06.02.1974
Neðri deild: 58. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2041 í B-deild Alþingistíðinda. (1839)
196. mál, fuglaveiðar og fuglafriðun
Flm. (Jónas Jónsson):
Herra forseti. Frv. það á þskj. 345, sem ég ásamt tveim öðrum hv. þm. hef leyft mér að flytja, er flutt að beiðni Æðarræktarfélags Íslands, en það er félagsskapur, sem hefur tekið það að sér að efla æðarvarp og æðarnytjar og vernda æðarfugl. Frv. er flutt eins og þeir fóru fram á, að það yrði lagt fyrir. Þetta er því frv. til l. um breyt. á l. nr. 33 frá 1966, um fuglaveiðar og fuglafriðun.
Efnisatriði frv. eru þau, að út frá friðlýstu æðarvarpi sé nethelgi eða landhelgi 2 km, í stað þess sem nú er 1/4 km. Með beiðni um flutning þessa frv. fylgdi eftirfarandi grg. frá Æðarræktarfélagi Íslands, sem ég vil leyfa mér að lesa, með leyfi hæstv. forseta:
„Ef fer sem horfir og ekkert verður að gert, lítur út fyrir, að æðarvarp sé á hröðu undanhaldi hérlendis. Missa þá margar bújarðir allverulegar hlunnindatekjur og náttúrufar landsins verður að miklum mun fátækara. Á síðari árum hefur stóraukist hrognkelsaveiði hér við land, og stærri bátar með nýtískuleg veiðarfæri fara á vertíð, þar sem best er til fanga. Er nú svo komið, að margfaldar netalagnir eru uppi í fjörumáli fyrir varpstöðvum vítt um landið, og hefur æðarfugl hlotið mikið afhroð af.
Að fenginni reynslu norðan- og norðaustanlands er nauðsynlegt, að hið opinbera grípi hér á málum, svo að firrt verði vandræðum á milli varpeigenda og aðkomumanna.“
Þá hefur borist grg, frá líffræðingi, Guðmundi Ólafssyni, sem stundað hefur líffræðilegar rannsóknir með aðsetri í Flatey á Breiðafirði. Rannsóknir hans hafa beinst að dýralífi í Breiðafjarðareyjum, sjávardýra og fugla og sela, og að beiðni Æðarræktarfélags Íslands hefur hann gert um þetta grg. út frá sínum rannsóknum. Vil ég leyfa mér að lesa hana, með leyfi hæstv. forseta:
„Æðarræktarfélag Íslands hefur beðið mig um álit á tillögu þess um tveggja km nethelgi við friðlýstar æðarvarpsstöðvar. Brtt. Æ.Í. um aukna nethelgi er mjög svo tímabær. Reynsla síðustu ára hefur sýnt, að 250 m nethelgi við varpstaði er allt of takmörkuð.
Gagnrýnin beinist fyrst og fremst að hrognkelsaveiðinni, og er það eigi að ástæðulausu, því miður. Það er vitað mál, að hrognkelsaveiði hefur verið mörgum drjúg tekjulind á síðustu árum. Æðurin er arðmikill fugl, en verður þó vart metin til fjár sökum tengsla hennar við menningu og sögu landsins. Í ýmsum byggðarlögum hefur hrognkelsaveiði verið lyftistöng vissra byggðarlaga. Því bæri að fagna, ef um væri að ræða skynsamlega veiði og nýtingu hrognkelsamiða, en svo er ekki. Net eru lögð þvers og kruss um allan sjó, grynningar sem sker, og hvergi tekið minnsta tillit til varplanda, selaláturs, fæðuöflunar þessara dýra eður annarra sjónarmiða, sem þó hafa verið í heiðri höfð fram að þessu. því miður eru víst engar reglur til um hrognkelsaveiði eða hámarksafla þeirra, enda lítil vitneskja um stærð stofnsins. Búast má þó við, að hrognkelsastofninn hér við land sé ekki í beinni hættu enn sem komið er. En öðru máli gegnir um æðarfugl og sel, sem hrognkelsaveiðin kemur harðast niður á. Netlögnin á búsvæði æðarinnar er ógnun gagnvart mesta hlunnindafugli landsins fyrr og nú. 250 m nethelgi er engin trygging fyrir tilveru fuglsins. Kemur þar tvennt til:
Í fyrsta lagi virðir fuglinn ekki þessa 250 m lögsögu. Hann heldur sig oft mun utar yfir varp- og uppeldistímann. Það, sem hér virðist ráða, eru grynningar og ætismöguleikar fremur en fjarlægð frá varpstöð eða landi. Oft er það sem grunnsjórinn nær einungis nokkur hundruð metra út frá varpstöð, en á öðrum stöðum fleiri kílómetra. Æðarfuglinn veiðir mest á grynningum innan við 20 m dýpi, vinsælasta dýpinu til hrognkelsaveiða, en vitað er, að æðurin kafar skáhallt allt niður á 35–40 m dýpi. Það er því ekki að undra, að æðurin festist oft í netum.
Í öðru lagi kemur ókunnugleiki iðulega í veg fyrir, að menn virði landhelgi varpstöðva, eða svo skulum við álita. Menn leggja net sín á flóði í 300 m fjarlægð frá eyju og gæta ekki nægilega vel að grynningum. Á útfallinu liggja þessi net svo á þurru að einhverju eða öllu leyti. Slíkt þekkjum við hér og köllum ókunnugleika.
Þótt þessi nethelgi eigi einungis við æðarfugl, er rétt að geta þess, að málið er mun flóknara. Sú gegndarlausa netaveiði og umferð af þeim sökum, sem við þekkjum hér, hótar líka tilveru selsins svo og búsetu fleiri dýrategunda, er teljast til beinna eða óbeinna hlunninda, t.d. dílaskarfs. Tengsl sela og hrognkelsa og selveiða og hrognkelsaveiða eru ískyggilega náin Hrognkelsin eru ein aðalfæða selsins. Selurinn heldur sig á svipuðum slóðum og hrognkelsin.
Möskvastærð hrognkelsaneta er lík eða sú sama og möskvastærð selaneta. Þar við bætist, að veiðitími hrognkelsa byrjar fyrr og endar síðar en selveiðitíminn. Erfitt er þá að dæma, hvort menn leggja fyrir sel eða hrognkelsi. Hitt er svo augljóst, að skammt er í illindi og deilur af þessum sökum. En 2 km nethelgi mundi koma í veg fyrir slíkt, þar sem varpstöðvar og selalátur eru á sömu slóðum. Því er ekki að leyna, að um hagsmuni er að ræða á báða bóga, hrognkelsin annars vegar og æður og selur hins vegar. Æður, selur, lax og silungur hafa unna hefð sem æðstu hlunnindaskepnur landsins. Við verðum að líta svo á, að hrognkelsaveiðar og aðrar netaveiðar séu einungis æskilegar, þar sem þær spilla ekki fyrir öðrum hlunnindadýrum og atvinnulífi. Ég vil því eindregið mæla með 2 km nethelgi við varpstöðvar æðarinnar og tel þessa breytingu friðunarlega mikilvægan þátt til verndar náttúru landsins og til að semja frið manna og fugla á milli.
Virðingarfyllst,
Guðmundur Ólafsson
líffræðingur,
Flatey á Breiðafirði.“
Við þetta er kannske aðeins því að bæta, að það er augljóst, að það eru hugsanlegir árekstrar þarna á milli. En það ætti einnig að vera mönnum augljóst, að æðurin er í meiri hættu og er í hættu sem náttúruverðmæti landsins. Ef hún er veidd og henni jafnvel eytt með hrognkelsaveiðinni, er að því mikill skaði.
Hins vegar eru möguleikar á hrognkelsaveiðum, án þess að æðurin sé í hættu, og ætti með því, ef þessu er rétt hagað, að vera hægt að ná þeim eðlilega arði af hrognkelsaveiðunum án þess að koma æðarfuglinum í hættu. Hrognkelsi má að sjálfsögðu veiða á miklu dýpra vatni en æðurin kafar, eins og kemur fram í skýrslu Guðmundar Ólafssonar.
Nú er farið að veiða hrognkelsi á æ stærri bátum, og að því er mér er tjáð færast veiðarnar á æ dýpra vatn, og minnkar þá jafnframt hættan á því, að æður lendi í netunum. Þetta mun þó ekki vera nema sums staðar á landinu, því að svona mun þessu ekki farið á Breiðafirði, eins og Guðmundur bendir á, því að skýrsla hans miðast fyrst og fremst við þær aðstæður, en fyrir Norðurlandi mun þetta vera þannig, að bátarnir veiða á æ dýpra vatni.
Þá má benda á það, að æðarvörpin eru ákaflega staðbundin og takmörkuð, en hins vegar mörgum sinnum stærri svæði og rýmra um hrognkelsaveiðarnar. Á einstökum stöðum gæti verið þannig, að það væru sömu mennirnir eða sömu jarðirnar, sem ættu æðarvörp og möguleika til hrognkelsaveiða. Er þá um það að velja, hvort friðlýsa eigi æðarvarp og takmarka þannig hrognkelsaveiðar eða láta það ófriðlýst og veiða hrognkelsi.
Herra forseti. Ég vil leggja til, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og menntmn.