05.02.1974
Sameinað þing: 50. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2000 í B-deild Alþingistíðinda. (1805)
403. mál, skipun formanns stjórnarnefndar ríkisspítalanna
Fyrirspyrjandi (Bjarni Guðnason):
Herra forseti. Það kom ýmislegt fram hjá hæstv. ráðh., en við höfum gjörólíkar skoðanir, hvað varðar þau atriði, sem snerta fsp. mína. Það, sem vakir fyrir mér, er fyrst og fremst þetta, að ég tel mjög óheppilegt, að ráðuneytisstjóri sé jafnframt form. í jafnmikilvægri ríkisstofnun og ríkisspítölunum. Ef eitthvert atvik kæmi upp við ríkisspítalana, sem einhverjir aðilar teldu sig þurfa að kæra, þ.e.a.s. misferli eða einhver misgáningur af hálfu stjórnarn., þar sem form. er ráðuneytisstjóri, þá yrði næst að leita til rn., þar sem sami maðurinn væri ráðuneytisstjóri. Fyrir mér er þetta fyrst og fremst spurning um dreifingu valdsins. Og ég fæ ekki séð, hví í ósköpunum þarf að þjappa valdinu saman í einar hendur í rn. Ég er ekki að lasta viðkomandi ráðuneytisstjóra, sem er annálaður fyrir dugnað. Hér er aðeins um ólík viðhorf að ræða, og mér sýnist koma fram í þessari skipan kenndaleysi ráðh. fyrir lýðræðinu, að ráðh. skorti tilfinningu fyrir lýðræðinu. Samþjöppun valds og miðstjórnarvald skal vera í rn. Ég tel, að þetta sé mjög óheppilegt. Ég hef spurt nokkra lækna, og þeir hafa sagt mér sumir, að þeim sé ókunnugt um hliðstæð dæmi á Norðurlöndum. Eitt smádæmi gat einn læknir nefnt mér, sem átti að sanna regluna, en það er mjög fátítt, get ég fullyrt, að þessi aðferð sé viðhöfð á Norðurlöndum, að ráðuneytisstjórinn, sem á að vera yfir eftirlitinu gagnvart viðkomandi ríkisstofnunum, sé um leið stjórnarform. í slíkri stofnun. Það er þetta, sem ég hef verið að áfellast og hef borið þessa fsp. fram beinlínis til þess að vekja athygli á því, að ég tel mjög óheppilegt að efla embættismannavaldið og miðstjórnarvaldið á þann hátt, sem hér er gert.