12.02.1974
Sameinað þing: 53. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2125 í B-deild Alþingistíðinda. (1900)
408. mál, innlendar fiskiskipasmíðar
Jón Árm. Héðinsson:
Herra forseti. Þetta er athyglisverð fsp., og ég veit ekki, hvort menn hafa gert sér grein fyrir því, hve erfitt er að fá í gegn hér á Íslandi breytingu á gerð skipa. Það er ótrúleg tregða í því efni við yfirvöldin, og vil ég ekki vera að rekja þá sögu nánar, því að ég er henni of persónulega tengdur. En ég veit, að bæði Norðmenn og Færeyingar hafa náð mjög góðum árangri í þessu efni, og það er næsta furðulegt, að þeir, sem ráða lánamálum, skuli ekki hafa fylgst betur með og hvatt Íslendinga til þess að gera eðlilega skipulagsbreytingu á línuveiðiskipum í þessa átt. Nú er þetta auðvitað miklu meira en línuveiðiskip. Þetta er líka ágætis netaskip og ef á þarf að halda einnig togskip. Þetta er því, eins og fyrirspyrjandi sagði, hliðstæð bylting og átti sér stað úr síðutogara í skuttogara. Ég vil beina þeim orðum til hæstv. sjútvrh., því að ég veit, að hann hefur áhuga á þessari breytingu og fleiri breytingum, — ég hef átt fund með honum ásamt öðrum útgerðarmanni, sem befur hug á að gera nokkra breytingu á skipi, — og hann sýnir þessu máli mikinn áhuga. Ég vænti þess, að þetta verði tekið til alvarlegrar athugunar og því hrundið í framkvæmd. Málið er það mikilvægt, vegna þess að við fáum ekki sjómenn núna út á hin litlu hefðbundnu línuveiðiskip eða línuveiðibáta eða hvað við viljum kalla þau skip. Þetta verði hinir klassísku vertíðarbátar og munu hafa gildi, hvar sem vera skal á landinu.