30.01.1974
Efri deild: 52. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1877 í B-deild Alþingistíðinda. (1724)

176. mál, jarðgufuvirkjun við Kröflu eða Námafjall

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Ég skal reyna að lengja ekki mjög þessar umr., en vil hefja mál mitt með því að taka undir með hæstv. ráðh., að orkumálin eru svo alvarlegs eðlis, að það er full ástæða til, að við þm. tökum allir höndum saman, hvar í flokki sem við stöndum, til þess að leita bestu lausnar til að ráða bót á þeim orkuskorti, sem óneitanlega er hér á landi, ekki síst með tilliti til þess ástands, sem er í orkumálum og um öflun olíu til orkuframleiðslu, svo að eitt mikilvægt atriði sé tekið sérstaklega fram. En þótt ég sé sammála hæstv. ráðh. að þessu leyti, finnst mér mjög áberandi í málflutningi ráðh., að þegar hann á í hlut og hans stjórnarathafnir eða athafnaleysi, þá vill hann hafa samstöðu og frábiður sér gagnrýni, um leið og hann ætlar sér frelsi til þess að hafa uppi harða dóma um athafnir forvera sins og fyrrv. ríkisstj. í orkumálum. Þá er sjálfsagt að nota stóryrði og sleggjudóma í svo ríkum mæli, að manni blöskrar. En um leið og komið er við hans eigið skinn, biðst hann vægðar og æskir samstöðu. Þetta finnst mér fremur leiðinlegur bragur á málflutningi ráðh. Um leið og ég tek undir, að við skulum leita samstöðu til úrlausnar vandamálunum, eins og þau blasa við nú, þá hygg ég, að hann ætti hvorki að taka svo óstinnt upp gagnrýni stjórnarandstöðunnar, eins og hv. 2. þm. Norðurl. e., Halldórs Blöndals, í þessum umr. né endranær.

Það, sem olli því, að ég kvaddi mér hljóðs, er, að hæstv. ráðh, notaði það sem dæmi, sem slegið er upp í Þjóðviljanum, að orkusölusamningurinn til Álverksmiðjunnar í Straumsvík sé þannig úr garði gerður, að um helmingur raforkunnar í landinu fari til Álverksmiðjunnar, en hún greiði fyrir það magn aðeins 10% af því, sem greitt er fyrir raforku í landinu. Þetta finnst mér óheiðarelgur samanburður, svo ég segi það hreinskilinslega, vegna þess að hér er ekki um sambærilega raforkusölu að ræða. Það er allt annað að selja raforku til eins aðila í heildsölu og ekki hægt að miða við það orkusölu til hvers einasta heimilis og notenda í landinu í smásölu hins vegar. Dreifikerfið er ákaflega dýrt, eins og sjá má af því, að Rafmagnsveitur ríkisins eru reknar með miklum halla vegna hins víðtæka og mikla dreifikerfis, sem þær verða að byggja, þótt þáttur í þessum halla sé einnig að sjálfsögðu líka, að raforka er á vegum Rafmagnsveitna ríkisins framleidd með olíu. Hér er sem sagt alls ekki um sambærilegar tölur að ræða, sem hæstv. ráðh. leyfir sér að viðhafa hér í alvarlegum umr., sem hann segir þessar umr. vera hér á hv. Alþ.

Nú vil ég fara fram á það við hæstv. ráðh., að við gætum komið okkur saman um það eða a.m.k. að hann hefði ekki neitt við það að athuga, að ég legði það til í stjórn Landsvirkjunar, að Landsvirkjun eða trúnaðarmenn hennar og ráðh., ef hann óskar eftir, geri nokkurn samanburð á því t.d., hver væri nú fjárhagur Landsvirkjunar, ef orkusölusamningurinn við ÍSAL hefði ekki verið gerður og þar af leiðandi ekki ráðist í Búrfellsvirkjun, en treyst á dreifðar smávirkjanir, eins og hæstv. ráðh. vildi, áður en ráðist var í Búrfellsvirkjun, og var enn þeirrar skoðunar, um það bil sem til hans var leitað sem nýskipaðs orkumrh., að jafnvel væri hagkvæmara að gera heldur en að ráðast í Sigölduvirkjun. En þá tók hann sér nokkurn frest og lét Orkustofnun kanna það, hvort smærri virkjanir væru e.t.v. ekki hagkvæmari heldur en að nota heimild Alþingis, sem hafði verið samþykkt í tíð fyrrv. ríkisstj. um virkjun við Sigöldu og í Hrauneyjarfossum. Hann komst fljótlega að raun um það, að fyrri forsendur og útreikningar, sem fyrrv. ríkisstj. hafði byggt á, þegar hún lagði til, að virkjað yrði við Sigöldu eða í Hrauneyjarfossum, hefðu við full rök að styðjast, og ríkisstj. veitti leyfi fyrir Sigölduvirkjun, eins og farið var fram á. Ég tel mjög æskilegt, að þvílíkur samanburður sé gerður af hlutlausum aðilum, svo að það séu ekki uppi sleggjudómar hér á Alþ. og tíma alþm. eytt frá mikilvægari störfum, svo að það séu ekki uppi sleggjudómar hér viðhafði fyrr í umr. Ég vil líka leggja til, að áður en gengið er frá orkusölusamningi við járnblendiverksmiðju, ef hún verður reist við Hvalfjörð, verði gerður ítarlegur samanburður á því, hvernig háttað sé tekjum af orkusölu til ÍSALS, því afli og orku, sem sú orkusala tekur af Búrfellsvirkjun, og byggingarkostnaði Búrfellsvirkjunar annars vegar og á sama hátt séu grandskoðaðar væntanlegar tekjur af orkusölu til járnblendiverksmiðjunnar, það afl og orku, sem hún tekur af Sigölduvirkjuninni, og byggingarkostnaður Sigölduvirkjunar hafður til samanburðar. Það má vel vera, að nú þyki orkuverðið, sem samið var um til ÍSALS, vera lágt, eftir að orkuverð hefur farið svo stórhækkandi í heiminum sem raun ber vitni um. En við megum þá ekki gleyma því, að byggingarkostnaður hefur líka hækkað og byggingarkostnaður Sigöldu er allt annar á framleidda kwst. eða afl og orku, sem sú virkjun lætur í té, en var, þegar Búrfellsvirkjun var gerð. Loks er þar svo til að taka, að það, sem auðvitað ræður úrslitum um, hvort rétt var að gera samninginn við álverið í Straumsvík um orkusölu til þess, er, hvort sá orkusölusamningur var til þess fallinn, að verð á raforku til heimila og atvinnurekstrar í landinu yrði lægra en ella, yrði lægra en án þess að slíkur samningur yrði gerður. Slík rannsókn og athuganir gerðar af hlutlausum aðilum, sem ég mun leggja til, að hjá Landsvirkjun fari fram, og ég treysti, að hæstv. ráðh. styðji mig í, að verði gerðar, eiga auðvitað að leiða í ljós, hvaða rafmagnsverð við mundum búa hér á landi, ef álsamningurinn hefði ekki verið gerður.

Hæstv. ráðh, sagði, að hann hefði fyrstur komið auga á húshitunarmarkaðinn. Ég held ekki, að það sé alveg rétt, að hann hafi einn haft hugmynd um, að þessi markaður væri til staðar, en vil taka undir það með honum, að auðvitað er rétt og nauðsynlegt að nýta þennan markað einmitt sem undirstöðu fyrir stærri virkjunarframkvæmdir en ella væri hægt að ráðast f, því að almennt talað eru stærri virkjunarframkvæmdir hagkvæmari en hinar smærri. En þá verð ég að segja einnig, að hæstv. ráðh. hefur, að því er ég best fæ séð, vanrækt algerlega að skapa skilyrði fyrir lausn húshitunarvandamálsins. Við vitum, að það er búið að skrúfa fyrir frekari húsakyndingu með hafmagni á Norðurlandi, frekari leyfi eru ekki veitt. Hér á orkuveitusvæði Landsvirkjunar er ástandið e.t.v. ekki miklu betra, og þar er ekki eingöngu fyrirstaðan sú að vísu, að framleiðslugeta vatnsaflsstöðva Landsvirkjunar er takmörkuð. Ástæðan er ekki eingöngu sú, því að Landsvirkjun gerði sérstakar ráðstafanir, eftir að olían fór að hækka í verði, til þess að skapa betri kjör þeim, er vildu hita hús sín með rafmagni, en þá strandar það í sveitum Suðurlands á því, að dreifikerfi Rafmagnsveitna ríkisins getur ekki borið frekari flutning og getur ekki tekið á sig meira álag, þannig að margir, sem sótt hafa um leyfi til húsakyndingar eða aukinnar rafmagnsnotkunar, fá ekki þessa orku keypta.

Hæstv. ráðh. getur ekki afsakað sig með aðgerðaleysi fyrrv. ríkisstj. Það er nú komið nokkuð á þriðja ár, meira en 5 misseri, sem hann hefur setið í ráðherrastól, og ástandið hjá Rafmagnsveitum ríkisins er núna það, að 350–400 millj. kr. vantar til þess, að þær geti staðið við skuldbindingar sínar á yfirstandandi ári. Þetta er fjárhagsvandi, einn af mörgum, sem ekki var leystur við afgreiðslu fjárlaga fyrir jólin. Hæstv. ráðh. hrósaði sér af því, að hann hefði aflað fjármagns til aukinna raunsókna og framkvæmda á sviði orkumála við 3. umr. fjárlaga fyrir jólin. Það er rétt, að þá var sett inn í heimildarákvæði fjárlaga heimild ríkisstj. til handa til að afla fjármagns, hundruð milljóna, en þess fjármagns hefur enn ekki verið aflað og þess fjármagns er ekki getið í niðurstöðutölum fjárlaga, þannig að það var eingöngu verið að benda á vandann, en hann er enn óleystur.

Herra forseti. Ég gæti lengt þessar umr. með því að drepa á fleiri atriði, en það er ástæða til að ætla, að bæði þessi mál komi aftur til umr. hér í d., svo og að orkumál verði til umr. í ýmsum myndum á þessu þingi, og skal ég því láta þetta nægja að sinni.