05.02.1974
Sameinað þing: 50. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1992 í B-deild Alþingistíðinda. (1794)

402. mál, orkusala Landsvirkjunar til Norðlendinga

Heilbr.- og trmrh. (Magnús Kjartansson):

Herra forseti. Ég vona, að hv. þm. Lárus Jónsson hafi veitt athygli þeim raunsæju ummælum hv. þm. Ingólfs Jónssonar, að orkuvandamálið á Norðurlandi sé ekki sök mín eða annarra, sem hér hafa haldið á málum, heldur sé orsökin ágreiningur fyrir norðan. Auðvitað er þetta mergurinn málsins. (Gripið fram í.) Þegar ég settist í ráðherrastól, — það var síðari hluta árs 1971, eins og hv. þm. veit, það gerðist eftir kosningar 1971. Fyrrv. orkumrh. bar fram heimild til virkjunar í Laxá, — virkjunar, sem var miðuð við framkvæmdastig, sem engin lagaheimild var fyrir. Þegar í þessa framkvæmd hafði verið ráðist, búið var að semja um tækjakaup og annað slíkt, lá það einnig fyrir, að ágreiningur norðanlands var svo mikill, að það hefði ekki verið leyft að hleypa vatni á þessa virkjun, það var búið að fá lögbannsheimild fyrir því. Hvernig halda menn, að ástandið hefði orðið í vetur, ef það hefði verið komið upp þetta mikla mannvirki, en ekki verið leyft að hleypa á það vatni? Það er þetta ástand, sem þessi hv. þm. vill halda við. Hann reynir í sífellu að egna upp deilur og illindi manna fyrir norðan. Í stað þess að taka sameiginlega á við að leysa vandamálin, hefur hann áhuga á því einu að magna deilur og koma í veg fyrir, að hægt sé að ná samkomulagi um skynsamleg úrræði. Ég held, að þessi hv. þm. gæti lært æðimikið af mati flokksbróður síns, Ingólfs Jónssonar, sem kunni þó að tala um þetta eins og raunsær maður og ekki í þeim annarlega tón, sem þessi hv. þm. ástundar, ekki aðeins í sambandi við orkumál, heldur eiginlega hvert einasta mál, sem hann talar um hér á Alþ. En kannske er þessum undarlega hroka þessa hv. þm. ætlað að dylja ýmislegt annað, sem þeir þm., sem farnir eru að kynnast honum, gera sér fulla grein fyrir.