýsingum um fyrirkomulag mjólkursölumála um land allt, þar sem könnuð var staðsetning mjólkursölu með tilliti til kaupendafjölda, dreifingarmagns og fjarlægða. Einnig var könnuð einokunaraðstaða Mjólkursamsölunnar og fjöldi umsækjenda um mjólkursölu, sem ekki hafa fengið söluleyfi. N. hefur á grundvelli þessara og fleiri upplýsinga unnið að könnun á dreifingarmálum mjólkur og álitsgerð um þau.

Starf n. hefur verið mjög umfangsmikið og er komið á lokastig. Má vænta úrlausnar innan skamms tíma í formi nál., sem n. mun skila mjög fljótlega. Af þeim viðræðum, sem ég hef átt við form. n., er ljóst, að stutt er í það, að n. skili áliti, en hann hefur í samtölum við mig talið nauðsyn bera til að taka til þessa nokkurn tíma, og hef ég látið n. um tímasetningu á þessu máli. Eftir þeim horfum, sem ég hef um þetta, sýnist mér, að það ætti ekki að dragast lengi, að málið komi til meðferðar landbrn. og verði komið greinargott nál. um málið í heild, svo að auðvelt sé að taka ákvörðun út frá því.