29.01.1974
Sameinað þing: 48. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1856 í B-deild Alþingistíðinda. (1716)
133. mál, áætlunargerð um verndun gróðurs
Flm. (Steinþór Gestason):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram á þskj. 168 till. til þál. um áætlunargerð um verndun gróðurs og uppgræðslu lands í Árnessýslu. Þar sem langur tími er liðinn síðan þessi till. var lögð á borð alþm., þykir mér rétt að rifja upp tillgr, sjálfa. Er hún svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að skipa n. þriggja manna til þess að gera í samvinnu við viðkomandi sveitarstjórnir og gróðurverndarnefnd áætlun um verndun gróðurlendis og uppgræðslu örfoka lands í Árnessýslu.
Áætlunin skal taka til alls lands upp að 400 m hæðarlínu og fela í sér till. um það, hvar skuli í þessu skyni beita skógrækt og hvar grasrækt, svo op um hagnýtingu þess lands, sem áætlunin nær til. N. getur krafist aðstoðar Rannsóknastofnunar landbúnaðarins, Búnaðarfélags Íslands og annarra opinberra stofnana um viss tæknileg atriði, sem áætlun þessa kynni að varða.
Stefnt skal að því, að áætlunin liggi fyrir svo tímanlega, að Alþ. geti fjallað um hana á haustþingi 1974 og ákveðið þá um fjárframlög til fyrstu framkvæmda samkv. henni á árinu 1975. Í n. skulu vera þessir embættismenn: skógræktarstjóri, landgræðslustjóri og landnámsstjóri, og skal hann vera form. n.“
Eins og fram kemur í grg. með till. telja margir þeirra, sem kunna nokkur skil á jarðvegsuppbyggingu, að innan Árnessýslu sé að finna þau landssvæði, sem einna viðkvæmust séu hér á landi fyrir eyðingu og uppblæstri. Þurrlendisjarðvegurinn þar er yfirleitt laus í sér, léttur og því fokgjarn, enda er hann mjög blandaður gosefnum. Gróðurverndarnefnd Árnessýslu hefur samið umfangsmikla grg. um þróun jarðargróðurs, sauðfjáreign og annað álag á landið. Þar segir svo í álitsgerð um ástand jarðvegs og gróðurs, með leyfi hæstv. forseta:
„Upphaf þess, að slíkur jarðvegur byrjar að losna og berast burt af einum stað á annan, er ævinlega það, að með einhverjum hætti rofnar gróðurhulan, sem bindur yfirborð jarðvegarins. Algengar ástæður eru frostbrestir, mikil umferð fénaðar eða farartækja, sem mynda gróðurlausar slóðir, rask vegna verklegra framkvæmda, svo sem vegagerðar, línulagna eða bygginga, og sandfok, svo að nokkur dæmi séu nefnd. Að sjálfsögðu er gróðurhulan því viðkvæmari fyrir slíkum áhrifum sem gróðurskilyrði eru lakari, svo sem kalt árferði og mikið beitarálag.“
Eins og komið er að í þessum tilvitnuðu orðum gróðurverndarn. Árnessýslu, eru gjarnan fleiri atvik samverkandi um upphaf uppblásturs á grónu landi. Er þess vegna nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því, á hvern hátt landið er hagnýtt nú, svo að hægt sé að gera áætlanir um varðveislu þess samfara nauðsynlegri nýtingu.
Í skýrslu gróðurverndarn. Árnessýslu er að finna samanburð á sauðfjáreign árið 1931 og aftur árið 1971 í hinum einstöku hreppum sýslunnar. Rétt þykir mér að rifja það upp í þessu sambandi, þar sem vitað er, að beitarnot úthagans standa nokkurn veginn í réttu hlutfalli við fjölda sauðfjár í héruðunum, þótt ræktunin hafi raskað því hlutfalli nokkuð. Í skýrslunni kemur þetta m.a fram, þar sem gróðurverndarn. gerir athugun á notkun landsins og ástandi þess á nokkrum svæðum í sýslunni.
Á svæði, sem þeir afmarka af Selvogi, Ölfusi, Grafningi og Þingvallasveit, kemur fram, að í heild var sauðfjáreign árið 1931 13.851 vetrarfóðruð kind, en árið 1971 eru þær 15.523, eða hefur fjölgað um 1672 á þessu svæði. Umsögn n. er á þá leið, að í heimalöndum jarða á þessu svæði er nokkur tilfærsla á jarðvegi og gróðri, en um verulega eyðingu á s.l. áratug er ekki að ræða nema í Grafningi, þar sem viðkvæmur móajarðvegur berst burt, aðallega með vatnsskolun, vegna slæmra gróðurskilyrða, mikillar beitar, snjóléttra vetra og undangenginna harðæra. Umrót vegna lagna þriggja raflina frá Sogi hefur ekki verið lagfært og eykur enn á vandann. Á þessu svæði er sauðfé beitt mikið á tún, bæði vor og haust, en ræktun grænfóðurs til sauðfjárbeitar er ekki mikil, en vaxandi, mest í Ölfusi, þar sem meira en 20% bænda beita sláturfénaði á grænfóður. Vetrarbeit er ekki stunduð nema af tiltölulega fáum bændum, en hún var mikil fyrir 30 árum.
Um vetrarbeit Grímsness og Laugdæla er það að segja, að árið 1931 voru vetrarfóðraðar kindur 12.760, en 1971 eru þær 12.908 eða hefur fjölgað um 148 kindur. Afréttarlöndin hafa á undanförnum árum látið á sjá, en eyðing þar er einkum bundin við afmörkuð svæði umhverfis Sandkluftavatn, norðan við Skjaldbreið, á Rótarsandi og viðar. Nokkur framræsla mýrlendis hefur átt sér stað í þessum sveitum, og hafa hagar af þeim sökum batnað mikið, en þó er hluti mýranna lítið eða ekki þurrkaður. Áburður hefur litið sem ekkert verið borinn á úthaga.
Í Biskupstungnahreppi voru árið 1931 vetrarfóðraðar 11.325 kindur, en árið 1971 eru þær 13.625 eða hefur fjölgað um 2.300. Á Biskupstungnaafrétti á sér stað mikil gróðureyðing á vissum svæðum, enda þótt annars staðar sé gróður vaxandi. Helstu gróðureyðingasvæðin eru Hvítárnessvæðið, þar sem þykk víkurlög valda mikilli fokhættu, svæðið norðan Bláfells, Haukadalsheiði og svæðið vestan Sandfells. Helstu orsakir eyðingarinnar eru of mikið beitarálag og snjóleysi á vetrum, vatnsrennsli og minnkandi gróska að undanförnu.
Um Hrunamannahrepp er það að segja, að árið 1931 voru vetrarfóðraðar kindur 7.700, en áruð 1971 8.230 eða hefur fjölgað um 530 á þessu árabili. Í heimalöndum mun ekki vera um jarðvegs- né gróðureyðingu að ræða nema af landbroti Stóru-Laxár. Í afrétti á sér stað uppblástur á nokkrum stöðum, sem sums staðar stafar af ofbeit, þar sem dreifing fjárins er ekki nægileg. Afrétturinn er talinn vera í hægfara framför. Nú er helmingur fjárins í afrétti, en um 1930 gekk nær allt fé sveitarinnar þar. Þá hefur minnkandi notkun Flóamannaafréttar áhrif til batnaðar, en einhver samgangur er milli afréttanna. Mjög miklar hagabætur hafa verið gerðar í þessu sveitarfélagi, einkum með framræslu mýrlendis, en einnig með dreifingu áburðar á úthaga á sumum bæjum. Algengt er, að sauðfé sé beitt á ræktað land vor og haust, og um 40% af sláturlömbum er batað á grænfóðri, og fer það hraðvaxandi. Vetrarbeit sauðfjár hefur minnkað jafnt og þétt og er nú óveruleg.
Um Gnúpverjahrepp er þetta að segja: Árið 1931 voru vetrarfóðraðar kindur 6.380, en árið 1971 eru þær 5.400 og hefur fækkað um 980. Nokkurs uppblásturs gætir í ofanverðri sveitinni, en hefur stöðugt minnkað frá því, sem var á þriðja tug aldarinnar. Einnig er nokkurt landbrot af völdum áa. Mikil uppgræðsla á sér stað, einkum á melum, sem áður hafa blásið, og talið er, að á seinni árum sé um verulega og vaxandi gróðuraukningu að ræða. Í afrétti er nokkur uppblástur, einna mestur sunnan í Sandafelli. Talið er, að uppgræðsla haldi naumast í við eyðinguna, þannig að hægfara eyðing eigi sér e.t.v. stað. Sauðfé er beitt á tún bæði vor og haust í miklum mæli, og um 25% af sláturfé er alið á grænfóðri og fer vaxandi. Vetrarbeit er litið stunduð og hefur minnkað mikið frá því, sem áður var. Hún var mikið stunduð fram á 5, áratug aldarinnar.
Ég hef hér lýst umsögn gróðurverndarnefndar um þær sveitir í Árnessýslu, sem næst liggja fjalllendinu, því að þær eru með eðlilegum hætti viðkvæmastar fyrir gróðurskemmdum vegna þeirrar hæðar, sem þar er á landinu yfir sjó. En ef litið er til Árnessýslu allrar, má segja, að sauðfjáreign hafi staðið í stað frá árinu 1931. Þá voru vetrarfóðraðar kindur í sýslunni 71.392, en eru 1971 71.466 eða hefur fjölgað aðeins um 72. En eins og ég hef lýst hér, gerist sú fjölgun aðallega í efri hluta sýslunnar, og vil ég láta það koma fram, að e.t.v. má þar leita að einhverju leyti þeirra orsaka, sem orðið hafa til þess, að gróður er þar sums staðar á undanhaldi.
Það er ekki hægt að loka augunum fyrir því, að framleiðsla landbúnaðarvara verður framvegis sem hingað til snar þáttur í þjóðarframleiðslu Íslendinga. Framkvæmdastofnun ríkisins hefur látið gera áætlun um innlenda eftirspurn landbúnaðarvara, þ.e.a.s. spá um neyslu þeirra, 1973–1977. Um helstu niðurstöður þeirrar áætlunar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Miðað við sennilegustu forsendur um þróun mannfjölda og neyslu í heild og áframhald niðurgreiðslna hefur verið gerð eftirfarandi spá um þörf innlenda markaðarins fyrir helstu afurðirnar árin 1973, 1975 og 1977. Heildarþörfin fyrir mjólk til beinnar neyslu, vinnslu og fóðrunar mun haldast því sem næst óbreytt, um 108109 þús. tonn á ári. Þörfin fyrir kindakjöt mun aukast um 700–1100 tonn eða sem svarar 200–300 tonnum á ári og mun verða um 11 þús. tonn árið 1977, miðað við, að niðurgreiðslur haldist. Þörf fyrir aðrar kjöttegundir mun aukast mun meira hlutfallslega, en álíka mikið að magni, um tæplega 1000 tonn eða um 240 tonn á ári, þannig að heildarneysla kjöts mun aukast um 2030 tonn, úr 14.120 tonnum 1973 upp í 16.150 tonn 1977.
Þar sem spár þessar eru byggðar á horfum um eðlilega langtímaaukningu í heildarneyslu, en aukningin hefur orðið mjög ör að undanförnu, kunna þær að falla illa að reynd ársins 1973 og e.t.v. nokkuð fram á við. Það ætti þó ekki að hagga meginniðurstöðunum, þ.e. að spár þessar veiti mjög eindregna vísbendingu um það, hvaða stefnu landbúnaðarframleiðslan þurfi að taka. Mjólkurframleiðslan þurfi sem næst að standa í stað, og innan vinnslunnar þarf áherslan að verða á aukna og fjölbreyttari ostaframleiðslu. Aukningaþörf landbúnaðarins ætti að beinast að kjötframleiðslu, auk annarra tegunda, sem hér hafa ekki verið nefndar, svo sem eggja, garðávaxta og þess háttar. Aukning kjötframleiðslunnar þyrfti fyrst og fremst að beinast að eldi holdanauta, svína og alifugla, eftir því sem það getur nýst eiginlegum landbúnaði. Sem mest fjölbreytni er æskileg til fyllstu nýtingar á svigrúmi hins innlenda markaðar. Hagstæðast verður enn sem fyrr, að umframframleiðsla til útflutnings falli til í formi sauðfjárafurða, en þeim fylgja jafnan hagstæðustu iðnaðarhráefni.“
Þessi spá gengur mjög í sömu átt og þær lauslegu áætlanir, sem menn hafa haft uppi á undanförnum árum. Það lætur því að líkum, að álag á gróðurlendi í Árnessýslu aukist enn, þar sem hún er eitt mesta framleiðslusvæði landsins. Með hliðsjón af því verður gróðurvernd og uppgræðsla þar þýðingarmikil og skipulag á notkun landsins aðkallandi, því að sýnilega megum við ekki sóa neinu. Við þurfum að nýta gróðurinn svo sem landið þolir, og við þurfum að taka til nota fyrir útivist fólks þau svæði, sem til þess eru best fallin, en svara siður til hinna hagnýtu þarfa.
Það er skoðun mín, að ekkert megi gerast í þessu efni af tilviljun eða af hendingu, heldur að vandlega yfirlögðu ráði. Till. mín gerir ráð fyrir því, að áætlunin skuli taka til alls lands upp að 400 m hæðarlínu. Þessi hæðarmörk eru ákveðin með það fyrir augum að taka fyrst til meðferðar þau uppblásturssvæði, sem næst liggja aðalgróðurlendinu og líklegust eru til að gefa mestan arð og veita byggðinni skjól og öryggi. Líklegt er, að innan þeirra marka séu allt að 35 ferkm. lands, sem nú er gróðurlaust, en ræktanlegt. Þá munu og vera undir 400 m hæðarlínunni stór gróðurlönd, sem þarf að styrkja. Í því efni má nefna t.d. Haukadalsheiðina, sem ég gat um og hefur um langt árabil verið eitt mesta uppblásturssvæði á Suðurlandi. Þar hafa af Landgræðslunni verið unnar nokkrar varnaraðgerðir, sem þó þarf að auka verulega, svo að sú vörn, sem þegar hefur komist af stað, snúist í sókn.
Höfuðviðfangsefnin til sandræktunar munu sjálfsagt beinast að söndunum í Selvogi og í Þorlákshöfn, svo og í Þjórsárdal og í norður frá Þingvöllum, við Sandkluftavatn og nálæga víðáttusanda. Hér er um mikla landvinninga að ræða, sem munu koma til margvíslegra nota, ef rétt er á málum haldið.
Áhugi manna er vasandi á þessu mikilvæga málefni. Það mun hafa verið árið 1965, sem félagar úr Lionsklúbbnum Baldri í Reykjavík riðu á vaðið við uppgræðslu örfoka lands og urðu, að því er best er vitað, fyrstir áhugamanna til þess, og dreifðu áburði og fræi við Hvítárvatn það ár. Þetta framtak Baldursmanna hefur smitað frá sér. Nú sinna ýmsir félagshópar uppgræðslu og sáningarstarfi, og eru ungmennafélögin einna drýgst í því liði. Starfsemi þessara áhugamanna hefur komið að góðu liði, og þarf að gefa því verðmæta starfi gaum og ætla slíkum starfshópum ákveðinn hlut í þeirri áætlun, sem till. þessi miðar að að hrinda fram.
Dr. Sturla Friðriksson hefur gert verðmætar tilraunir með að græða upp örfoka land. Þær tilraunir hafa tekið til lands við breytileg hæðarmörk og benda eindregið til þess, að unnt sé að rækta land, sem liggur í 600–700 m hæð og þar undir. En fullsannað er, að þótt uppgræðsla hálendisins sé tæknilega framkvæmanleg, er ræktunarárangurinn öruggari við lægri hæðarmörk. Þess vegna er lagt til að setja ekki markið hærra í fyrstu lotu en hér er lagt til, enda er það stórt viðfangsefni og landið verðmætara og því fremur af fjárhagsástæðum framkvæmanlegt heldur en að spanna þegar yfir allt það land, sem mögulegt er að rækta upp.
Þó að áætlun þessari sé ekki ætlað að ná til stærra lands en þess, sem er undir 400 m hæð, er ljóst, að verkefnið er svo yfirgripsmikið, að ekki er vænlegt að taka fyrir stærra svæði í einu en Árnessýslu. Þar eru og, eins og áður er vikið að, verðmæt lönd í mikilli hættu. Þar eru líka eftirsótt landssvæði til hinna margvíslegustu nota, útivistar og sumarvistar, skógræktar og grasræktar. Alla þessa þætti þarf að hafa í huga, þegar skipuleg áætlun er gerð um varðveislu og not þessara landssvæða. Þess vegna er mikilvægt, að til nefndarstarfa veljist menn með staðgóða þekkingu á viðfangsefninu, og þess vegna er gerð tillaga um, að forstöðumenn þeirra stofnana, sem búa yfir verðmætri reynslu á þessu sviði, skipi þá nefnd, sem á að gera áætlunina.
Ekki er þörf á því að rekja í löngu máli þátt þessara stofnana í því gróðurverndarstarfi, sem þegar er í gangi. Sem dæmi má nefna, að áætlun um skóggræðslu samfara búskap í Fljótsdal austur er í framkvæmd, og vænta menn góðs árangurs af þeirri tilraun. Þá eru og þekktar ritsmíðar skógræktarstjóra um gróðureyðingu og jaðvegsskemmdir. Einnig hefur hann haft uppi áætlanir um landgræðslu, sem þá hefur fyrst og fremst verið bundin við skógrækt. Landgræðslustjóri er ungur maður og nýr í starfi, en stofnun hans hefur viðað að sér reynslu í sandgræðslu og gróðurvernd með starfsemi sinni í 65 ár, og auk þess hefur landgræðslustjóri nú sett fram nýja rammaáætlun um verkefni stofnunarinnar fyrir landið allt, byggða á þessari reynslu og nýjustu kenningum varðandi landgræðslumál. Landnámsstjórn ríkisins hefur haft með höndum þá skipulagningu á landbúnaðarlandi, sem gerð hefur verið til þessa. Síðasta viðfangsefni stofnunarinnar af þessu tagi var svokölluð Inn-Djúpsáætlun, en hún hefur nú áformað að halda áfram undirbúningi að frekari skipulagningu með kortagerð og merkingu og greiningu jarða. Þykir því einsætt að fela landnámsstjóra að hafa forustu í starfi n. Að sjálfsögðu mun n. hafa samvinnu við sveitarstjórnir á svæðinu og gróðurverndarnefnd sýslunnar, einnig Rannsóknastofnun landbúnaðarins, Búnaðarfélag Íslands og Búnaðarsamband Suðurlands og aðrar opinberar stofnanir, eftir því sem þörf krefur.
Herra forseti. Ég mun ekki flytja öllu lengra mál að þessu sinni um þáltill., nema sérstakt tilefni gefist. En ég vil að lokum leggja á það ríka áherslu, að ef landbúnaðarspá Framkvæmdastofnunar ríkisins er líkleg til að fara nærri réttu lagi, stefnir að svo hraðri fjölgun sauðfjár í landinu, að engan tíma má missa til að undirbúa markvissa sókn í gróðurvernd og gróðurlandnámi í Árnessýslu, svo að ekki horfi þar til vandræða. Til þess að stuðla að hraðri uppbyggingu landsins er þessi till. flutt og treyst á samvinnu þeirra sérfræðinga, sem við eigum völ á og hafa víðtækasta praktíska reynslu, — treyst á samvinnu þeirra til öflugrar sóknar í hinu nýja landnámi.
Herra forseti. Ég legg til, að till. verði vísað til síðari umr. að lokinni þessari umr. og hv. fjvn.