12.02.1974
Sameinað þing: 55. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2138 í B-deild Alþingistíðinda. (1917)
166. mál, rafvæðing dreifbýlisins
Pálmi Jónsson:
Herra forseti. Ég ætla ekki að fara út í almennar umr. um orkumál undir þessum dagskrárlið, enda þótt forsenda aukinnar orkuneyslu og orkudreifingar í landinu sé auðvitað aukin orkuvinnsla, það er öllum ljóst. Erindi mitt hingað er fyrst og fremst að taka undir þá till., sem hér er flutt og lýst hefur verið af 1. flm. hennar, hv. 1. þm. Vestf. Ég tel, að það sé fyllilega tímabært nú, þegar eitt ár er eftir af þeirri rafvæðingaráætlun, sem í gildi er, að taka það til athugunar, með hvaða hætti má leysa vanda þeirra býla, sem eftir verða, þegar þessu áætlunartímabili lýkur. Og það er alveg rétt hjá hv. flm., að nú eru algerlega breyttar forsendur í þjóðfélaginu vegna olíukreppunnar og allra þeirra vandamála, sem af henni stafa og gera það að verkum, að eðlilegt er að leggja í meiri kostnað við það að tengja fleiri býli við samveitur ríkisins heldur en áætlað hefur verið til þessa. Þetta er tímabært að gera nú þegar, til þess að áætlun um það efni liggi fyrir, áður en þessu áætlunartímabili lýkur.
Í annan stað vil ég vekja athygli á því, að það er mikil nauðsyn, að svo verði staðið að þessum málum, að ekki verði vanefndir á þeirri áætlun, sem nú er í gildi, og að henni ljúki svo á næsta ári, að þá verði búið að tengja öll þau býli inn á samveitur Rafmagnsveitna ríkisins, sem gert er þar ráð fyrir. Hv. frsm. till. gat þess hér áðan, að þetta hefði gengið vel á fyrsta ári þessarar áætlunar, en öllu miður á því næsta, sem var s.l. ár, og þá hefði verið um verulegar vanefndir eða a.m.k. mjög verulegan drátt að ræða á framkvæmdum. Flm. gat þess, að þær orsakir lægju til þessa, að um mjög langan afgreiðslufrest á efni til þessara rafveituframkvæmda væri að ræða. Hér lít ég svo á, að sé um algeran fyrirslátt að ræða og algerlega raunar út í hött að nefna þetta sem ástæðu til þess, að þessar vanefndir hafa orðið. Þessi áætlun, sem nú er í gildi, er gerð veturinn 1971–1972, og a.m.k. vorið 1972 liggur hún fyrir. Það hefði þá þegar verið hægt, vorið 1972, að panta það efni, sem til þess þarf að hrinda þessari áætlun í framkvæmd. Ef þannig hefði verið að málum staðið, hefði ekki þurft að bíða eftir því, að þessar framkvæmdir kæmust í verk, miklu lengur heldur en til hefur staðið, gera þær óhagkvæmari og ódýrari, vegna þess að þær hafa dregist í ýmsum tilvikum langt fram á vetur, eins og raun hefur orðið á, og skapa ómældan vanda þess fólks, sem treyst hefur á að njóta þess, að rafmagnið kæmi á tilsettum tíma, eins og búið var að kveða á um. Ég hygg, að ég þurfi ekki að rekja slíkar aðstæður. Þær munu flestum kunnar. Ýmsir geyma það að endurnýja þau tæki, sem þeir hafa fyrir, vegna þess að ný tækjakaup eru fyrirhuguð í sambandi við að tengjast samveitum ríkisins, og svo kannske bregst það, þegar til á að taka, og allt er í hreinum vandræðum. Er það viða, sem slíkt hefur lent í hreinu óefni.
Það er sem sagt að mínu áliti alger fyrirsláttur, að sá vandi, sem þarna er við að fást, og þær vanefndir, sem orðið hafa á þessari áætlun á siðasta ári, séu sprottnar af þessum orsökum. Það þurfti ekki að verða, ef af fyrirhyggju hefði verið staðið að málum. Og ég vil vænta þess, að svo verði á málum haldið nú, að unnt verði að ljúka þessari áætlun, eins og fyrirhugað var, á næsta ári.