06.02.1974
Neðri deild: 58. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2038 í B-deild Alþingistíðinda. (1834)

198. mál, tryggingadómur

Ragnhildur Helgadóttir:

Herra forseti. Það eru tvö atriði, sem komu fram í ræðu hæstv. trmrh., sem mig langaði til að víkja aðeins að.

Annað atriðið var það, að ráðh. gat þess sérstaklega, að eðlilegt væri, að tryggingadómstóll fjallaði um öll atriði almannatrygginga og þá ekki síst slysatryggingamál, sem stundum gæti verið óljóst hvort heyrðu undir Tryggingastofnun ríkisins eða önnur tryggingafélög. Ég vildi vekja sérstaka athygli á því, að það er einmitt á sviði slysatrygginga, sem gæti verið dálítið vafasamt, að slíkur dómstóll eins og gert er ráð fyrir í þessu frv., kvæði upp dóma, vegna þess að atvikin, sem liggja til slysabótaréttarins, eru oft svo óljós og erfitt að upplýsa þau, að þau eiga miklu frekar heima í meðferð hinna almennu dómstóla. Þeir hafa ýmis ráð til könnunar mála og meiri þjálfun í því heldur en slíkur dómstóll. sem væri svo takmarkaður sem þessi. Auk þess fjalla slysatryggingamálin um háar eingreiðslufjárhæðir, en aftur á móti önnur mál almannatrygginga fjalla um tiltölulega lágar upphæðir, sem ætlaðar eru til lífframfærslu frá degi til dags og þola því síður bið með úrlausn heldur en slysatryggingamálin. Þess vegna er til þess full ástæða, ef að því ráði yrði horfið að setja á fót þennan dómstól, að hann hefði til þess rétt að vísa frá sér málum til annarra dómstóla, jafnvel þótt málið gæti að lögum heyrt undir hann, ef honum sýndist, að hinir almennu dómstólar ættu hægara með, annaðhvort vegna meðdómenda eða ýmiss konar réttarfarsaðferða, að upplýsa málið. Þá væri að sjálfsögðu eðlilegt að hafa heimild fyrir tryggingadómstól til að vísa þeim málum frá sér til almennra dómstóla. Það getur líka verið um að ræða þarna mál, sem þarf sérstaka staðbundna athugun á. Slysin verða ekki öll hér í Reykjavík, þar sem gert er ráð fyrir, að tryggingadómstóll hafi aðsetur. Nauðsynlegt er oft að gera ýmiss konar vettvangsskoðanir í sambandi við slysatryggingamál. Eðlilegra væri þá, að þan mál væru rekin heima í þeim héruðum, þar sem viðkomandi menn ættu varnarþing.

Hitt atriðið, sem mig langaði að víkja að, var sú röksemd, sem kom fram í ræðu hæstv. ráðh., að þm. hefðu í raun bundið sig því að samþykkja frv. um stofnun tryggingadóms með ákvæðinu í tryggingal., þar sem segir, að ágreiningi varðandi úrskurði tryggingaráðs megi skjóta til tryggingadóms, sem sérstök lög verði sett um. Með þessu ákvæði tel ég ekki, að þm. hafi bundið sig við að samþykkja stofnun tryggingadóms. Þarna er greinilega tekið fram: „sem sérstök lög verða sett um.“ Það liggur því í augum uppi, að ef þessi sérstöku lög verða ekki sett, þá verður ekki settur á fót tryggingadómur.