05.02.1974
Sameinað þing: 50. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1991 í B-deild Alþingistíðinda. (1792)

402. mál, orkusala Landsvirkjunar til Norðlendinga

Ingólfur Jónsson:

Herra forseti. Það var hv. 1. þm. Norðurl. e., sem sagði hér áðan orðrétt: „Stefna fyrrv. stjórnar var að svelta Norðlendinga í orkuanálum.“ Þetta er falleg setning, og það er sem betur fer sjaldan, sem maður heyrir slíka ósanngirni hér í þingsölunum. Hæstv. ráðh., sem talaði hér áðan, sagði, og það var ósköp veikt ályktað hjá honum, að það mætti rekja orkuskortinn til fyrrv. stjórnar. En það var eðlilegt, að hann tæki ekki stórt upp í sig, því að þegar farið er að athuga, hvað hefur gerst í orkumálum Norðurlands, síðan núv. hæstv. ríkisstj, komst til valda, þá er það ekkert í framkvæmdum, nema línan milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar. Hún hefur verið byggð, en er ekki notuð, vegna þess að það er engin orka til að flytja með henni.

Hæstv. ráðh. beitti sér fyrir því að fá lausn í Laxárdeilunni, og ég get trúað því, að ekki hafi verið hægt að semja á hagkvæmari hátt en gert var, þegar það var gert, þó að lausnin sé ekki góð.

Það eru Norðlendingar sjálfir, sem eiga stærstu sök á því, að orkuskortur er, að ekki var hægt að virkja í Laxá, þannig að það væri hagkvæmt. Sýslunefnd Suður- Þingeyjarsýslu og Búnaðarsamband Suður- Þingeyjarsýslu hafði samþykkt 20 m háa stíflu í Laxá, þannig að það hefði verið hægt að virkja á hagkvæman hátt 19 MW í staðinn fyrir 6 eða 7 MW. Laxárdeilan var leyst með því, að það yrði ekki virkjað meira en það litla afl, sem nú er í notkun, og nýtist illa í vetrarfrostum, vegna þess að stífluna vantar. Nú er nokkur tími liðinn, síðan samningar voru gerðir. Viðhorfið hefur getað breyst. Það gæti verið mögulegt nú að fá samkomulag um 9 m stíflu, sem gæfi 4 MW. Í þeirri virkjun mundi kwst. kosta 20 aura. Það gæti fengist samkomulag nú um að gera 20 m stíflu, sem gæfi 13 MW. Stífluna mætti gera á einu sumri og leysa þannig brýnustu orkuvandræði Norðlendinga, á meðan verið er að undirbúa annað meira og fá stærri virkjun fyrir Norðurland.