31.01.1974
Sameinað þing: 49. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1915 í B-deild Alþingistíðinda. (1740)

121. mál, z í ritmáli

Menntmrh. (Magnús T. Ólafsson):

Herra forseti. Fleira þarf nú að ræða á hv. Alþ. en z, en ég tel samt fulla ástæðu til að bæta nokkrum orðum við það, sem farið hefur á milli hv. 4. þm. Austf. og mín um það efni. En fyrst tel ég ástæðu til að víkja að nokkrum atriðum, sem hv. 5. þm. Vesturl. drap á í ræðu sinni við fyrri hluta þessarar umr., þótt hann sé nú því miður ekki viðstaddur. Þar kom fram, að mér virtist, mjög mikill misskilningur á þeirri tilvitnun, sem ég tilfærði þá í ræðu minn í erindisbréfi stafsetningarnefndar.

Hv. þm. vék að því, að þar er talið upp meðal atriða, sem óskað er eftir, að n. taki til athugunar með nokkra einföldun tiltekinna stafsetningarreglna að markmiði, y og tvöfaldur samhljóði ásamt fleiru, og þá virtist mér gæta þess misskilnings, að þar með væri verið að leggja fyrir n. að afnema þessi stafsetningaratriði. Þetta er alger misskilningur á erindisbréfinu. Það felur aðeins í sér að athuga um einföldun reglna, sem hlutina varða, en öðru er nær, að í því þurfi að felast afnám slíkra stafsetningaratriða, enda liggur þetta í hlutarins eðli, t.d. þar sem rætt er um að athuga reglur um stóran og litinn staf. Það á hvorki að afnema stóran staf né lítinn, heldur að athuga, hvort settar verði einfaldar og skýrar reglur og reyndar hafa engar stjórnskipaðar reglur gilt um stóran staf og litinn. Sömuleiðis kvaðst hv. þm. sjá eftir z, vegna þess að þá gæfust honum ekki sömu tækifæri í kennslu að leiða nemendum sínum fyrir sjónir ýmis atriði úr málssögu og jafnvel atvinnusögu, sem auðvelt væri að láta bera á góma, þegar rakin væru rök að tilteknum stafsetningaratriðum. En dæmin sem hv. þm. nefndi voru ekki um z. Þau voru um y, og þau voru um tvöfaldan samhljóða.

Vegna þess, að lýst var eftir því í ræðu hv. 4. þm. Austf. áðan, hvaða afstöðu stafsetningarnefnd taki til y, tel ég rétt að skýra frá því þegar í stað, að till. n. hljóðar svo: „Tillaga um y, ý og ey. Farið skal eftir sömu reglum og nú tíðkast í íslenskum skólum með notkun táknanna y, ý og ey.“ (SvH: Guði sé lof.) Það er von, að hv. þm. lofi guð, ekki er hann búinn að spara svo sviguryrðin í framsöguræðunni í garð n. sem heldur um það, hver hennar raunverulegi tilgangur væri með því að bera fram till. um afnám z.

Í framsöguræðu 4. þm. Austf. var hvað eftir annað ítrekað, að n., sem um stafsetninguna fjallaði hefði vegið úr launsátri. Hann margendurtók þetta orðafar, vegið væri úr launsátri að íslenskri tungu, þarna væru að verki launráðsmenn. Og hver voru launráðin, sem hv. þm. bar á þessa menn? Þau voru þau, að þeir væru með till. um afnám z, eins og hann orðaði það, — ég held ég hafi skrifað það rétt, „að gera tilraun á Íslendingum“, því að megintilgangurinn væri ekki að vinna á z, hún væri bara smábráð í leiðinni. Megintilgangur þessarar n. væri að koma á framburðarstafsetningu og fyrst og fremst að afnema y og tvöfaldan samhljóða. Þetta var inntak þeirra orða, sem hv. 4. þm. Austf. viðhafði í framsöguræðu sinni, ekki einu sinni, heldur margoft með margvíslegum tilbrigðum, eins og honum er lagið. Það var þetta, þessi málflutningur, sem ég kallaði ekki svigurmæli, eins og hv. 4. þm. Austf. sagði áðan, því að ég kallaði þetta dylgjur. Það er réttnefni. Þetta eru dylgjur, sem voru hafðar í frammí í framsöguræðu hv. 4. þm. Austf. Nú sér hann svart á hvítu, að þetta eru tilefnislausar dylgjur.

En það, sem ég vildi sérstaklega víkja að vegna þeirra dæma, sem hv. 5. þm. Vesturl. var að rekja um tilefnin, sem stafsetningin gæfi til að rekja málssögu, málþróun og önnur merkileg atriði fyrir ungum nemendum, þá er ég honum alveg sammála um það. En þannig stendur á, að z gefur afar lítil tilefni til þessa. Hún er ekki ríkur efniviður í slík dæmi. Þannig hagar til, eins og ég vék að í fyrri ræðu minni, að z eykur mjög litið á það, sem kallað er gagnsæi málsins, vegna þess að sá uppruni, sá orðaskyldleiki, sem hún bendir til, liggur að jafnaði ljós fyrir hvort eð er. Það þarf ekki z í bestur til að benda á betri. Það þarf ekki z í helstur til að benda á heldri, svo að ekki sé á það minnst, hver vitneskja um uppruna felst í z í miðmyndarendingunni, þar sem z-reglan, eins og hún hefur gilt, er langalgengust í rituðu máli. Kallist með z eða s, berjist með z eða s, hafi sést með zetu eða s, það er ekki vitundarögn að finna, sem veitir þekkingu um málssögu í þessum endingum, þó að þær séu ritaðar með z. Eins og önnur stafsetningaratriði verður að meta z eftir því, hver þörf hennar er. Hennar er ekki þörf í íslensku ritmáli, af því að hún hefur aldrei í íslensku ritmáli táknað neitt sérstakt hljóð. Þess vegna gefur hún alls ekki þá vitneskju um málþróun og skyldleikatengsl í málinu eins og til að mynda y eða tvöfaldur samhljóði gera og eins og gera mætti með tvenns konar ö og tvenns konar æ, sem hugmyndir voru uppi um á síðustu öld, að tekið yrði í nútímastafsetningu.

Það, sem blasir við íslenskukennurum, er að sjálfsögðu það, að þeir þurfa að fjalla um fjöldamörg þýðingarmikil atriði í móðurmálskennslunni og það hefur verið gagnrýnt á síðustu áratugum í umr. um móðurmálskennslu, að tilhneigingar hafi gætt í þá átt að leggja vaxandi og óhóflega áherslu á stafsetningu og málfræðireglur út af fyrir sig, hins vegar hafi orðið útundan fræðsla um orðaforða, fræðsla í því að tjá sig í riti eða ræðu. Af minni eigin reynslu, sem að sjálfsögðu er takmörkuð af skólagöngu barna minna, hef ég tilhneigingu til að telja, að þessi gagnrýni eigi töluvert til síns máls. Mér brá mjög undarlega við, þegar börn mín tóku að ganga í skóla í Reykjavík. Þar sem ég gekk í farskóla í sveit og þar sem ég þekkti til á þeim árum, var það algengt, að nemendur voru látnir semja frá eigin brjósti eina ritgerð á viku. Þegar mín börn fóru að ganga í skóla hér í Reykjavík, þá tíðkuðust þar kannske ein eða tvær ritgerðir á vetri eða jafnvel engin, og það eftir að komið var upp í gagnfræðaskóla.

Þetta tel ég mjög varhugaverða þróun, að megináherslan sé lögð á utanbókarlærdóm á stafsetningarreglum eða málfræðireglum, en þjálfun í beitingu málsins í ræðu og riti sé látin sitja á hakanum. Ég er ekki einn um þessa skoðun. Hún hefur komið fram hjá mörgum og ekki síst móðurmálskennurum. Einmitt þess vegna fer nú fram endurskoðun á móðurmálskennslu. Eins og ég tók fram í fyrri ræðu minni, var stafsetingarnefnd skipuð einmitt til að fjalla um stafsetningu, svo að það væri gert í samhengi við þá endurskoðun, sem hér á sér stað á námsefni og námsskrá. Og í þessari endurskoðunarnefnd eru móðurmálskennarar.

Hún hefur ekki skilað störfum. Hv. 4. þm. Austf. reyndi að gera hana hlægilega hér áðan í ræðu sinni með því að vitna í hjákátlegt orðaval, að hann taldi, í fyrirsögn á riti, sem hún hefur sent frá sér til kennara til þess að fá við því viðbrögð og gagnrýni. Hvort rétt er eða rangt að veita orðinu marklýsingu nýja merkingu, þegar um það er að ræða að lýsa markmiðum, hvort það á aðeins að nota til að lýsa eyrnamörkum, um það vil ég ekkert segja, hvort þetta er heppilegt orðaval eða ekki. En þar sem hann áfellist n. fyrir, að hún virtist taka sér löggjafarvald, með því að hún léti eins og grunnskólafrv. væri gengið í gildi, þá er slíkt siður en svo einsdæmi. Ég hef borið hér fram frv. á Alþ. um framhaldsskólastigið, þar sem að því er vikið, í grg. og aths., að miðað sé við, að grunnskólafrv. hljóti afgreiðslu í stórum dráttum eins og það hefur verið lagt fyrir. Það er ekki óeðlilegt um slíkt mál, sem mikið hefur verið fjallað um og að vísu hefur ekki sætt fullnaðarmeðferð, en liggur fyrir Alþ. til afgreiðslu, að í áætlanagerð langt fram í tímann um einstakar námsgreinar sé tekið til þess tillit, enda þótt frv. sé ekki orðið að lögum.

Þá reyndi hv. 4. þm. Austf. að gera það tortryggilegt, sem eftir mér er haft í viðtali við Morgunblaðið í haust, og lagði í mín orð þá merkingu, að þar væri ég í rauninni að fá stafsetningarnefndinni alræðisvald um afnám setunnar og þá önnur stafsetningaratriði. Honum láðist að greina frá því, að áður var ég búinn að lýsa yfir því, að ég hefði samþykkt þessa till. n., og samkv. allri meðferð stafsetningarmála á Íslandi frá upphafi vega hafa breytingar á því sviði gerst þannig, að fróðir menn um mál og móðurmálskennslu hafa gert till., og þegar ráðh, hefur samþykkt þær, er breytingin óhjákvæmileg. Ég held, að þetta sé ekki óviðurkvæmilegt orðaval. Það er í fyllsta samræmi við meðferð stafsetningarmála, frá því að íslensk stjórnvöld létu þau til sín taka.

Þegar hv. 4. þm. Austf. heldur því fram, að frá 1929 hafi allt verið í sátt og samlyndi um z, er það víðs fjarri staðreyndum málsins. Eins og á var minnst í fyrri hluta umr., var gefin undanþága frá z-reglunni þegar 1934. Og málfræðingar eins og doktorarnir Björn Guðfinnsson, Björn Sigfússon og Halldór Halldórsson formaður þeirrar n., sem um stafsetningarmálin fjallaði að þessu sinni, hafa allir deilt mjög hart á z-regluna í stafsetningunni frá 1929 og fjölmargir aðrir. Og hversu mætti það ske, ef þá hefði verið komist að niðurstöðu, sem væri óvefengjanleg og hrein hótfyndni að hagga við, að n. valinkunnra móðurmálskennara, sem eru ósammála um ýmis atriði í áliti sínu, skyldu verða algerlega sammála um, að þetta væri sú breyting, sem þeir gætu lagt til að hálfnuðu starfi sínu? Þetta eitt afsannar gersamlega þá staðhæfingu hv. 4. þm. Austf., að z-an sé í rauninni óhagganleg og eigi ævinlega að vera í þeim sessi, sem hún fékk með stafsetningarreglunum 1929.

Þá vék hv. 4. þm. Austf. nokkuð að því, sem ég hafði vakið athygli á, að höfundur Fyrstu málfræðiritgerðar, hvort sem hann hét nú Hallur Teitsson eða annað, hefði sagt, að z væri hebreskur stafur. Það voru ekki rök Halls eða hvers þess höfundar, sem Fyrstu málfræðiritgerðina reit, fyrir því, að z ætti ekki heima í íslensku máli, að stafurinn hefði hebreskan uppruna, slíkt var fróðleiksatriði, sem höfundur lét koma fram lesendum sínum til fróðleiks. Rök hans eru þau, að z sé óþörf í íslensku máli. Og ef masti málfræðingur 12. aldar og jafnvel fram til Rasks komst að þeirri niðurstöðu, að setan væri óþörf í íslensku ritmáli á miðri 12. öld, hvernig í ósköpunum getur þá hv. frsm. rökstutt það, að afnám z úr lögboðinni stafsetningu nú ofarlega á 20. öld sé undanhald frá þeim reglum og þeirri rækt sem Íslensk tunga hefur byggst á um allar þessar aldir.