29.01.1974
Sameinað þing: 47. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1838 í B-deild Alþingistíðinda. (1701)
401. mál, litasjónvarp
Jónas Árnason:
Herra forseti. Ég fagna þeirri yfirlýsingu hæstv. ráðh., að ekki verði liðinn sá ósómi, að Keflavíkursjónvarpið fari að efla samkeppni sína við íslenska sjónvarpið með því að senda út í litum.
Ég vil gera aths. við það, sem hv. þm. Stefán Jónsson sagði hér áðan, að það skipti ekki máli, lögbrotin væru hin sömu, hvort sem sent væri út í litum eða ekki í litum. Að sjálfsögðu er ég á sama máli og hann um það. En spurningin er um það, hvað ósóminn á að ganga langt. Hann hefur þegar gengið nógu langt og hann mundi stóraukast við þetta.
Varðandi það, sem menn segja hér um framferði Bandaríkjamanna á Keflavíkurflugvelli, ýmsar framkvæmdir þar, m.a að þær beri vott um, að ríkisstj. ætli ekki að standa við fyrirheitið um að láta herinn fara. Ég vil segja við þessa menn, að ef Bandaríkjamenn á Keflavíkurflugvelli standa í þeirri meiningu, að þeir eigi ekki að fara, hljóta þeir að hafa fengið upplýsingar um það eða fullyrðingu um það úr einhverjum öðrum röðum heldur en röðum stjórnarsinna. Ég veit ekki hvort hægt er að ympra á því hér, en gjarnan mættu einhverjir, sem hefðu aðstöðu til, koma á framfæri við Ameríkana leiðréttingu á þessu, að þessar fullyrðingar, sem þeir hafa heyrt og e.t.v. trúað, séu ekki réttar. Það stendur sannarlega til, að þeir verði að fara með her sinn af Keflavíkurflugvelli.