04.02.1974
Efri deild: 53. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1951 í B-deild Alþingistíðinda. (1764)

178. mál, Félagsmálaskóli alþýðu

Félmrh. (Björn Jónsson):

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð út af því, sem hv. 2. þm. Norðl. e. sagði, þar sem hann taldi, að tvenn fjölmenn launþegasamtök væru sniðgengin varðandi réttindi í sambandi við þann skóla, sem hér er um að ræða. Um það vil ég segja það eitt, að ég tel sjálfsagt, að þetta atriði sé athugað í hv. þn. og við þá meðferð, sem málið fær hér á þingi. En ég vil taka fram, að það er skoðun mín, að Alþýðusamband Íslands, sem hefur nú milli 40 og 50 þús. félaga, sé uppistaðan í Íslenskri verkalýðshreyfingu, en hvorugt þeirra sambanda, sem hv. þm. nefndi, sé á neinn hátt mælanlegt við það. Það er fyrst og fremst Alþýðusambandið og þau félög, sem það skipa, sem móta stefnuna í kjaramálum, hafa forustuna í kjarabarátunni og allur þungi þeirrar baráttu hvílir á. Hitt er svo annað mál, sem ég vil jafnframt vekja athygli á, að stjórn skólans á að vera skipuð þrem mönnum, og hefur þótt sjálfsagt, að verkalýðssamtökin hefðu þar meiri hluta, þannig að þau gætu sjálf mótað skólann. Annað teldi ég raunverulega ekki sæmandi gagnvart efni málsins en að tveir skólanefndarmannanna, þeir sem mynda meiri hlutann, séu tilnefndir sameiginlega af Menningar- og fræðslusambandi alþýðu og af Alþýðusambandi Íslands. Nú er það svo, að í lögum Menningar- og fræðslusambands alþýðu er svo ákveðið, að í það geta gengið öll þau launþegasamtök, sem að einhverju leyti hafa fræðslustarf með höndum. Það er þess vegna opið fyrir bæði BSRB og Farmanna- og fiskimannasambandið og önnur launþega samtök, sem utan Alþýðusambandsins standa, að gerast aðilar að Menningar- og fræðslusambandi alþýðu og hafa þannig áhrif á stjórn skólans skv. ákvæði 5. gr. Hitt er ég líka sannfærður um, og ég tel ekki, að neitt sé í l., sem hindri það á nokkurn hátt, að aðgang að skólanum gætu átt aðilar í þeim samtökum, sem hann nefndi, og reyndar mætti fleiri til nefna, því að hér er ekki allt upp talið, þó að nefnt sé BSRB og Farmanna- og fiskimannasambandið. Væri þá hægt með sama rétti og hann nefndi sérstaklega að segja, að jafnvel þó að þau væru tekin með í skólastjórn eða skólanefnd, þá væru sniðgengin önnur samtök, sem þarna koma við sögu. Það er auðvitað hægt, þangað til upp væru talin öll sjálfstæð launþegasamtök, sem ekki eru innan þessara þriggja tiltölulega stóru samtaka.

Aðalatriði málsins finnst mér vera það, að frv. gefur meðlimum Alþýðusambandsins engin sérréttindi umfram aðra, nema þá í sambandi við skólanefndina. Og ég hygg, að ef rétt hlutföll ættu að ríkja við stjórn skólans í samræmi við mannfjölda í þessum samtökum, þá verði hlutur þessara samtaka, sem hv. þm. nefndi, ekki ákaflega stór. Engu að síður finnst mér alveg sjálfsagt, að þn. myndi sér skoðun á þessu og við ræðum það nánar, þegar hún hefur sagt álit sitt um málið.