04.02.1974
Neðri deild: 57. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1980 í B-deild Alþingistíðinda. (1783)

144. mál, vínveitingar á vegum ríkisins

Flm. (Ingvar Gíslason):

Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr. Ég sé ekki ástæðu til þess. Ég gerði rækilega grein fyrir afstöðu minni og efni þessa frv. í frumræðu, og ég held, að ég bæti ekki mikið úr að fara að auka þar neinu við.

Það má náttúrlega segja, að ég hafi ekki neina sérstaka ástæðu til þess að vera ánægður með þessar umr. og það, sem fram hefur komið í máli þeirra hv. þm., sem hér hafa talað. Vissulega væri ástæða til að minnast á ýmis atriði, sem þar komu fram, en ég ætla ekki að gera það. En þó er það eitt atriði, sem mér þykir ákaflega mikilsvert, að menn skilji rétt og fari rétt með, vegna ummæla og vegna skilnings, sem fram kom hjá hv. 7. landsk, þm. og endurtekið af hv. 5. þm. Austf. Það er sá furðulegi skilningur, að í þessu frv. felist, að verið sé að lögleiða víndrykkju í opinberum veislum. Þessari fullyrðingu hélt hv. 7. landsk. þm. fram, og þetta endurtók frændi minn og ágætur vinur, 5. þm. Austf. Ég er í rauninni alveg hissa á þessum mönnum, að þeir skuli gera þetta, að þeir skuli túlka þetta frv. með þessum hætti, því að þeir hljóta, að sjá, um leið og þeir lesa það, og raunar kom það greinilega fram í mínu máli, að þetta er alröng túlkun, alrangur skilningur. Þessu vil ég bæði mótmæla og einnig minna hv. þdm. á, að þarna er rangt með farið. Það segir ekkert annað í frv. heldur en það, að íslenska ríkinu sé óheimilt að standa fyrir cocktail-boðum, hins vegar sé heimilt að veita vín í opinberum matarveislum. Við vitum það mætavel, hv. þm. allir, hvað í því felst, þegar mönnum eða aðilum er heimilað eitthvað samkv. lögum. Þá felst ekki í því nein skylda til þess að neyta þeirrar heimildar. Þetta vita þessir hv. þm., og þess vegna þykir mér undarlegt, að þeir skuli halda þessu fram, eingöngu til þess að finna einhvern ásteytingarstein í þessu frv.

Að öðru leyti sé ég ekki ástæðu til að ræða frekar það, sem fram hefur komið, þó að það sé óneitanlega eitt og annað, sem ástæða væri til að gera aths. við.