05.02.1974
Sameinað þing: 50. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2004 í B-deild Alþingistíðinda. (1809)

404. mál, rækjuveiðar og rækjuvinnsla á Húnaflóasvæðinu

Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):

Herra forseti. Það er rétt aðeins til þess að gefa viðbótarskýringu í sambandi við það vandamál. sem hér er við að eiga.

Það er rétt, að það urðu nokkrar deilur á milli þriggja útgerðarstaða, sem hér áttu hlut að máli við Húnaflóa á s.l. ári, þ.e.a.s. á milli Hólmavíkur — og reyndar Drangsness þá með Hólmavík — og svo Skagastrandar og Hvammstanga. Það var gerð tilraun til þess að ná samkomulagi á milli þessara aðila um, að veiðimagnið skiptist þannig á milli þessara staða, að staðirnir, sem höfðu veitt þarna miklu lengur, Hólmavík og Drangsnes, mættu veiða 52% af heildaraflamagninu, sem leyft yrði að veiða, en hinir tveir 48%. En það tókst ekki með nokkru móti að koma mönnum saman um það, hvernig því yrði skipt, og það er álit þeirra, sem um þessi mál fjalla í sjútvrn., og ég tel einnig fyrir mitt leyti, að það sé í rauninni alveg óvinnandi vegur að kveða upp úr um það, að tilteknir menn eða tiltekin fyrirtæki á ákveðnu svæði skuli sitja ein að afla. Það, sem hefur verið um að ræða í þessum tilfellum, er það, að ef fleiri aðilar á veiðisvæðinu sækja um veiðileyfi en hóflegt gæti talist, þá er eina leiðin sú hjá rn. að ákveða tiltekna tölu báta og leyfa þeim þá að veiða aðeins stuttan tíma og skipta síðan um og leyfa hinum. Heimamenn verða sem sagt að gera það upp við sig, hvernig þessu verður skipt. Þannig var þessu beitt t.d. við Breiðafjörð, þar sem fyrst sóttu miklu fleiri aðilar heimamanna um að stunda veiðarnar en nokkurt vit var í að leyfa í einu.

Ég held, að það vanti alveg lagaákvæði til þess, ef á að fara að ákveða fyrir fram, hversu mikið magn hver vinnslustöð á að fá af aflanum, svo að hér er um nokkurn vanda að ræða, hvernig á að skammta, ef heildarmagnið er of litið. Ég tel fyrir mitt leyti, að sá vandi, sem hefur komið upp í Húnaflóa núna á milli þeirra staða, sem stundað hafa þessar veiðar, hafi ekki verið af því tagi, að það sé ekki líklegt, að menn komist yfir þann vanda og finni leiðir út úr því. Aðalvandinn í mínum augum hefur verið bundinn við það, að það hafa fleiri aðilar verið að reyna að komast inn á svæðið, og það gerir málið enn verra. En verði það svo, að fiskifræðingar telji, að hér séu ekki tök á því að leyfa að veiða hér meira magn en gert hefur verið, þá er mjög sennilegt, að verði að grípa til þess að setja takmörkun á hvern bát, hvað hann má veiða mikið á hverri viku, eða að takmarka þann tíma, sem hver bátur fær að stunda veiðarnar. En að velja úr tiltekna báta á svæðinu og segja, að þeir megi veiða allan tímann, en aðrir með sams konar rétt megi aldrei veiða, það teljum við okkur ekki fært að fara inn á. Takmörkunin verður að ganga yfir alla, ef ekki getur náðst samkomulag á viðunandi grundvelli.

Að till. forseta var ákveðin ein umr.