12.02.1974
Sameinað þing: 53. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2115 í B-deild Alþingistíðinda. (1888)

194. mál, fullorðinsmenntun

Fyrirspyrjandi (Stefán Gunnlaugsson):

Herra forseti. Á tveimur síðustu þingum hefur verið lagt fram frv. til l. hér á hinu háa Alþ. um Fræðslustofnun alþýðu. 1. flm. þess, þegar það var fyrst lagt fram, var Sigurður E. Guðmundsson, sem hér átti sæti á Alþ. um tíma sem varaþm. Alþfl. Frv. var þá vísað til menntmn. Nd. til athugunar, og fékk það þá ekki afgreiðslu. Við Pétur Pétursson, hv. þm., tókum þetta mál upp á ný á síðasta þingi, en þá var því vísað til ríkisstj. til fyrirgreiðslu að tillögu menntmn. hv. Nd. Þetta frv. okkar miðaði að því, að hér yrði komið á fót stofnun, sem ynni að alhliða alþýðufræðslu og fullorðinsmenntun líkt og sams konar stofnanir, sem starfað hafa um árabil á hinum Norðurlöndunum. Starfsemi Fræðslustofnunar alþýðu skyldi vera grundvöllur að skipulegri eflingu almenningsmenntunar í landinu og fullorðinsmenntunar.

Frsm. menntmn. Nd. lét svo um mælt, þegar hann talaði fyrir till. hennar hér í hv. Nd., að frv. yrði vísað til ríkisstj. til fyrirgreiðslu, að því hefði verið mjög vel tekið í n. og þeim grundvallarhugmyndum, sem það byggðist á. Hins vegar hefði verið upplýst, að athugun færi fram í menntmrn. á því, hvernig þessum málum yrði best fyrir komið. Væri sérstök n. á vegum rn. að störfum, sem fjallaði um fullorðinsmenntun á breiðum grundvelli. Þetta var í byrjun aprílmánaðar 1973. Því hef ég beint svofelldri fsp. til hæstv. menntmrh. á þskj. 343: „Hvað líður athugun menntmrn. á því, hvernig fullorðinsmenntun verði best fyrir komið?“