04.02.1974
Neðri deild: 57. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1976 í B-deild Alþingistíðinda. (1780)

144. mál, vínveitingar á vegum ríkisins

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Ég heyrði það á ræðu hv. síðasta ræðumanns, að hann telur, að ég hafi mælt með því að auka drykkjuskapinn og ég sé á móti því að stemma stigu við vaxandi áfengisneyslu. Ég verð að segja það, að mér finnst athyglisgáfa þessa hv. þm. vera í öfugu hlutfalli við hávaðann, því að það, sem á milli hans og mín bar, var það, að ég tel, að þær till., sem hér liggja fyrir, að hvorug þeirra gangi neitt verulega í þá átt að stemma stigu við sífellt vaxandi vínneyslu þjóðarinnar, bæði eldri og yngri, og ég meira að segja tók mjög undir, að það væri mjög athugandi, hvort við ættum ekki að loka Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins.

Ég gerði áfengið að höfuðumræðuefninu. En það mætti líka nefna í þessu samhandi tóbakið, það er ekki síður eitrað, og það er að sínu leyti verra en áfengið, því að sá, sem drekkur áfengi, drekkur það fyrir sig, en sá sem reykir, púar reyk framan í alsaklausa menn, þannig að lyktin af Churchill-vindlunum nær stundum hér inn í þingsalinn. Ég vænti þess, að þessir miklu frömuðir hafi þessa hófsemi líka í huga í framtíðinni.

Ég endurtek það og meina það fullkomlega, að það er ákaflega lítið mál í sjálfu sér, vínveitingar á vegum þess opinbera, ef allar aðrar aðgerðir miða að því, að það eigi að selja meira vín og meiri vínanda. Þetta er bjargföst skoðun mín. Ég skal einnig segja það, að ég hef greitt atkv. hér á Alþ. með því að leyfa bruggun og sölu á áfengu öli, og það er ekki af þeirri ástæðu, að ég telji, að það leiði til vaxandi drykkjuskapar, heldur að ég trúi því og hef verið þeirrar skoðunar, að það muni minnka áfengisneyslu eða neyslu sterkra drykkja. Bjórinn hefur þau áhrif, að fólk verður eins og einn ágætur þm. lýsti því hér undir þeim umr., rólegra við að drekka bjór, en æstara við að drekka vín, og það hefur töluvert að segja. Bjór hefur ekki verið leyfður í okkar landi, áfengur bjór, og það hefur verið ein af höfuðröksemdum þeirra, sem eru á móti því að leyfa bruggun og sölu á áfengum bjór, að það auki drykkjuskap unglinga. En ég sé ekki betur en drykkjuskapur unglinga í þessu landi hafi aukist ekki síður en í öðrum löndum, þar sem bjórdrykkja er leyfð, og því hafa þessi rök ekki getað sannfært mig til að falla frá þessari skoðun.

Hitt er svo annað mál, og það er staðreynd, það liggur fyrir, að það er sífellt vaxandi áfengisneysla í landinu, og það, sem er sorglegast af þessu öllu, er, að það, sem var óþekkt fyrir nokkrum árum, vínneysla meðal unglinga, er nú orðið algengt. Þetta er alvarlegasta sporið aftur á bak, og þetta er sú mesta meinsemd, sem nú er við að etja og alþm. ættu að koma sér saman um að stemma stigu við. Ég benti á það áðan, að ég tel rétt og skynsamlegt að færa aldur þeirra, sem með vin mega fara, á meðan þessi löggjöf er og vinsala er leyfð í landinu, niður og hefja róttækar aðgerðir gegn vinneyslu unglinga og barna, sem fer sífellt meira í vöxt. Það er ágætt að leggja niður cocktail-boðin, en það breytir ekki því, að úr drykkjuskap unglinga verður ekkert dregið, á meðan þjóðfélagið hyggir alltaf sífellt meira tekjur sínar á vaxandi vinsölu. Þetta vil ég, að komi fram, og ég vænti þess, að hv. þm., sem var að tala hér áðan, sé nú með á því, að ég var ekki að flytja hér ræðu til þess að hvetja til meiri drykkju í landinu, heldur til áhrifaríkari aðgerða en þessar tvær till. gera ráð fyrir, sem við þm. ættum að geta komið okkur saman um, og þá einnig að tekið yrði tillit til áhrifaríkra aðgerða í sambandi við tóbaksreykingar alveg eins og vínneyslu.