07.02.1974
Sameinað þing: 52. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2079 í B-deild Alþingistíðinda. (1865)

Umræður utan dagskrár

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Ég dró ekki í efa, að ríkisstj. hefði lagt fram hugmynd um breyt. á kerfi beinna skatta, og mér er sagt, að þessi hugmynd, sem ríkisstj. bar fram fyrir hátíðar í vetur, hafi borið með sér till. um lækkun beinna skatta um 2500 millj. kr. En í staðinn vildi ríkisstj. fá leyfi til að hækka söluskattinn um 5 stig eða hækka óbeina skatta um nokkuð á 4 milljarð kr. Það er ekki von, að þessar till. hafi verið grundvöllur til lausnar yfirstandandi kjaradeilu, og launþegasamtökin munu litt hafa undir slíkar till. tekið. En það, sem ég gagnrýni, er bæði að láta frá sér fara slíkar till., sem svo ólíklegar eru til lausnar kjaradeilunni, en ekki síður að hafa ekki haldið áfram viðræðum við launþegasamtökin og gengið úr skugga um það, sem hæstv, forsrh. réttilega sagði, að ætti að vera grundvöllur þess, að gagn yrði að slíkum till. frá ríkisstj. hálfu, að launþegasamtökin mundu meta slíkar till. einhvers. En alveg burtséð frá þessari kjaradeilu er vitað mál. að við búum við óviðunandi kerfi beinna skatta, og þegar af þeirri ástæðu bar ríkisstj. að bæta úr fyrri yfirsjónum, sem áttu sér stað með skattalöggjöfinni 1972, og endurbæta núv. skattakerfi.

Við sjálfstæðismenn höfum borið fram till. hér á Alþ. um breyt. á beinum sköttum, og ég vil skora á þá þn., sem hefur það frv. til meðferðar, að flýta afgreiðslu þess, um leið og ég tek undir þær áskoranir, sem hv. 7. þm. Reykv. bar fram, á ríkisstj. að flýta tillögugerð sinni í skattamálum og í húsnæðismálum, svo að aðilar vinnumarkaðarins viti, hvar þeir standa, en hvor tveggja þessi mál hafa launþegasamtökin sett á oddinn og talið sig skipta höfuðmáli að því er kjör snertir á næstunni.