05.02.1974
Sameinað þing: 50. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1997 í B-deild Alþingistíðinda. (1804)

403. mál, skipun formanns stjórnarnefndar ríkisspítalanna

Heilbr:

og trmrh. (Magnús Kjartansson): Herra forseti. Þetta er nú ein af þeim einkennilegu spurningum, sem tíðkast nokkuð nú upp á síðkastið. Ég er hræddur um, að það yrði tafsamt fyrir Alþ., ef það væri til þess ætlast, að við ráðh. gerðum hér grein fyrir því, hvaða rök lægju til þess, að við skipuðum tiltekna menn í stjórnir og n. hverju sinni sem það nú gerist. En hv. þm. gerði grein fyrir því, að hann teldi að ráðuneytisstjóri ætti að hafa eftirlit með þessum stofnunum og með því að skipa hann form. stjórnar væri hann orðinn eftirlitsmaður með sjálfum sér.

Í lögum um heilbrigðisþjónustu, sem samþykkt voru á síðasta þingi og þessi hv. þm., Bjarni Guðnason, tók þátt í að samþykkja og vann að, ef ég man rétt, — ég held, að hann hafi setið í þeirri n., sem fjallaði um málið, — er kveðið svo á, að faglegt eftirlit með heilbrigðisstofnunum sé í höndum landlæknis. Ég tel þar vera um ákaflega veigamikið atriði að ræða, að það sé óháður aðili, eins og landlæknir, sem hafi slíkt eftirlit með höndum. Þá hefði að sjálfsögðu verið rökrétt afleiðing af því, að landlæknir gæti ekki stjórnað þeirri stofnun, sem hann á að hafa slíkt eftirlit með.

Þetta er í sjálfu sér nægilegt svar. En vegna þess að þessi fsp. er hér borin fram, finnst mér ástæða til að minna alþm. á ýmsar breytingar, sem hafa orðið á stjórnum sjúkrahúsa einmitt um þessi áramót og eru í samræmi við þau lög, sem ég minntist á áðan. Þau tóku gildi um síðustu áramót.

Þá er þar fyrst til að taka, að áhrifa starfsmanna gætir í ríkara mæli í stjórnun sjúkrahúsa en áður var. Annars vegar er það, að yfirlæknar og forstöðukonur geta haft meira mótandi áhrif á stjórn sjúkrahúsa en áður, þar eð þau skulu sitja stjórnarfundi og hafa tillögurétt og málfrelsi. Sama máli gegnir um yfirlækna sérgreina, þegar þeirra málefni eru rædd. En hitt er þó merkara, að fulltrúar starfsmanna hafa nú ákvarðandi áhrif, þar sem starfsmannaráð sjúkrahúsa eiga að kjósa 2 menn í stjórnarnefndir ríkis- og sveitafélagasjúkrahúsa og einn mann í stjórn einkasjúkrahúsa. Skv. 34. gr. fyrrgreindra l. skulu stofnuð við sjúkrahús sérstök starfsmannaráð sjúkrahúsa, þar sem starfshópar eiga fulltrúa, og kveða skal með reglugerð á um fulltrúakjör og starfsreglur starfsmannaráða. Þessi reglugerð var sett 28. des. s.l. og tók gildi 1. jan. Skv. reglugerðinni á kjör í starfsmannaráð að fara fram í fyrsta skipti eigi síðar en fyrir 1. mars 1974, og munu fulltrúar starfsmanna koma inn í stjórnir sjúkrahúsa, þegar kjörtímabili stjórnar lýkur.

Þá ber og að geta þess, að ef um er að ræða svæðis- eða deildarsjúkrahús, verður að vera einn yfirlæknir allrar stofnunarinnar, og skal form. læknaráðs þess vera yfirlæknir, ef stjórn sjúkrahúss ákveður ekki annað.

Að því er varðar sjúkrahús ríkisins, eru sérstök ákvæði í reglugerðinni um starfsmannaráð ríkisspítala, og gilda sömu reglur um hina einstöku ríkisspítala og aðra spítala, en síðan kjósa starfsmannaráð þessara spítala mismarga fulltrúa í sameiginlegt starfsmannaráð ríkisspítalanna, þannig að ríkisspítalar hafi 23 fulltrúa ráð og það er þetta ráð, sem kýs 2 fulltrúa starfsmanna í stjórnarnefnd ríkisspítalanna.

Þess skal getið, að undirbúningur að kjöri starfsmannaráða ríkisspítalanna er að komast á lokastig. Öllum starfsmönnum ríkisspítala verður í þessari viku sent bréf um þær breyttu aðstæður, sem hér er um að ræða, og skýrt frá, hvernig fyrirkomulag kosninga verður. Hér er um að ræða breytingu, sem ég tel vera afar athyglisverða, og verður fróðlegt að sjá, hvort hún gefst ekki vel.

Skv. 30. gr. l. um heilbrigðisþjónustu á ég svo að skipa 3 menn í stjórnarn. án tilnefningar og einn þeirra sem form. Í því sambandi er þar til að taka, að síðan núgildandi daggjaldakerfi sjúkrahúsa var upp tekið 1967, og einkum síðan ríkissjóður tók að greiða meginhluta sjúkrahúskostnaðar, hefur þróun rekstrarkostnaðar sjúkrahúsa orðið mun örari en áður var. Að mörgu leyti er hér um eðlilega þróun að ræða, þar sem fyrra fyrirkomulag leyfði ekki eðlilega þróun. Hins vegar er hér um að ræða í heild mjög veruleg útgjöld, sem á þessu ári geta orðið meira en hálfur fjórði milljarður króna. Þrátt fyrir aðild fjmrn. og heilbrrn. að daggjaldanefnd hefur ekki reynst unnt að koma í veg fyrir, að útgjöld margra sjúkrahúsa hafa orðið mun hærri en áætlanir daggjaldan. hverju sinni, jafnvel eftir að áætlanir hafa verið leiðréttar, miðað við raunverulega verðlagsþróun.

Eitt af því, sem hefur hindrað daggjaldan. í að gagnrýna þessa þróun hjá sjúkrahúsum, hefur verið það, að útkoma ríkisspítala, sem eru algerlega undir rekstrarstjórn ríkisins, hefur oft verið lakari en hjá öðrum sjúkrahúsum og því verið nærtæk gagnrýni um það, að ríkið ætli að taka sínum eigin rekstri tak, áður en farið væri að taka til hjá öðrum.

Þá hafa verið þess dæmi, að viðhaldsverkefni hafa verið unnin og ráðist í fjárfestingar umfram heimild fjárlaga og umfram fjárhagslega getu, sem daggjöld leyfa. Þegar var um það að ræða að skipa að nýju 3 menn í stjórnarn. ríkisspítalanna, kom sú skoðun fram innan heilbrrn., hvort hægt yrði eð ná samkomulagi við fjmrh. um það, að frá þessum aðilum kæmi nánari stjórnunarþátttaka í stjórn ríkisspítalanna en verið hefur. Og eftir viðræður við fjmrh. var samþykkt, að aðilar kæmu frá fjmrn. til setu í stjórnarn. Og það var með tilliti til þessara atriða, sem ég ákvað að skipa ráðuneytisstjóra heilbrrn. sem form. stjórnarn. ríkisspítalanna og hagsýslustjóra sem meðlim stjórnarn., og sem þriðja mann skipaði ég Margréti Margeirsdóttur félagsráðgjafa, sem átti sæti í fyrri stjórn. Þeir fulltrúar frá hagsýslustofnun og rn., sem valdir hafa verið, eru tvímælalaust þeir aðilar frá þessum stofnunum, sem gleggst yfirlit eiga að hafa um þau málefni, sem þarna koma til afgreiðslu.

Í því sambandi má minna á það, að rn. heilbr.- og trm. er enn ekki deildaskipt nema að litlu marki, og má raunar minna hv. fyrirspyrjanda á það og aðra þá þm., sem að því stóðu, að slík deildaskipting var felld út úr frv. um heilbrigðisþjónustu á síðasta ári. Enginn vafi er á því, að deildaskipting í stórum og kostnaðarsömum málaflokkum innan rn. er nauðsynleg, og því verður að því stefnt í heilbrrn., að þar verði deildaskipting, þannig að sjúkrahúsmálefni verði undir sérstökum deildarstjóra, og þegar sú þróun verður, tel ég eðlilegt, að sá deildarstjóri taki formennsku í stjórnarn. Þarna er sem sé um að ræða viðleitni til að ná fastari tökum á stjórn þessara stóru, kostnaðarsömu og mikilvægu fyrirtækja, og ég held, að hér sé um ákaflega ríka nauðsyn að ræða. Við höfum rætt um það í rn., hvort ekki væri orðið tímabært að láta sérfróða menn kanna rekstur þessara stofnana, og ég geri mér vonir um það, að slíkur sérfræðingur frá Svíþjóð komi hingað, áður en langur tími liði, til þess að miðla okkur reynslu sinni um það, hvernig eigi að stjórna fyrirtækjum af þessu tagi, þannig að mest hagkvæmni náist ásamt bestri þjónustu.

En að því er víkur sérstaklega að fsp. hv. þm., um að skipa ráðuneytisstjóra til formennsku í n. af því tagi, sem hér um ræðir, þá er því að sjálfsögðu ekki neitt til fyrirstöðu. Starfslið rn., og þar með taldir ráðuneytisstjórar, hefur enga þá lagalegu sérstöðu, að þeim sé ekki heimil starfsemi af þessu tagi. Á það má einnig minna, að ráðuneytisstjórar hafa enga sérstöðu umfram aðra opinbera starfsmenn hvað önnur störf snertir. Þeir hafa t.d. fulla heimíld til starfa á pólitískum vettvangi. Þeir geta boðið sig fram til borgarstjórnar eða Alþingis og hafa fullan rétt til nefndarstarfa á vegum slíkra aðila, ef þeim sjálfum sýnist svo.

En þau skulu vera niðurlagsorð mín í þessu sambandi, að sömu rök lágu fyrir þessari nefndarskipan og öðrum þeim nefnda- og embættisskipunum, sem ég hef haft með höndum, að ég hef reynt að velja þá menn, sem ég á hverjum tíma hef talið hæfasta til að gegna störfunum á þann hátt, sem ég hef óskað eftir, að þau yrðu unnin.