29.01.1974
Sameinað þing: 47. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1831 í B-deild Alþingistíðinda. (1692)

400. mál, húsnæðismál Menntaskólans við Lækjargötu

Menntmrh. (Magnús T. Ólafsson):

Herra forseti. Svar mitt við fsp. hv. 9. landsk. þm. er á þessa leið:

Húsnæði það, sem Menntaskólinn í Reykjavík hefur til umráða til kennslu á þessu skólaári, er sem hér segir: Gamla skólahúsið við Lækjargötu. Þar eru 9 kennslustofur að fullri stærð og 2 litlar. Nýbygging á lóð skólans. Þar eru 4 stofur notaðar sem almennar kennslustofur og 3 stofur til verklegrar kennslu. Gömul bygging á skólalóðinni, Fjósið svonefnda, með tveim kennslustofum. Þrúðvangur við Laufásveg, en það hús er í eigu Framkvæmdasjóðs, þar eru 5 kennslustofur. Loks eru tvær kennslustofur í leiguhúsnæði að Miðstræti 12.

Það kennsluhúsnæði, sem skólinn hefur nú til afnota, er nokkurn veginn hið sama og hann hafði til ráðstöfunar skólaárið 1971 og 1972, en þá var fjöldi nemenda sá mesti, sem orðið hefur, eða um það bil 1080. Við upphaf yfirstandandi skólaárs voru nemendur hins vegar 880 eða 200 færri en var fyrir tveimur árum. Hefur stefnan verið sú að draga úr inntöku nýrra nemenda í skólann og ráða þar með nokkra bót á þeim þrengslum, sem hann hefur búið við. Þetta hefur orðið kleift að nokkru marki með því, að stofnað hefur verið til menntaskólakennslu á nokkrum nýjum stöðum á Reykjavíkursvæðinu. Auk Menntaskólans við Tjörnina er þar að nefna Menntaskólann í Kópavogi og kennslu í námsefni fyrsta bekkjar menntaskóla við Gagnfræðaskóla Austurbæjar í Reykjavík, svo og menntaskólakennslu við Flensborgarskólann í Hafnarfirði.

Talið hefur verið, að æskilegur hámarksfjöldi nemenda í Menntaskólanum í Reykjavík væri 600 nemendur. Er því ljóst, að skólinn býr enn við veruleg þrengsli, auk þess sem óhagræði fylgir því að sjálfsögðu, að kennsla þarf að fara fram á 5 stöðum. Nýbygging skólans, hús það, sem í daglegu tali hefur verið nefnt Casa nova, var tekið í notkun árið 1964. Síðan hefur verið unnið að ýmsum endurbótum á gamla skólahúsinu, m.a hefur efsta hæð hússins verið innréttuð að nýju og komið þar upp vinnuaðstöðu fyrir kennara.

Líta verður á húsnæðismál Menntaskólans í Reykjavík með hliðsjón af byggingarmálum menntaskólanna í heild og framhaldsskólastigsins alls. Á síðasta áratug hafa framkvæmdir, sem snerta aðstöðu fyrir menntaskólakennslu, verið þessar helstar:

1) Bygging kennsluhúss við Menntaskólann á Akureyri, sem nú er lokið.

2) Bygging nemendabústaða á Laugarvatni, svo og bygging kennsluhúss, sem lýkur á þessu ári.

3) Bygging Menntaskólans við Hamrahlið, sem lokið er að mestu, nema hvað enn vantar íþróttaaðstöðu.

4) Bygging Menntaskólans á Ísafirði, 1. og 2. áfanga, sem rúma heimavistir og mötuneyti. Áætlað er, að þeim framkvæmdum ljúki á þessu ári.

5) Viðbygging við Flensborgarskóla í Hafnarfirði, sem fyrirhugað er að ljúka á þessu ári. Auk þess hefur, eins og áður var að víkið, verið stofnað til menntaskólakennslu í Kópavogi, sem til bráðabirgða er til húsa í nýbyggingu barnaskólans við Digranesveg,og efnt hefur verið til kennslu í námsefni 1. bekkjar menntaskóla í Gagnfræðaskóla Austurbæjar í Reykjavík. Í undirbúningi og athugun eru nú ýmsar framkvæmdir, er varða menntaskólastigið. Má þar nefna:

1. Framhald bygginga á Ísafirði.

2. Lausn á húsnæðismálum Menntaskólans við Tjörnina.

3. Byggingar fyrir menntaskóla á Austurlandi.

4. Lausn á húsnæðismálum Menntaskólans í Kópavogi, en ráðgert er, að sá skóli verði í framtíðinni fjölbrautaskóli.

5. Bygging fjölbrautaskóla í Breiðholti í Reykjavík, sem mun taka til menntaskólanáms.

6. Uppbygging náms á framhaldsskólastigi á Selfossi, þ. á m. hugsanlegrar menntaskólabrautar.

Sú dreifing menntaskólanáms, sem fyrirsjáanleg er, ætti að gera kleift að fylgja fram þeirri stefnu að fækka verulega nemendum í Menntaskólanum í Reykjavík og búa honum þar með betri aðstöðu í núverandi húsnæði. Ljóst er þó, að frekari úrbætur þurfa að koma til með byggingu viðbótarhúsnæðis. Á þessu stigi er ekki unnt að ákveða, hverjar þær úrbætur skuli verða eða hvenær þær skuli koma til framkvæmda. Það mun m.a. ráðast af því hver þróunin verður í skipulagsmálum framhaldsskólastigsins, og af því, hversu mikið fé Alþ. treystist til þess að veita á næstu árum til byggingarframkvæmda á þessu skólastigi. Ég vil geta þess, að stofnkostnaðarfjárveitingar til menntaskóla á fjárl. 1974 nema samtals 60 millj. 550 þús. kr.