04.02.1974
Neðri deild: 57. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1977 í B-deild Alþingistíðinda. (1781)
144. mál, vínveitingar á vegum ríkisins
Vilhjálmur Hjálmarsson:
Herra forseti. Hv. 2. þm. Vestf. talaði um að leggja niður áfengiseinkasölu ríkisins. Það stafar ekki af öðru en því, að honum er illa við að skeyta saman óskyld mál eins og tolla og söluskatt og eins og loðnuskip og ferjuskip, að hann hefur ekki hengt ákvæði um það aftan í frv. um að lækka tekjuskattinn um 4 milljarða að leggja niður áfengis- og tóbakseinkasölu ríkisins. En ég geri ráð fyrir, að hann beri fram frv. um þetta við fyrsta hentugt tækifæri, en kannske gerir hann það þó ekki fyrr en hann fer sjálfur að bera beina ábyrgð á fjármálum ríkisins sem stuðningsmaður ríkisstj.
Þetta frv., sem hér liggur fyrir og ég vil segja um örfá orð við 1. umr., er að sjálfsögðu merkilegt frv. Það ber a.m.k. alveg óumdeilanlega vott um töluvert mikla hugkvæmni. Nú er enginn vafi á því, að Alþ. getur sett lög um flestar athafnir og yfirleitt hegðan Íslendings, svo lengi sem löggjöfin samrýmist ákvæðum stjórnarskrárinnar. En ég sé hins vegar enga ástæðu til þess að setja löggjöf um þau atriði, sem frv. fjallar um, og ég tel meira að segja að verulegu leyti óskynsamlegt að lögbjóða víndrykkju í tilgreindum veislum ríkisins, en banna hana í öðrum, en þetta finnst mér nánast vera efni frv. Það er vegna þess, að það er alvitað, að hámarksákvæði yfir höfuð að tala verka hvetjandi til þess að nota það leyfilega hámark. Það er náttúrlega ekki hægt að segja, að áfengisdrykkja sé bókstaflega lögboðin með þessu hámarksákvæði, en það jaðrar við það.
Víndrykkja við margvísleg tækifæri, líkleg sem ólíkleg, er nú orðin svo almenn, að þeir menn eru nánast taldir undarlegir, sem ganga á svig við þessa venju. Og eftir því sem víndrykkja hefur orðið almennari, fjölgar auðvitrað þeim tilfellum, þegar vínneysla veldur umtalsverðum erfiðleikum eða hreinum vandræðum á stundum. Sem fyrstu viðleitni til að breyta því almenningsáliti, að áfengi megi aldrei vanta, þar sem menn safnast saman á góðri stund, þá var það, að ég og nokkrir aðrir alþm, fluttum um það till. á síðasta þingi og aftur núna, að ríkisstj. gengi nú á undan og hætti vínveitingum í sínum veislum. Við 1. umr. um þetta frv, hérna vil ég leyfa mér að benda á, að það gengur rað nokkru leyti alveg í þveröfuga átt við till. okkar fimmmenninganna. Megintilgangur þessa frv, virðist mér vera sá að fága svo sem frekast er auðið vínveislur ríkisins, svo að þær megi verða enn þá girnilegra fordæmi til þess að breyta eftir, og þá helst þannig, að mönnum detti ekki framar í hug, a.m.k. þegar mikið á að hafa við, sbr. matarveislur hjá því opinbera sá dónaskapur að mæta gesti sínum öðruvísi heldur en með glas í hönd, a.m.k. þegar boðið er meiri háttar. Ég er þess vegna í grundvallaratriðum andvígur þessu frv., auk þess sem efni þess og uppbygging er allt að því broslegt frá mínu sjónarmiði.
Ef maður vildi nú samt sem áður virða til betri vegar tilgang flm. og reyna að setja sig inn í þá hugsun þeirra, rað ríkið eigi að fága vínveislur sínar sem mest, þá er það að vísu alveg fjarlægt minni hugsun. Ég álit einfaldlega, að stjórnvöld eigi með fordæmi sínu að gera tilraun til að brjóta niður þessa almennu trú, að ekki sé vel á móti mönnum tekið, nema veitt sé vín.
En segjum nú svo, að tilgangur hv. flm. með þessu frv. sé sá að gera tilraun til að minnka víndrykkju á þessu takmarkaða sviði. Mér sýnist fremur lítils virði að ætla sér að nálgast það mark að draga almennt úr víndrykkju í landinu á þennan hátt, til þess eru ýmsar aðrar leiðir miklu líklegri.
Ég nefni fyrst það, sem við höfum sett fram hér í tillöguformi, 5 þm., og ég hef áður vikið að, að hið opinbera gefi það fordæmi að afleggja sýnikennsluna, sem ég kallaði svo, þegar ég talaði fyrir till., afleggja sýnikennsluna og taka upp háttu t.d. Tryggva heitins Þórhallssonar og fleiri ráðherra og auðvitað fleiri ráðamanna, þó að fáir séu, sem hafa leyft sér það og án þess að á þá félli nokkur skuggi að bjóða góðum gestum til fagnaðar án þess að veita þeim vín. Ég er ekki að segja, að þetta sé nein alhliða aðgerð og leysi neinn vanda til hlýtar. En mér finnst þetta vera afskaplega einföld aðgerð og vandalítil, ef menn vilja á annað borð gera eitthvað, ég get ekki annað séð. Ég nefni sem annað dæmi enn aukna fræðslu og kynningu á þeim vanda, sem vindrykkja veldur. Það er aftur á móti flókið mál og vandasamt, miklu vandasamara viðfangsefni heldur en auðvelt er að gera sér grein fyrir í fljótu bragði, en þarf eigi að síður að sinna. Og ég nefni enn, að aukinn yrði stuðningur hins opinbera við frjálsa starfsemi í mjög mörgum myndum, frjálsa starfsemi þess fólks, sem hefur helgað baráttunni gegn áfengisbölinu krafta sína og oft starfar við erfið skilyrði á margan hátt. Það er hægt að bæta úr því að nokkru með fjárframlögum, en að öðru leyti verður slík starfsemi að vinna sig upp sjálf. Og svo nefni ég það enn og síðast að skipulega verði að því unnið að glæða með fólki og einkum með ungu fólki heilbrigð og æskileg viðhorf til tómstundanna. Nú hafa Íslendingar lögboðið, eins og allir vita, 104 hvíldardaga á ári, þ.e.a.s. alla laugardaga og alla sunnudaga, með 52 aðfangadagskvöldum, sem byrja kl. 5, aðfangadagur jóla byrjar þó ekki fyrr en kl. 6, byrja svona hjá mörgum starfshópum a.m.k., kl. 5 á föstudögum, auk svo fjölmargra annarra helgi- og frídaga, að ógleymdu fjögurra vikna sumarleyfi. Þessum hvíldardögum hefur nýlega fjölgað mjög mikið, og það er þess vegna ákaflega mikils virði, að þeir, sem ekki nota frítímann til tekjuöflunar, nái að temja sér strax í æsku heppilega notkun tómstundanna, t.d. við íþróttir, útivist ýmiss konar, náttúruskoðun eða ræktunarstörf í einhverri mynd, tónmennt, föndur eða listsköpun ýmiss konar. Tómstundaþjóðfélagið er á vissan hátt nýtt hér á Íslandi. því fylgja mikil vandamál, sem kalla á aðgerðir. Ég held, að allt þetta, sem ég nefndi, væri miklu líklegra til þess, hvert út af fyrir sig og ég tala nú ekki um allt til samans, að hamla gegn ofneyslu áfengis heldur en það frv., sem hér liggur fyrir.
Ég vil að lokum segja, að það sem ég óttast mest í sambandi við áfengismál Íslendinga núna, er þetta, að sú þróun, sem nú hefur átt sér stað, að nálega hver maður á öllu sviðinu frá unglingunum á fermingarskeiði og yfir til forráðamanna þjóðarinnar telji áfengi óhjákvæmilegan og sjálfsagt í mörgum tilfellum æskilegan lífsförunaut, — ég óttast, að þessi þróun hafi það í för með sér, þegar fram í sækir, að vandamálin verði miklu fleiri en áður, á meðan færri — miklu færri tóku þátt í víndrykkju strax á ungum aldri. Þetta er það, sem ég óttast alveg sérstaklega, að slík þróun biði fram undan, að vandamálin verði miklu fleiri.
Ég skal segja það að lokum, af því að menn hafa verið að minnast hér á þá till., sem enn liggur fyrir í sameinuðu þingi, að ég tel, að það skynsamlegasta, sem hægt er að gera í fljótu bragði og þá engu til kostað, eins og ég sagði áðan, sé, að opinberir aðilar taki sig nú til og gefi það fordæmi að veita ekki vín, hafa ekki vín um hönd, þegar þeir sem slíkir standa fyrir mannfagnaði. Ég get svo sagt það að lokum, t.d. í tilefni af orðum hv. 2. þm. Vestf., að ég blygðast mín fyrir úrræðaleysi og aðgerðaleysi mitt og annarra alþm. í þessu vandasama máli.