31.01.1974
Sameinað þing: 49. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1943 í B-deild Alþingistíðinda. (1760)

164. mál, framkvæmd Inn-Djúpsáætlunar

Flm. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Á þskj. 237 flytjum við þm. Vestf. till. til þál. um framkvæmd Inn- Djúpsáætlunar. Inn- Djúpsáætlun er að mínu viti að mörgu leyti mjög merk og gæti orðið til fyrirmyndar fyrir landbúnaðarhéruð víðar um landið, ekki síst þau, sem eiga við nokkra aðstöðuerfiðleika að stríða. Ég hefði því raunar gjarnan viljað flytja um þetta

nokkuð ítarlegt mál, en mun þó reyna að stytta mál mitt, því að áliðið dags er orðið og fáir þm, orðnir eftir í þingsölum. Þó vil ég í fáum orðum aðeins fara yfir aðstæður og aðdraganda Inn- Djúpsáætlunar.

Inn-Djúpið, sem hér er fjallað um, er í Norður- Ísafjarðarsýslu, og nær áætlunin yfir þann hluta, sem telst frá Hestfirði og að Jökulfjörðum. Þar eru fjórir hreppar: Ögurhreppur, Reykjarfjarðarhreppur, Nauteyrarhreppur og Snæfjallahreppur. Landssvæðið allt er um 163 þús. hektarar. Neðan við 300 m hæðarlínu eru um 44 þús. hektarar eða 27%. Strandlengjan þarna er æðilöng í kringum þennan mikla fjörð og firði eða um 190 km. Þarna hefur landbúnaður átt í nokkrum erfiðleikum vegna að ýmsu leyti erfiðrar aðstöðu. Að vísu eru beitilönd allgóð, en þó á sumum svæðum erfið. Þarna er á sumum svæðum snjóþungt. Það gerir einnig afstöðu erfiða, að samgöngur við það þéttbýli, sem þarna er næst, Ísafjörð, eru nánast aðeins á sjó. Þarna hefur ekki notið raforku frá samveitum fyrr en nú allra síðustu árin, að slíkar línur teygja sig smám saman yfir svæðið. Þarna hafa bú flest verið lítil og yfirleitt langt fyrir neðan það vísitölubú, sem rætt er um í dag. Afleiðingin hefur m.a. af þessum sökum, orðið sú, að byggðir þarna norður af hafa smám saman farið í eyði. Hefur sú þróun stöðugt sótt að þessum hreppum, sem eru nú eins konar útverðir íslenskrar byggðar, a.m.k. í norðvestri. Þannig er nú orðið mjög fátt manna í Snæfjallahreppi, og hinir hrepparnir hafa að vísu haldið betur í horfinu, en þar hefur þó einnig fækkað mikið. Mönnum varð ljóst, að þarna varð að gera myndarlegt og sameiginlegt átak, ef takast ætti að bjarga þessum byggðum frá sömu örlúgum og Hornströndunum almennt. Þetta var ekki aðeins nauðsynlegt vegna íbúa þessa svæðis, þó að það út af fyrir sig sé mikilsvert, heldur vil ég leggja á það áherslu, að þetta er ákaflega þýðingaranikið fyrir þá þéttbýliskjarna, sem næstir eru. Þeir fá gjarnan nýtt blóð úr þessum byggðum, og ef það þrýtur, bíða þeirra, óttast ég, einnig sömu örlög, að þar fækki og fari í eyði. Það er því mjög mikilvægt, og það vil ég undirstrika, að búa vel að slíkum útvörðum byggða, styrkja þá eins og mest má vera, til þess að byggðin á stærra svæði híði ekki varanlegt tjón af.

Inn- Djúpsáætlun hefur verið lögð fram í þremur myndarlegum skýrslum, þar sem er að finna áætlanir fyrir einstaka bændur og mjög ítarlegar upplýsingar um svæðið allt og einnig um hina ýmsu þætti, sem verða að fylgjast að, þótt ekki teljist þeir til landbúnaðarframkvæmda, eins og vegagerð og samgöngur almennt, raforkumál og fjölmargt fleira.

Ég ætla að grípa aðeins niður, með leyfi hæstv. forseta, í grg. þeirri, sem fylgir Inn- Djúpsáætluninni.

Árið 1971 fóru fram viðræður milli landnámsstjóra og stjórnar búnaðarfélaga þessara hreppa, sem ég hef nefnt. Um svipað leyti skrifaði Ræktunarsamband Nauteyrar- og Snæfjallahrepps til Búnaðarfélags Íslands út af fjárhagserfiðleikum af rekstri véla sambandsins, og var það erindi sent landnámsstjóra til athugunar.

Þá fjallaði Stéttarsamband bænda í september 1971 um erindi oddvita og formanna búnaðarfélaga áðurgreindra hreppa, þar sem farið er fram á aðstoð til að auka ræktun við Inn- Djúp, vegna kals og harðæris undanfarin ár og treysta á þann hátt búsetu á þessu svæði. Á þeim aðalfundi var samþykkt till., þar sem stjórn Stéttarsambandsins var falið að leita eftir því við landnámsstjóra, að Landnám ríkisins tæki að sér endurskipulagningu á ræktun í Inn- Djúpi. Landnámsstjórn tók þessi mál fyrir á fundi í okt. 1971 og fól landnámsstjóra að vinna að málinu og kanna möguleika á endurskipulagningu ræktunarmála í þessum fjórum hreppum.

Má segja, að þar með hafi hafist forusta Landnáms ríkisins um frumkönnun og áætlanagerð fyrir búskap á jörðum við Inn- Djúpið. Þar voru kannaðir þegar í upphafi grundvallarþættir, eins og t.d. túnstærð, bústofn nautgripa og sauðfjár og enn fremur peningshús hinna einstöku jarða. Niðurstöður leiddu í ljós, að meðalbústærð í þessum fjórum hreppum var um 110 ærgildum undir landsmeðaltali eða um 290 ærgildi.

Á fundi á Reykjanesi 19. júní 1972 var kosin fimm manna nefnd heimamanna til þess að endurskoða áætlunina og samræma í samstarfi við Landnám ríkisins. Á seinni hluta ársins 1972 var þessi áætlun tekin til endurvinnslu, og kom þá í ljós, að fjárfestingarþörf mundi vera um 84 millj. kr., ef koma ætti búum bænda við Inn- Djúp í 400 ærgildi. í þessum kostnaði er innifalin öll fjárfesting í ræktun, peningshúsabyggingum og bústofnsauka. Um helmingur þessa fjár fengist sem lán úr Stofnlánadeild og framlög samkvæmt jarðræktarlögum.

Áætlun þessi var síðan rædd í landnámsstjórn og gefin út í lok ársins 1972 í skýrsluformi. Þannig var hún send landbrh., og alþm. Vestf. fengu hana einnig til athugunar. Þá fékk Búnaðarfélag Íslands áætlunina til athugunar, Framleiðsluráð landbúnaðarins, Stéttarsamband bænda o.fl.

Ljóst var strax, að þarna hafði verið unnið hið merkasta undirbúningsstarf. Engu að síður þótti mönnum, að þessa áætlun þyrfti að útfæra nokkru nánar, áður en unnt væri að hefja framkvæmdir af fullum krafti. Sérstaklega sýndist ýmsum, að kanna þyrfti betur hugmyndir og þarfir einstakra bænda. Niðurstaðan varð því sú, að hæstv. landbrh. skipaði fimm manna nefnd til að vinna að gerð áætlunarinnar, þ.e.a.s. á grundvelli þeirrar frumáætlunar, ef ég má nefna bana svo, sem lögð var fram í okt. 1972. Í nefnd þessa voru skipaðir: Árni Jónsson landnámsstjóri sem var jafnframt formaður nefndarinnar, Ásgeir Svanbergsson, Þúfum, Norður- Ísafjarðarsýslu, Engilbert Ingvarsson Tyrðilsmýri, Norður- Ísafjarðarsýslu, Jóhann T. Bjarnason, Sætúni 5, Ísafirði, framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Vestfirðinga, og Jón Guðjónsson, Laugahóli Norður- Ísafjarðarsýslu. Hér var því sett á fót nefnd undir forustu landnámsstjóra, en að öðru leyti fyrst og fremst skipuð heimamönnum. Þessi nefnd tók síðan til óspilltra málanna og vann hið merkasta starf, fyrst og fremst sumarið 1973, þ.e.a.s. síðastliðið sumar. Það yrði of langt mál að telja upp þá fjölmörgu þætti, sem nefndin tók til athugunar, en almennt má segja, að hún hafi skoðað ekki aðeins alla búskaparaðstöðu og alla þætti búskapar í Inn- Djúpi, heldur einnig fjölmarga aðra þætti og nánast alla aðra þætti, sem við koma byggð á þessu svæði.

Að sjálfsögðu er um kostnaðarsama og mikla framkvæmd að ræða. Var strax ljóst, að ekki yrði unnt að fá allt nauðsynlegt fjármagn frá lánasjóðum landbúnaðarins, enda þar ekki gert ráð fyrir svo mikilli fjármögnun eins og hér er um að ræða. Því var farið fram á í fyrsta lagi, að fjárveitingavaldið sýndi samþykki sitt við þessa áætlun með nokkurri fjárveitingu á fjárlögum ársins 1974. Fengust 5 millj. kr. í þessu skyni. Það er ef til vill ekki mikil upphæð, en ég fyrir mitt leyti tel hana ákaflega mikilvæga, því að hún gefur til kynna ákveðinn stuðning fjárveitingavaldsins við það .skipulega og myndarlega Framtak, sem hér er um að ræða. Þá hafa nm. einnig rætt við forstöðumenn Framkvæmdastofnunar ríkisins, og þar liggur nú fyrir erindi frá landnámsstjórn um aðstoð Byggðasjóðs við þetta mál. Ég get að sjálfsögðu ekkert fullyrt um afgreiðslu málsins þar, en það get ég sagt, að málið er sjálfsagt og eðlilegt byggðamál, og ég fyrir mitt leyti get ekki séð annað en að það hljóti að vera í verkahring Byggðasjóðs að veita þar myndarlega aðstoð. Ég vil geta þess, að þeir einstaklingar, sem hafa unnið fyrst og fremst að þessari áætlunargerð, eru Jón Rafnar Björnsson og Jóhann T. Bjarnason, sem ferðuðust um allt áætlunarsvæðið, kynntust hverjum einstökum bónda og áætlunum hans, ræddu við hann um þessar áætlanir og unnu út þær kostnaðartölur og annað, sem í þessari áætlun birtast. Einnig voru fengnir til aðrir sérfræðingar, sem ferðuðust um áætlunarsvæðið, eins og Óttar Geirsson ráðunautur, Sveinn Hallgrímsson ráðunautur, Gunnar M. Jónasson forstöðumaður Byggingarstofnunar landbúnaðarins o.fl., og þeir könnuðu sérfræðileg atriði. Þá hafa þegar verið lagðar út nokkrar jarðræktartilraunir á Inn- Djúpssvæðinu sumarið 1973, og gerði það tilraunastjórinn á Reykhólum, Ingi Garðar Sigurðsson. Ég hygg því, að segja megi og niðurstaðan hljóti að verða sú, að áætlun þessi sé mjög vel undirbúin, mjög vel unnin á allan máta og sannarlega verðug þess, að hún fái skjóta og góða framkvæmd.

Einhver kann að spyrja, hvert markmiðið sé með þessari áætlun. Markmiðið er að sjálfsögðu að bæta byggð á þessu svæði, en þó þykir mér rétt að lesa upp úr grg., sem áætluninni fylgir, markmiðið, eins og það er sett fram í örfáum atriðum:

Markmið byggðaáætlunar fyrir Inn- Djúpið er í stuttu máli :

1) Að efla atvinnulíf svæðisins með því að stækka búin og gera þau rekstrarhæfari og treysta með því og auka búsetu á svæðinu.

2) Að tryggja landbúnaðarframleiðslu og hafa áhrif á val búgreina með hliðsjón af neysluþörf fólks í þéttbýli á norðanverðum Vestfjörðum.

Inn- Djúpsnefnd vann að áætlunargerðinni í aðalatriðum með því:

1) Að gera nákvæma úttekt á búskap allra ábúenda á áætlunarsvæðinu og meta búskaparmöguleika á hinum einstöku jörðum, bæði byggðum og óbyggðum, ennfremur að athuga efnahag, tekjur og tekjumöguleika bænda við núverandi aðstæður.

2) Að athuga sem flesta samfélagsþætti, er varða íbúa áætlunarsvæðisins, og samband og samskipti þeirra við aðra byggð við Ísafjarðardjúp og nærliggjandi héruð.

3) Að gera landbúnaðar- framkvæmdaáætlun í samráði við bændurna, er nái yfir tímabilið frá 1973–1978, og verði við það miðað í áætluninni, að bústærð og afurðir búsins hafi náð landsmeðaltali í lok þessa áætlunartímabils, þannig að meðalfjölskylda hafi eðlilegar árstekjur og atvinnu af búinu sjálfu, eftir því sem starfsorka leyfir, og treysta á þann hátt búsetu á svæðinu.

4) Að framkvæmd áætlunar geti hafist í ársbyrjun 1974, en nái jafnframt til framkvæmda 1973, og að ríkisstj. og Alþingi tryggi, að svo geti orðið, með útvegun lánsfjár til fjárfestingar og óafturkræfum framlögum til jöfnunar á aðstöðu, og séu fjölmennustu landbúnaðarsvæði landsins höfð til viðmiðunar, en ekki miðað við landsmeðallag, sbr. verðlagsgrundvöll landbúnaðarvara.

Þannig er markmiðinu og starfsháttum lýst í skýrslunni.

Eins og ég sagði í upphafi máls míns, hefði verið freistandi að ræða ítarlega um þetta verk. Ég er sannfærður um, að það getur orðið til mikillar fyrirmyndar, ekki síst á svæðum, þar sem aðstaða er erfið. Og það er einlæg von mín, að svipuð vinnubrögð verði a.m.k. viðhöfð í öðrum hlutum Vestfjarðakjördæmis, þar sem álíka er ástatt, og raunar mun þegar vera í athugun að gera svipaða áætlun t.d. fyrir Austur- Barðastrandarsýslu. En þetta verður að nægja að þessu sinni um málið.

Ég vík að lokum að þáltill. Mönnum var að sjálfsögðu ljóst, að nauðsynlegt var að fela einhverjum einum aðila framkvæmd Inn- Djúpsáætlunar. Það er ekki nóg að gera áætlun, það verður að tryggja framkvæmd hennar. Þótti mönnum þá eðlilegast að fara þess á leit við Landnám ríkisins, að það hefði yfirumsjón með framkvæmd Inn- Djúpsáætlunar, enda hefur Landnámið haft þar þá forustu, sem vel hefur tekist.

Ég vil svo að lokum leggja til, að þessari umr. verði frestað og málinu vísað til allshn.