07.02.1974
Neðri deild: 59. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2057 í B-deild Alþingistíðinda. (1846)

93. mál, sjálfskuldarábyrgð á lánum til kaupa á fiskiskipum

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Það er talið, að Njáll bóndi á Bergþórshvoli hafi haft að orðtæki: „Allt orkar tvímælis, þá gert er.“ Má víst oft nota það orðtak, því að ekki eru mörg mál, sem eru þannig úr garði gerð, að þau séu algerlega einsýn, og jafnvel þótt þau virðist vera það, þá geta leynst í þeim hlutir, sem síðar skýra þau á annan veg en manni sýnist, þegar þau eru meðhöndluð.

Um þetta mál, sem hér er til umr., heimild fyrir ríkisstj. til þess að veita sjálfskuldarábyrgð á lánum til kaupa á 10 fiskiskipum og síðar með viðauka um að kaupa ferjuskip fyrir Akranes og svo síðar Vestmannaeyjar, hefur orðið mikil umr. hér í hv. Nd., en það gekk hins vegar í gegnum hv. Ed. án nokkurra átaka. Það má um það segja, að það sé kannske ekkert óeðlilegt, þó að sitt sýnist hverjum um þetta mál, og það geti verið svo frá upphafi og þarf ekki endilega að vera bundið við þá þætti, sem síðar hafa komið fram í þessu máli.

Það orkar ekki tvímælis, að það hafa verið skiptar skoðanir í sambandi við fiskiskipakaup þau, sem Íslendingar hafa gert nú á tveim árum, hversu réttmæt þau væru. Ekki síst hefur það verið til umr., hversu hyggilegt það væri að kaupa eins mikið af stórvirkum fiskiskipum og gert hefur verið. Og það má með sanni segja, að þar séu til rök bæði með og móti. En reynslan hefur nú sýnt, að eftir því sem við lesum oftar í blöðunum, að togarakaup til þessa og hins staðarins hafi skipt sköpum um atvinnu og afkomumöguleika, þá hafa þær raddir hljóðnað meira, sem talað hafa um óráðsíu í þessum efnum.

Ég minnist þess, að þegar búið var að ákveða mikil kaup á togurum og raunverulega búið að ákveða í ríkisstj. að hætta að veita ábyrgð fyrir slíkum skipakaupum í bili, komu til mín tveir skipstjórar, sem voru að ræða um það að kaupa sér skip. Þetta voru skipstjórarnir Páll Guðmundsson og Hrólfur Gunnarsson, sem eiga skipið Guðmund RE, sem frægt er. Þegar þeir höfðu skýrt mér frá erindi sínu, sagði ég þeim frá því, að raunverulega væri búið að ákveða í ríkisstj. að veita ekki ábyrgðir fyrir fleiri skipum í bili. Þeir skýrðu þá málin fyrir mér enn betur, og mér varð að orði, að mér sýndist, af því að ég hafði heyrt, hversu miklir aflamenn þessir skipstjórar voru, að ekki væri nú heppnin með okkur, að þeir skyldu vera þeir fyrstu, sem leituðu á okkar náðir eftir þessa ákvörðun. Það mál var nú endurskoðað, og þeim var veitt aðstoð með ríkisábyrgð, sem að vísu var gerð með því, að Síldarverksmiðjur ríkisins komu þar inn í málið, svo að þeir gátu keypt skipið. Reynslan varð svo sú, að á árinu 1973 öfluðu þeir meiri gjaldeyristekna en kaupverði skipsins nam, svo að í þessu tilfelli getur það orkað tvímælis, hvað gert er, og það sýndi sig nú, að það hefði ekki verið heppileg ákvörðun, ef þessum aflasælu skipstjórum hefði verið neitað um ríkisábyrgðina, sem og ekki var gert.

Það hafa komið fleiri tilvik upp í sambandi við skipakaup okkar íslendinga, sem ríkisstj. hefur verið að fjalla um og mönnum hefur ekki sýnst eitt um, og meðal þess eru þeir samningar, sem fyrrv. ríkisstj. gerði um kaupin á Spánartogurunum, sem hafa verið að koma til landsins á þessu ári. Það komu upp í fyrravetur ýmsir vankantar á því, að hægt væri að halda áfram þessari skipasmíði út á Spáni eða réttmætt að halda henni áfram. Það voru sendir menn til Spánar til að kynna sér þetta mál vel og rækilega. Niðurstaðan af þeirri athugun varð sú, að það mundi þrátt fyrir allt vera hyggilegast að halda þessu áfram, því að við héldum þeim samningi, sem búið væri að gera um verð á skipunum, skipaverð færi sífellt hækkandi og mundi því sýna sig, að við fengjum miklu ódýrari skip en ella vegna þessara samningsgerða, ef áfram yrði haldið. Ef út úr samningunum yrði farið, yrði ekki hægt að komast hjá því að verða fyrir fjárhagslegu tjóni. Nú hefur það sýnt sig, að á fyrsta skipinu, sem afhent var frá Spánverjunum, komu upp verulegir gallar. Það hefur hins vegar sýnt sig á þeim skipum, sem síðar hafa komið, sérstaklega þeim síðustu, að þessir gallar hafa ekki komið upp, og nú eru taldar allar líkur til þess, að kaupin á þessum tveimur síðustu skipum verði mjög hagkvæm. Og ekki orkar það tvímælis, að kaupin á þeim skipum, sem við höfum verið að kaupa á undanförnum árum, hafa orðið okkur hagkvæm, ef miðað er við það verðlag, sem er orðið á skipum í dag. Þess vegna er það nú svo með gagnrýni í þessum efnum, að hún getur stundum átt rétt á sér, en ekki alltaf.

Þegar kom til tals með kaupin á loðnuskipum þeim, sem voru upphaf þessa frv., var nokkuð um það rætt, hvort ætti að fara í lagaheimild vegna þessara loðnuskipa eða ekki. Þá var líka um það rætt, hvað þessi skip ættu að vera mörg. Það lágu þá fyrir umsóknir um ein 8 skip. Þegar ég ræddi þetta við formenn stjórnarandstöðuflokkanna, skýrði ég þeim frá því, hvað fyrir lægi í þessum efnum. Þá kom fram hjá þeim, að það gæti verið von á fleirum, og allir, sem um fjölluðu, töldu, að það væri sjálfsagt, ef á annað borð væri farið að veita þessar ábyrgðir, að þá yrði ekki hægt að mismuna aðilum, ef þeir á annað borð gætu staðist þau skilyrði, sem um væri að ræða í sambandi við slík skipakaup. Þess vegna var talan 10 ákveðin til þess að ná út yfir það, sem fyrir lá, og þó heldur betur. Það var talið hyggilegt, því að mismunun í þessum efnum væri lítt framkvæmanleg. Hins vegar hefur það sýnt sig, að enn sem komið er munu það bara vera tveir aðilar, sem geta notað sér þessa heimild, ef samþ. verður hér á hv. Alþ. En það er ekki um það að ræða, þó að heimildin sé til í lögum, að það þurfi til hennar að hverfa, nema fyrir liggi beiðni og þeim skilyrðum verði fullnægt, sem sett eru fyrir því, að ríkisábyrgðir séu veittar. — Þetta vildi ég segja um þennan almenna þátt málsins og þann fyrsta þátt, sem hv. alþm. hafa í raun og veru minnst rætt um.

Hins vegar hafa hv. alþm. deilt á, að þessum tveim þáttum væri blandað saman, sem út af fyrir sig er að minni hyggju ekki nema formsatriði og skiptir ekki öllu og er algeng regla hér á hv. Alþ. Það kom fram í ræðu eins hv. þm. hér í gær, hv. 3. þm. Norðurl. v., en að þeirri ræðu mun ég víkja síðar, að það ætti ekki að vera að taka erlend lán í góðæri eins og nú væri, heldur ætti að gera það, þegar verr áraði. En ég veit nú ekki, með allri virðingu fyrir hyggindum hans í fjármálum, hversu mikill búhnykkur það hefði verið að draga að kaupa þau skip, sem við höfum nú keypt fyrir erlend lán, eða hversu hagkvæmt það hefði verið að draga þær virkjanir, sem hér hafa verið byggðar á síðustu árum með erlendum lántökum. Ég held, að hv. alþm. mundu ekki telja það mikinn búhnykk, enda hafa þessar ráðstafanir orðið til þess að afla okkur gjaldeyris eða spara okkur gjaldeyri, sem er auðvitað sama, þegar um viðskipti í gjaldeyrismálum er að ræða.

Þá kem ég eð þeim þættinum, sem sérstaklega hefur verið hér til umr., og það er samgöngumálaþátturinn.

Ekki orkar það tvímælis, að við höfum um margra áratuga skeið sótt fram í samgöngumálum hér á landi, enda er það svo, að eftir því sem viðskiptalífið færist meira í nútímahorf, eru góðar samgöngur nauðsynlegri. Eitt af forustuhéruðum í samgöngumálum hér á landi var Borgarfjörður. Forusta Borgfirðinga í samgöngumálum er um 80 ára gömul, en þá fóru þeir að hefja ferðir milli Reykjavíkur og Borgarness og Akraness. Það var fyrir forustu borgfirskra bænda, sem þetta var gert. Alla tíð síðan hafa samgöngur við Borgarfjörð verið að batna. En þó er það svo á síðari árum, að vegasambandið á Vesturlandi er eitt af verstu vegakerfum landsins nú. Þetta segi ég þrátt fyrir það, að ég sé einn í hópi þeirra þm., sem eru fulltrúar fyrir Vesturland, er reynslan þessi, að vegir á Vesturlandi eru verri en í velflestum öðrum landshlutum, enda hafa verið gerð stórátök í vegasamgöngum bæði á Vestfjörðum í sambandi við Vestfjarðaáætlun, á Suðurlandi með veginum austur að Selfossi, á Norðurlandi og Austurlandi í sambandi við áætlanir þar um, og þannig mætti telja áfram, þótt þetta sé aðalatriðið. Jafnhliða þessu hefur stórum fjárveitingum verið varið á hverju ári til að auka flugsamgöngur við þessa landshluta. Á fjárl. fyrir árið 1974 eru áætlaðar til flugsamgangna um 172 millj. kr. til fjárfestingar eingöngu, og af þeim eru aðeins 5.7 millj. kr. í Vesturlandskjördæmi. Þetta er ég ekki að tíunda hér vegna þess, að mér þyki of mikið til annarra staða veitt, heldur af hinu, að ég vil minna á það, að við Vesturlandsþm. höfum verið fúsir til að leggja öðrum landshlutum lið í þeirra samgöngumálum og munum verða það, enda er það að okkar dómi, flestra eða allra, einn af meginþáttum til eðlilegs viðskipta- og menningarlífs þjóðarinnar. Þróunin í samgöngumálum Borgfirðinga og Vestlendinga hefur, eins og hjá öðrum, færst yfir á landleiðir að meira eða minna leyti. Það var ekki talið hyggilegt að halda áfram rekstri Akraborgar upp í Borgarnes, og var gott samkomulag um það innan hlutafélagsins Skallagríms, þó að borgfirskir bændur, Borgnesingar og meira að segja nokkrir Snæfellingar gætu ráðið algerlega í því félagi. Það var þeirra mat, að það væri eðlilegt, að sjósamgöngur héldu áfram milli Reykjavíkur og Akraness, en Borgarnes félli þar út úr, vegna þess að það er erfitt að fara um Borgarfjörð. Hann er þurr bálfan sólarhringinn, og siglingar inn fjörðinn eru mjög erfiðar. Það datt engum Borgfirðingi, hvorki bændunum né Borgnesingum, í hug að draga sig út úr þessari starfsemi eða henni yrði hætt, þó að Borgnesingar gætu ekki notið hennar. En það, sem skeði og var í raun og veru ekki reiknað með, var, að fólksflutningum á landi frá Akranesi til Reykjavíkur hefur aldrei tekist að keppa við sjóflutningana. Sjóflutningarnir hafa alltaf haft betur og miklu betur, svo að bílaútgerð frá Akranesi datt niður, en fólksflutningar með Akraborginni jukust. Menn geta hér á hv. Alþ. talað um ráp manna í því sambandi, ef þeir hafa löngun til þess að nota þau orð. En reynslan er sú, að þetta hentar Akurnesingum mjög vel, og það hefur sýnt sig, að vaxandi áhugi er einmitt á sjóferðunum.

Í því sambandi og í sambandi við það, sem fram kom í ræðu hv. 3. þm. Norðurl. v., þegar hann nefndi knattspyrnuferðir á milli Akraness og Reykjavíkur, vil ég geta þess, að það er ljóst, að Akurnesingar hefðu ekki orðið jafnfrægir knattspyrnumenn og raun ber vitni, ef samgöngurnar á sjó milli Akraness og Reykjavíkur hefðu ekki verið einn þátturinn í því. Og það hefði ekki verið hægt fyrir Akurnesinga að halda uppi sínu íþróttalífi, eins og þeir hafa gert, nema vegna þess að aðsókn Reykvíkinga var margfalt meiri en ella, af því að þeir áttu kost á að komast sjóleiðina, en þurftu ekki að fara í bifreið. Þetta eru staðreyndir, sem ekkert þýðir á móti að mæla. Það er aldrei hægt að mótmæla staðreyndum. Þær standa eftir, hvað sem hver kann að segja. Og að tala um það sem einhverjar vandræðaferðir, þegar ungir og efnilegir menn stunda íþróttir með góðum árangri, þeir menn, sem þannig tala, bera lítið skynbragð á eðlilega þætti í mannlegu lífi. Enda hefur reynslan orðið sú, að Akurnesingar hafa orðið, bæði á heimavelli, hérlendis og erlendis, sér, byggð sinni og landi til sóma og munu verða það um langa framtíð. En einn þátturinn í því eru hinar öru skipaferðir á milli Reykjavíkur og Akraness.

Eins og ég gat um áðan, sýndi reynslan síðustu árin og sérstaklega s.l. ár, að áhugi á að ferðast með Akraborginni hefur aldrei verið meiri, enda hefur hún aldrei flutt fleiri farþega. En það er líka annað, sem hefur farið árvaxandi, og það er ásókn manna í að flytja bifreiðar með Akraborginni. Það er hins vegar óhentugt, vegna þess að það verður að flytja bílana á þiljum, það verður að taka þá upp með sérstökum tækjum þar til búnum, og það er nokkur hætta fólgin í því, að bílarnir skemmist, bæði þegar verið er að taka þá í skip og úr skipi og einnig þegar þeir eru á leiðinni. Þetta höfðu þeir, sem stjórna hlutafélaginu Skallagrími, til athugunar, og svo það, að Akraborgin er nú nær 20 ára gömul og fram undan er stór klössun á skipinu, sem mundi reynast dýr, ef til kæmi. Það var því á aðalfundi Skallagríms s.l. sumar, að ákveðið var að freista þess að selja Akraborgina op kaupa nýtt skip, og það. sem sérstaklega var lagt upp úr í því sambandi, var að reyna að kaupa skip, sem gæti flutt mikið af bifreiðum. Á þessum fundi munu hafa setið flestir oddvitar í Mýra- og Borgarf jarðarsýslum. Það má hver sem vill hafa þann munnsöfnuð, sem hv. 3. þm. Norðurl. v. viðhafði. Það er ekki ástæða til að skamma þá, sem saklausir eru, heldur hina, sem sekir eru. Það má, ef menn vilja, kalla slíka menn flón eða fífl, en það græðir enginn á því, því að þeir hafa hreint ekki efni á því að kalla þessa myndarbændur slíkum nöfnum. Og þessir menn voru það víðsýnir, að þeir skildu þörfina fyrir breytingarnar og samþykktu þær einróma. Í framhaldi af því var leitað eftir að kaupa nýtt skip til þessara flutninga. Að öðrum kosti, ef ekki væri að því ráði horfið, var það mat þeirra, sem um fjölluðu, að það yrðu þau þáttaskil í samgöngumálum Akurnesinga, að sjóflutningarnir legðust niður.

Leit sú eftir því að skipta um skip, sem gerð var, beindist að því skipi, sem hér er til umr. Þegar það mál var lagt fyrir ríkisstj. á sínum tíma, fylgdi því sérstakt vottorð frá skipaskoðunarstjóra, sem hafði skoðað skipið þá. Mér komu því á óvart þær aths., sem voru gerðar hér í gær og hafðar voru eftir skipaskoðunarstjóra, því að þær komu ekki fram í því vottorði, sem þá lá fyrir og undirskrifað var af skipaskoðuninni. Það var mat ríkisstj., að það væri ekki ástæða til þess, að þessum þætti í samgöngusögu þessa byggðarlags yrði ekki sinnt eins og öðrum þáttum samgöngumála. Allir gerðu sér grein fyrir því, að það mundi geta kostað fjármuni að gera þetta átak, en það kosta allir þættir í okkar samgöngumálum, mismunandi mikið, og ekki varð heldur séð, hversu dýr þessi þáttur þurfti að vera.

Eitt af því, sem hefur komið inn í þessar umr., er það að koma bílum í skipið, bæði hér og á Akranesi, og það mun að sjálfsögðu kosta sitt að gera það. Það er nú verið að athuga breytingar í sambandi við skipið erlendis vegna löndunar og fermingar á bifreiðum í skipið, og mun verða reynt að gera það þannig, að úr þessum kostnaði verði dregið. Ég hef m.a. rætt þennan þátt við Akurnesinga og einnig við hafnarstjórann hér í Rvík. Hafnarstjórinn í Rvík hefur tekið þessu máli með velvild og skilningi og sagt, að þeir mundu að sjálfsögðu skoða þetta mál án allra hleypidóma, þeir mundu freista þess að gera það eins ódýrt og hægt væri og reyna að finna leiðir til þess að leysa það svo, að það yrði ekki nein ofraun við að fást. Ég efast ekkert um, að hafnarstjórinn í Rvík mun vinna að þessu máli á þennan veg.

Eitt af því, sem stjórn Skallagríms hefur gert, er að leita til allra sveitarfélaga og fyrirtækja, sem eiga í Skallagrími, og fara fram á hlutafjáraukningu hjá þeim. Meðal þeirra aðila, sem var leitað til, er Kaupfélag Borgfirðinga, og það hefur nú afgreitt erindið á þann veg að auka hlutaféð meira en farið var fram á eða um 1 millj. kr. Ég geri ráð fyrir því, að öll sveitarfélögin á svæðinu muni auka hlutafé sitt, eins og farið er fram á, og bæjarstjórn Akraness hefur ákveðið að gera það.

Það er því ekki hægt að halda því fram hér á hv. Alþingi, að það sé ekki áhugi á þessu máli á Akranesi eða í héraði. Það er fullur skilningur á þessu. Héraðsbúar vita ósköp vel, að það getur farið svo, að leiðin fyrir Hvalfjörð lokist, og þá sé þetta sú leið, sem þeir þurfi að fara, m.a. vegna mjólkurflutninga. Það þarf enginn að halda, að þeir menn, sem hér hafa fjallað um, hafi gert það hugsunarlaust og alveg út í bláinn. Þeir eru, eins og aðrir, að tryggja samgöngur við sín héruð og sín byggðarlög betur en mundi verða gert, ef þessi þáttur samgöngumála Borgfirðinga legðist niður. Og þeim finnst, að það fari ekki vel á því, að þessi 80 ára saga í samgöngumálum þeirra falli niður, á sama tíma og ljóst er, að áhugi á sjósamgöngum fer vaxandi.

Þetta vildi ég nú segja hér hv. alþm., þeim, sem vilja hlusta á þessi mál með sanngirni og rökum, eins og ég veit, að hv. alþm, vilja yfirleitt gera. Ég geri mér grein fyrir því, að til einhvers kostnaðar getur komið af þessu. En það er alveg sama, hvaða samgönguþáttur í okkar samgöngukerfi er, fram hjá slíku verður ekki komist.

Annar þáttur í umr. þeim, sem fóru fram í gær, var ræða hv. 3. þm. Norðurl. v. Það er ekki nýtt, að hv. 3. þm. Norðurl. v, segi okkur, að hann sé vitur maður og meiri fjármálaspekingur en hinir og við allir hinir þm. séum miklir glópar í þeim efnum. Mér hefur oft dottið í hug í því sambandi, þegar hv. þm. hefur flutt slíkar ræður sem hann gerði í gær, saga ein, sem er sögð af sr. Árna Þórarinssyni. Hann var að lýsa konu og byrjaði lýsinguna á útliti hennar, og sagði: „Hún var guðdómlega fögur. Hún var beinlínis afskræmd af fegurð. Hún var fallegasta kona á jörðinni og þótt víðar sé leitað, það er ég viss um.“ Ég skil eiginlega ekkert í hógværð og lítillæti þessa hv. þm., að hann skuli láta sér nægja að bera gáfur sínar og fjármálakænsku saman við okkur þessa 59, sem hann segir svo flón þar að auki. Hann á að segja: „Ég er vitrasti og mesti fjármálasnillingur heimsins, og jafnvel þótt viðar sé leitað.“ Hann á að vera dálítið orðhagur, taka dálitið djúpt í árinni eins og séra Árni, svo að menn taki eftir þessu, en ekki vera með svona gutl, eins og hann sé skárri en flónin, sem sitja hér á þingbekkjunum. Það er ekkert varið í það fyrir slíkan mann.

En ég má til með að segja þessum hv. þm. það, að þá rak mig í rogastans, þegar ég hafði sannar fregnir af því í fyrra, að einn merkur borgari þessa lands hafði gert athugun um stærð búa hjá bændum víðs vegar um landið, hafði tekið alla bændastéttina og valdi úr 40 stærstu bændurna. En viti menn, hv. 3. þm. Norðurl. v., Björn bóndi á Löngumýri, var ekki í hópnum. Hann náði því ekki að vera einn af þessum 40 stærstu. Þetta er staðreynd. En hv. 2. þm. Sunnl., bóndinn á Brúnastöðum, Ágúst Þorvaldsson, og hv. 3. þm. Norðurl. e., Stefán Valgeirsson, voru í hópnum. En þeir hafa ekki haldið ræður hér á Alþingi um vitsmuni sína eða fjármálakænsku, enda hafa þeir kannske annars staðar notað tímann til þess að vinna sig upp í það, sem þeir eru orðnir.

Ég verð nú að segja hv. 3. þm. Norðurl. v. það, að ég dreg í efa, með allri virðingu fyrir vitsmunum og fjármálahæfileikum hans, að hann sé meiri bóndi en Magnús bóndi í Norðtungu, sem situr í stjórn Skallagríms og hefur tekið ákvörðun um þetta, eða Magnús bóndi á Gilsbakka, sem situr í stjórn Kaupfélags Borgfirðinga og samþykkti þar hlutafjáraukninguna, eða Gunnar á Hjarðarfelli, sem er form. Stéttarsambands bænda og gerði það líka. Ég dreg í efa, að þessir menn þurfi nokkuð til hv. 3. þm. Norðurl. v. að sækja. Ég verð líka að segja það, að það var ekki smekklegt af hv. 3. þm. Norðurl. v., þegar hann gaf okkur þm. Vesturl. þá einkunn, að eitt væri ágætt með okkur, að við værum allir jafnvitlausir, að fara að taka í þann hóp þá þm., sem ekki eru í þessari hv. d. Það var allt í lagi að skamma okkur hina, sem höfðum aðstöðu til að svara fyrir okkur. En ég verð að segja það, að það er nú svo, að íslenskir bændur treysta betur hv. 1. þm. Vesturl., Ásgeiri bónda í Ásgarði, til þess að skipa veglegasta sess í félagsmálum bændastéttarinnar á Íslandi, vera form. Búnaðarfélags Íslands, heldur en hv. 3. þm. Norðurl. v. Ég vil líka segja það, að ég mundi hvergi, þó að hv. 2. þm. Vesturl., Jón Árnason, sé pólitískur andstæðingur minn og keppinautur í kosningum og við reynum auðvitað að ná atkvæðum hvor frá öðrum, — ég mundi hvergi leyfa nokkrum manni að bera slíkar svívirðingar á hann sem hv. þm. Norðurl. v. gerði í gær án þess að mótmæla, og ég geri það hér með. Hv. 3. þm. Norðurl. v., hafði engin rök fyrir þeim ummælum, sem hann hafði um hv. 2. þm. Vesturl. Það var allt út í bláinn sagt, það voru tómir sleggjudómar og ekkert annað. Og þannig orðræður eiga hv. þm. ekki að leyfa sér. Það er kannske af því, að hv. þm. hafði ekki rök að mæla í þessu máli, að til þess arna var gripið.

Ég skal nú, herra forseti, fara að stytta mál mitt, en vil þó, áður en ég lýk því, mótmæla ummælum hv. 3. þm. Norðurl. v. um þá aðila, sem ég hef hér nefnt, um stjórn Skallagríms, um bæjarstjórn Akraness, um oddvitana í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu og aðra þá í Borgarfjarðarhéraði, sem hv. þm. talaði sérstaklega um, en um þessi mál fjallaði hann í ræðu sinni hér í gær. Það eru menn, sem geta staðið fyrir sínu, og þurfa ekkert til þessa hv. þm. að sækja, hvorki um vitsmuni né fjármuni.

Ég vil að lokum segja það, að auðvitað er ekki nema eðlilegt, að menn geti haft skiptar skoðanir á þessu máli, það er svo, um öll mál, og auðvitað getur okkur, sem að þessu máli vinnum, yfirsést í einhverjum atriðum. Hins vegar held ég, að það væri spor aftur á bak í samgöngusögu þessarar þjóðar, ef sjósamgöngum milli Akraness og Reykjavíkur væri hætt. Ég er sannfærður um, að það munu þm. yfirleitt ekki vilja styðja og niðurstaðan verði því á annan veg. Ég hef heldur enga ástæðu til að ætla annað en að þeir menn, sem hafa kynnt sér þessi mál og unnið hafa mest að þeim, hafi meiri möguleika til að meta þau en við hv. alþm. getum gert, þó að sumir hafi farið á veitingahús til að fá sér þar fréttir af slíkum málum. Þær fréttir, sem menn fá á veitingahúsum, geta oft verið hæpnar.

Ég hafði satt að segja ekki gert ráð fyrir því, að þetta mál væri með þeim hætti, að menn yrðu ausnir hér svívirðingum og öðru slíku, eins og gert hefur verið af hálfu hv. 3. þm. Norðurl. v. í sambandi við þetta mál. Það verður auðvitað að vera mat hvers manns, hv. þm. einnig, hvernig hann vill haga málflutningi sínum. Mestu máli skiptir um þetta mál, að það nái í höfn og því fylgi sú hamingja, að það skip, sem keypt verður, verði happafleyta og reynist til þess hlutverks fallið, sem það er keypt til. Ég get sagt það, að ég vona, að svo verði, og ég held, að það fari nú svo í þessu sem öðru, að þeim, sem mestu stóryrðin nota, fari eins og stráknum, sem átti að tollera, og til þess að verja sig, greip hann til þess að hlaupa í fjóshauginn og ausa þaðan á þá, sem hann hélt að mundu tollera sig. Hann gætti ekki að sér, og áður en varði var hann sokkinn í hauginn upp undir hendur, en þeir, sem fyrir utan stóðu, urðu ekki fyrir neinu kasti. Þannig varð það hann einn, sem sat eftir með óhreinindin, en ekki þeir, sem ausa átti á.