30.10.1973
Sameinað þing: 10. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 241 í B-deild Alþingistíðinda. (191)
Umræður utan dagskrár
Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Ég skal ekki vera langorður. En út af hneykslan hæstv. iðnrh. á því, að ég skuli leyfa mér að fara hér upp í ræðustólinn og gera aths. út af því stóra og mikla máli, sem skiptir það byggðarlag, sem hefur valið mig til þingsetu, þá ætla ég að segja þessum hæstv. ráðh. það, að ég er búinn að sitja hér á þingi með honum í allmörg ár og hann hefur verið manna ófeimnastur að standa upp utan dagskrár, þó að mörg mál hafi verið á dagskránni. En það á kannske að breyta um, eftir að þessi hv. þm. er kominn í ráðherrastól. þá eiga hinir að þegja, en hann á einn að tala og segja fyrir verkum. En ég ætla að láta þennan hæstv. ráðh. vita það, að ég mun nota mér minn rétt sem þm., þegar ég tel, að það skipti máli fyrir þau málefni, sem ég er að vinna að, og fyrir það kjördæmi, sem ég er umboðsmaður fyrir, hvort sem honum líkar betur eða verr.
Hann sagði, að ég hefði átt að sjá um það sem stuðningsmaður viðreisnarstjórnarinnar, sem setið hafi að völdum í 12 ár, að til væru viðgerðarmenn til þess að gera við sæstrengi. Ég segi eins og er, að ég skal játa vankunnáttu mína í þeim efnum, að ég hafði ekki hugmynd um, að það væru ekki til viðgerðarmenn til þess að gera við rafmagnsstrengi. En er ekki þessi hæstv. ráðh. búinn að fara með orkumálin nú á þriðja ár, og hann segir nú hér áðan, að það sé rétt að fara að athuga það, hvort eigi að láta einhvern læra að gera við rafmagnssæstrengi. Ég held, að það sé að bæta gráu ofan á svart. Ef það hefur verið vanræksla viðreisnarstjórnarinnar, þá er það ekki síður hans vanræksla,
Ég ætla líka að vísa því til föðurhúsanna, að ég óskaði eftir því, að hann gæfi hér á stundinni skýrslu um þetta mál. En það eitt vil ég segja, að rafmagn bilar ekki eftir þingsköpum, hvorki á Vestfjörðum né annars staðar. Mér datt ekki í hug, þegar þing kom saman, að þessari viðgerð yrði ekki lokið innan örfárra daga. Ég hefði ekki komið hér fram, ef þessi viðgerð hefði tekið skaplegan tíma. En það þarf að minna á málin, það þarf að minna á það, hvernig byggðastefnan er í framkvæmd.