05.02.1974
Sameinað þing: 50. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1993 í B-deild Alþingistíðinda. (1796)

402. mál, orkusala Landsvirkjunar til Norðlendinga

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Hv. 1 þm. Norðurl. e. vitnaði til málsháttarins: sök bítur sekan. Ég held, að það hafi ekki komið skýrar fram en í þeim orðum, sem hæstv. iðnrh. lét sér um munn fara, og einkum og sér í lagi í háttalagi hans í þessum ræðustól, þegar hann með gífuryrðum svaraði gagnrýni hv. þm. Lárusar Jónssonar áðan.

Það hefur enginn mælt á móti því, að það væri æskilegt að tengja saman Ísland allt, þannig að hægt væri að miðla raforku frá einum landshluta til annars. En áður en það er gert, þarf að fara fram hagkvæmnisathugun á því, hvort réttara er að virkja heima í héraði eða byggja á raforkuflutningi á milli landshluta, og það þarf enn fremur að vera til staðar ákveðið grunnafl í hverju héraði fyrir sig eða hverjum landshluta fyrir sig, til þess að íbúarnir búi við öryggi.

Nú er svo komið eftir 5 missera valdaferil hæstv. iðnrh. og núv. ríkisstj., að Norðlendingar hafa þá einu von, sem bundin er við samtengingu við landsvirkjunarsvæðið, og sú tenging á að vera komin í gagnið, að sögn hæstv. iðnrh., á næsta ári. Dregið er mjög í efa, að unnt sé að koma þessari samtengingu á á svo skömmum tíma. En auk þess sem það er vafasamt, þá eru allar líkur á því, að þá verði ekkert rafmagn að flytja frá landsvirkjunarsvæðinu til Norðurlands, vegna þess að Landsvirkjun hefur ekki raforku afgangs. Eftirspurnin og þörfin á markaði landsvirkjunarsvæðisins nú er svo mikil, að engar horfur eru á því, að Landsvirkjun geti séð af neinu rafmagni, fyrr en Sigalda er komin í gagnið. Sérstaklega er þetta augljóst nú, vegna þess að Landsvirkjun hefur gert sérstakar ráðstafanir til þess að auka húsakyndingu með raforku á orkuveitusvæði Landsvirkjunar. Þess vegna er gagnrýni hv. þm. Lárusar Jónssonar, 5. þm. Norðurlands e. á rökum byggð, að á 5 missera valdaferli hæstv. iðnrh. hefur hann engar ráðstafanir gert til að bæta úr orkuskortinum á Norðurlandi, þrátt fyrir það að hann mátti sjá fyrir þegar í upphafi valdaferils sins, að um mjög alvarlegt vandamál væri þarna að ræða.