29.01.1974
Sameinað þing: 47. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1837 í B-deild Alþingistíðinda. (1699)

401. mál, litasjónvarp

Halldór Blöndal:

Herra Forseti. Ég hryggist út af fyrir sig yfir því að heyra, hvað hv. sendisveinn ríkisstj., 5. þm. Vesturl., hefur litlar vonir um það, að herinn hverfi úr landi, og hvað hann hefur þungar og miklar áhyggjur af uppbyggingu menningartækja þar á Suðurnesjum, að hann sleppir sér í þingsölunum yfir því, hvað þar er verið að byggja upp. En ég ætla ekki að tala um það.

Mig langar til að spyrja hæstv. menntmrh. tveggja spurninga, þess vegna stóð ég upp. (Forseti: Má ég aðeins benda hv. þm. á, að hæstv. menntmrh. getur ekki talað í þessu máli meir, hann hefur talað tvisvar, þannig að fsp. verður að koma fram við annað tækifæri til hans, ef henni á að svara?) Ég þakka ábendinguna, en ég ætla nú samt að koma þessu á framfæri. Ég ætla að beina þeim tilmælum til menntmrh., að hann beiti sér fyrir því, að orðið verði við óskum bæjarstjórnar Húsavíkur um að bæta hlustunarskilyrði þar, en þar er ástandið þannig, eins og kemur fram í ályktun hennar, að Húsvíkingar geta ekki hlustað á þá endurvarpsstöð, sem þeim er ætluð, sakir truflana og verða að fara aðrar leiðir.

Jafnframt vil ég beina því til menntmrh., að hann beiti sér fyrir því, að komið verði upp sjónvarpssendingum frá Grímsey, sem ætlaðar yrðu fyrir bátaflotann út af Norðurlandi, en það er mjög brýnt mál og mikill áhugi hjá bátasjómönnum norður þar að fá bættar sjónvarpssendingar á miðin. Eins og hæstv. ráðh. veit, er það nú orðið altíða í fiskibátum, að sjónvarpstæki séu þar höfð um borð, og ekki svo smíðað nýtt skip , að ekki sé sjónvarpstæki í því.

Ég vildi aðeins koma þessu tvennu á framfæri; að reyna að sinna óskum bæjarstjórnar Húsavíkur um bætt hlustunarskilyrði útvarpsins þar og eins annars staðar á Norðausturlandi, — ég tek undir það, sem hv. 6. landsk. þm. sagði um það atriði, — jafnframt því sem ég ítreka óskir um sjónvarp frá Grímsey.