11.02.1974
Neðri deild: 60. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2095 í B-deild Alþingistíðinda. (1878)

187. mál, eftirlaun starfsmanna stjórnmálaflokkanna

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Þetta mál hefur verið til meðferðar hjá fjmrn. og þingflokkunum. Sumarið 1972 fékk ég Jón Erling Þorláksson tryggingafræðing, til þess að gera drög að frv. um þetta efni, sem var líkt því, sem starfsmenn félaga eins og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og fleiri aðila hafa fengið í sambandi við sín lífeyrisréttindi.

Það kom fram í umr. á milli mín og formanna þingflokka stjórnmálaflokkanna í fyrra, þegar þetta mál var þá til meðferðar, að hv. þm. vildu athuga betur, hvort ætti að fara inn á þá braut, sem þar var lagt til, sem er ný braut og er miðuð eingöngu við þm., sem eru kosnir til takmarkaðs tíma, en ekki með ráðningu. Nú hef ég löngun til þess að láta gera eina tilraun enn og hef beðið deildarstjórann í launadeildinni, sem hefur fjallað um þetta mál af hálfu ríkisvaldsins, að fara á fund formanna þingflokkanna og leita eftir því einu sinni enn, hvort ekki væri hægt að fá sameiginlega niðurstöðu um málið, og vil biðja hv. fjh.- og viðskn., sem fær þetta mál til meðferðar, að fara sér hægt, meðan verið er að athuga það. Frá þessu vildi ég segja nú, því að ég held, að heppilegasta leiðin væri, að þetta væri nokkuð svipað hjá starfsmönnum þessara félagssamtaka og öðrum félagssamtökum í landinu.

Ég skal svo ekki fara að ræða þetta mál frekar, en vil reyna að gera eina tilraun enn til að ná sameiginlegri niðurstöðu í málinu.